29. jan. 2004

bjáninn ég...

Ég var víst búin að lofa því að græja kommentin í gær og ég reyndi en það skilaði ekki miklum árangri... og nú skal ég segja ykkur hvers vegna.

Ég er ekki í neinum tímum á miðvikudögum og var bara heima að læra í gærdag en svo ákvað ég að kíkja aðeins á tölvupóstinn minn og uppfæra athugasemdakerfið mitt í gærkvöldi. Ég kom inn í Odda rúmlega níu í gærkvöldi og valdi mér stöðu við kennaratölvuna í stofu 102. Eitthvað sem ég geri vanalega aldrei og eitthvað sem ég á aldrei eftir að gera aftur! Ég hugsaði nefnilega með mér, þegar ég valdi mér sæti, að ég ætlaði nú að sitja á stað þar sem fólk væri nú ekkert að kíkja yfir öxlina á mér og skoða það sem ég væri að gera! Jamm, ein frekar paranoid.
Alla vega, þegar ég var búin að sitja dágóða stund þá kemur strákur inní stofuna og mér verður litið til hans og sé þá útundan mér eitthvað á veggnum. Eða réttara sagt tjaldinu. Ég leit betur á tjaldið og þá blasti barasta við mér nákvæmlega það sem ég sá á tölvuskjánum hjá mér. Ergo, skjávarpinn sem er tengdur við kennaratölvuna var í gangi og varpaði öllum mínum tölvuhreyfingum á tjaldið! Mér varð svo um að ég bara flýtti mér að slökkva á öllu sem ég var að skoða og logga mig út og dreif mig bara heim.
Þannig fór um sjóferð þá.

Ég var einmitt í miðju kafi að lagfæra kommentakerfið þegar mér varð ljóst að allt sem ég var að gera væri á skjávarpanum!

Nóg um það í bili, núna ætla ég að fara að laga það sem ég byrjaði á í gær...

25. jan. 2004

eitt enn sem ekki má gleymast!

hún á afmæli í dag
hún á afmæli í dag
hún á afmæli, hún Marý
hún á afmæli í dag!

VEEEIII!!! HÚRRAAA!!!

og líka vei! og húrra! til þeirra afmælisbarna sem ég hef gleymt í janúar!!! og þau eru ansi mörg...
Harpa 6. janúar
Anna Lilja 17. janúar
Erna 17. janúar
Bryndís 20. janúar

Allar eru þessar skvísur orðnar 29+. TIL HAMINGJU MEÐ ÞAÐ, STÚLKUR!

p.s.

öhömm... ég stefni að því að fikta eitthvað í kommentakerfinu mínu á miðvikudag, þangað til verðið þið bara að senda mér póst ef þið hafið þörf á að tjá ykkur við mig...

janúarblús...

þótt titill þessarar færslu gefi til kynna að ég sé eitthvað ‘blue’ þá er það alls ekki málið en þessi mánuður hefur verið frekar erfiður að vissu leyti og ég hef komist að því um sjálfa mig að ég er mun meiri reglu-og öruggisfíkill en mig nokkurn tímann óraði...

Það er langt síðan að ég hef sukkað svona mikið í mat og svefnóreglu um jól og áramót eins og ég gerði núna síðast og það er rétt núna, þegar það er bara vika eftir af janúar, sem ég er að koma stjórn á svefnmynstur mitt!

Þessi svefnóregla undanfarnar vikur hefur gert það að verkum að ég hef varla gert handtak heima hjá mér og þar sem ég á enn eftir að taka uppúr nokkrum kössum þá böggar þetta mig alveg svakalega. Kannski af því að það þýðir óreiðu og óreglu í kringum mig eða kannski bara af því að ég ætla ekki að leyfa mér að kaupa mér rúm fyrr en allir kassar eru tómir... Sef bara á dýnu á gólfinu eins og er. Það er orðið frekar þreytt. ‘Glansinn’ er alveg farinn af því að sofa á gólfinu í hálftómri risíbúð!

Reyndar er það svo undarlegt með mig að ef að það er of mikil óreiða heima hjá mér þá fúnkera ég ekki á öðrum sviðum, amk. illa. Ef að það er óskipulag heima fyrir þá get ég ekki skipulagt mig útávið heldur.
Do I sound crazy or what?

Þetta er nú svona smám sama að komast í lag, ég fer að fara að sjá fyrir endann á þessu. Undanfarið hef ég verið að dunda mér við að lakka ljóta IKEA-dótið mitt kóngablátt og er nú búin að púsla því saman í svona minihillusamstæðu sem ég er barasta nokkuð ánægð með.

Yfir í annað. Ég er bara nokkuð sátt við einkunnirnar mínar fyrir haustið, sérstaklega síðustu einkunnina sem kom mér svo mikið á óvart að ég hringdi fyrst í kærastann og svo í vinkonu til að monta mig og vakti þau bæði! Samt var klukkan orðin 11 en þau voru reyndar bæði lasin... 7,5 í meðaleinkunn fyrir 20 einingar og 60% vinnu með skóla, það er nokkuð gott. Er það ekki?

Það besta er kannski það að ég er loksins búin að ákveða viðfangsefni BA-ritgerðarinnar minnar! Það var heilmikill léttir að vera búin að ákveða það og geta farið að lesa sér til og undirbúa sig. Ég hlakka svo til að byrja!!!

Eins og ég sagði í upphafi hefur mér alls ekkert liðið illa og ég er að átta mig á því að mér líður alveg ótrúlega vel í lífi mínu þessa stundina, það er einhvern veginn allt eins og það á að vera.
Tja, nema kannski óreiðan heima hjá mér en það er allt í vinnslu...

23. jan. 2004

úff! ég sökka feitt!!!

jamm... hef ekki bloggað lengi og hef ekki einusinni gefið mér tíma í að laga kommentin mín og er barasta algjör lúser... ég lofa að þetta komist í lag mjög snarlega en samt ekki í dag...
hafið þolinmæði elsku vinir...

15. jan. 2004

stjörnuspá og upphafogendir

Eina stjörnuspáin sem ég les núorðið er stjörnuspáin sem Röskva birtir ávallt í janúarblaði sínu. Samkvæmt þessari spá mun árið 2004 vera svona fyrir naut eins og mig:

Ást, friður og jafnvægi. Þetta þrennt mun einkenna árið hjá þér. Og, já eitt annað; Leoncie, indverska prinsessan mun hringja í þig og segja: "Barnadumig". Sértu kvenkyns, þá ertu heppin því að þú hefur löglega afsökun.

Svo mörg voru þau orð. Og mikið rosalega er ég heppin að vera kvenkyns!

Í dag er Bestaskinnið mitt að fara að skila inn BA-verkefninu sínu. Lokaskil, hún útskrifast í febrúar. Í næstu viku er ég svo að fara að hitta leiðbeinandann minn fyrir mitt BA-verkefni. Endir hjá henni og upphaf hjá mér... svona er lífið.
TIL HAAAMINGJU BESTASKINN!!!

En núna ætla ég að bregða mér bæjarleið og fara að hitta Leiðsöguskólagengið mitt í hádegismat á Reykjavík Bagel Company. Verði okkur að góðu!

11. jan. 2004

er að lifna við aftur...

já, maður er svona smám saman að skríða útúr 'próf/jólastressinu' og lífið að komast í eðlilegt horf aftur, skólinn byrjar svo á morgun þannig að það er ekki seinna vænna að ná áttum aftur.

Bloggið í dag verður stutt, bara til að láta vita að ég var að bæta við fleiri barnahlekkjum, ég þekki svo mikið af barnafólki. Maður er víst kominn á þann aldurinn... ;o)

Jú, og eitt enn: ANDRI, TIL HAMINGJU MEÐ ÞRJÁTÍUÁRAAFMÆLIÐ!

7. jan. 2004

ÚFF!!! og GLEÐILEGT ÁR!

Já, ÚFF!!!

Ég hef aldrei upplifað önnur eins stress og þreytujól! Síðasta prófið mitt var 20. des og þá átti ég mestallan jólasnúninginn eftir og fullt af vinnu en þetta hafðist. Svona að mestu leyti að minnsta kosti. Reyndar náði ég ekki að senda öll jólakortin sem ég ætlaði mér að skrifa og senda og vona að fólkið, sem ekki fékk kort en átti von á því eða vonaðist eftir því, fyrirgefi mér náðarsamlegast... En ég hafði það nú mjög gott fyrir jólin, þær stundir sem ég hafði fyrir sjálfa mig og mína, samt er ég einhvern veginn enn að bíða eftir jólafríinu mínu, finnst eins og það hafi ekki komið. Sem er náttúrulega nokkurn veginn satt því eftir að prófum var lokið þá tók bara vinnutörn við.

Anyway, ég er enn á lífi og skólinn byrjar von bráðar aftur og þá fer maður nú að vera reglulega í tölvusambandi og fer að blogga af krafti. Alla vega að blogga...

20. des. 2003

BÚIN!!!!!!!!!

Jess! Ég er búin í prófum og prófstressi þetta árið en við tekur ekki minna stress, nefnilega jólastressið! Ég á eftir að skrifa öll jólakort, kaupa allar jólagjafir (og ákveða flestar), baka, klára að flytja, skreyta (efast um að það verði gert) og vinna fullt! Og ég á ekki frí fyrr en 26. desember...

GLEÐILEG JÓL TIL YKKAR ALLRA OG HEYRUMST SÍÐAR!

9. des. 2003

...UPP TIL AÐ ANDA

jamm, er komin upp til að anda eftir einangrun og innilokun síðustu daga vegna ritgerðarskrifa og próflesturs. Reyndar bíður mín annað eins næstu daga þar sem að það er bæði próf og ritgerð á föstudaginn... En ég get alla vega leyft mér að anda aðeins í dag og skoða mannlífið utan fjögurra veggja heimilis míns!

I'M ALIVE!

4. des. 2003

SVONA Á FÓLK AÐ VERA!

Stundum er ég svo hissa hvað er til mikið af góðu fólki á Íslandi! Það er kannski ljótt að segja þetta en fólk á Íslandi er stundum soldið mikið upptekið af sjálfu sér. Nennir ekki að hleypa manni í bílaröðum ef maður á ekki réttinn og svoleiðis... En svo er til svona fólk eins og ókunna konan í Mosó sem sendi mér myndirnar um daginn.

Fyrir nokkrum vikum þá hitti ég aðra góða konu og mig langar að segja frá því líka. Þá var ég að versla fyrir vinnuna mína eins og svo oft áður, með algjörlega yfirhlaðna innkaupakerru. Þið, mínir dyggu og trúföstu lesendur, munið eftir konunni sem ég sagði frá um daginn, sem ranghvolfdi í sér augunum og varð bara þreytt á að horfa á mig en konan sem ég hitti á kassanum í þetta skiptið var ekki svoleiðis, ónei! Þessi var næst á eftir mér í röðinni með 'eðlilegt' magn af vörum og þegar búið var að skanna allar mínar vörur, þá var barasta heilt fjall á hinum endanum á 'afgreiðslukassaborðinu' (eða hvað maður kallar nú þessi færibandaborð) og ég stóð sveitt og pakkaði í kassa og poka eins og óð manneskja, til að vera sem minnst fyrir og í sem stystan tíma líka. Ókunna konan tók sig barasta til og hjálpaði mér að raða í pokana! Þetta hef ég aldrei upplifað áður. En svona á fólk að vera!

Takk fyrir það!

og eitt enn... ég stóðst ekki mátið og setti inn hlekk hérna til hliðar, inná síðu sem ég hef verið nokkuð dugleg að skoða í haust og hefur hjálpað mér mikið í heimaverkefnunum mínum. Kannski set ég inn fleiri hlekki síðar ef ég finn meira nammigott á veraldarvefnum...

3. des. 2003

flutt!

Jamm, ég er flutt. Ekki besta tímasetningin hjá mér en ég er víst ekki þekkt fyrir góðar tímasetningar á flutningum... Það er ágætt að vera komin á stað þar sem að maður hefur allt plássið útaf fyrir sig og getur verið eins súr á morgnana eins og maður vill án þess að eiga á hættu að sýra umhverfið í kringum sig...

Hitt er verra að það er enn ansi mikið af kassadóti hjá mér. Kassar sem þarf að henda, kassar sem þarf að taka uppúr, kassar með dóti sem þarf að fara í gegnum og henda eða setja niðrí geymslu. Ég hef þá allavega eitthvað að gera á milli jóla og nýárs!

Það sem böggar mig hins vegar mest er að ég er ekki enn búin að læra á nýja heimilið mitt eða að finna staði fyrir litlu hlutina mína eins og veskið, lyklana og budduna. Ég er nefnilega frekar (lesist: mjööög) vanaföst manneskja að eðlisfari þannig að litlu hlutirnir mínir eiga alltaf sinn stað hvert heima hjá mér. Eða kannski 2-3 staði hvert. Staði sem ég legg þessa hluti frá mér þegar ég kem heim og svo finn ég þá þar þegar ég fer út næst og þarf þá ekkert að hugsa um hvar hlutirnir séu. Nema svo ólíklega vildi til að ég hefði lagt hlutina frá mér á ókunnugan stað. Anyway, af því að buddan mín hefur ekki öðlast sinn fastastað ennþá, þá fór ég út án hennar í dag og sit núna peningalaus og svöng uppí skóla og er að læra (og blogga). Það besta við þetta er að ég veit sko alveg nákvæmlega hvar buddan er, í þessum skrifuðu orðum, en ég gleymdi bara að taka hana með mér í dag...

Og ég sem ætlaði að vera svo dugleg í pásunni minni og drífa mig í sund!

27. nóv. 2003

SMÁ ÓMAK OG STÓR GLEÐI

Þegar ég kom heim seint í gærkvöldi eftir mjög langan dag beið mín eftirfarandi bréf:

Blessuð Elísabet
Mér er sagt að þú hafir verið landvörður við Álftavatn í sumar. Ég tók þessar myndir í brjálaðri rigningu og þrumuveðri, foreldrar barnsins voru greinilega vinafólk þitt.
Getur þú komið þessu áleiðis, svona að gamni bara?
Kveðja,
Helga

Meðfylgjandi voru 2 myndir af Árna Gunnari “vinasyni” mínum í pollagalla að hoppa í pollum.

Mér finnst þetta alveg frábært framtak hjá ókunnugri konu og þakka henni kærlega fyrir, hvar sem hún er! Svona á fólk að vera!

Ása Lára, ég er á leiðinni til þín með myndirnar...

26. nóv. 2003

SMÁAUGLÝSINGAR DROTTNINGARINNAR...

Eins og sumir vita en aðrir ekki, þá er ég að fara að flytja! Tími til kominn að maður stingi endanlega af úr foreldrahúsum, langt komin á þrítugsaldurinn!!! Ég hef nú gert þetta nokkrum sinnum áður og á ýmislegt en alls ekki allt, hence the smáauglýsingar...

Ég auglýsi hér með eftir eftirfarandi hlutum, gefins eða fyrir slikk:
- eldhússtólar (2-4)
- skrifborðsstól
- sófaborð
- rúm
- þvottavél

Ef þið, kæru lesendur, eigið eitthvað af þessum hlutum en hafið samt ekki þörf fyrir þá, endilega hafið samband við mig... Netfangið er ellamaja@hotmail.com

DRAUMUR UM LANDROVER/NÁMU

Mig dreymdi draum í fyrrinótt um það að ég hefði keypt mér Landrover, skipt Rauðkunni minni út fyrir stóran, dökkan Landrover/Námu og var ægilega ánægð með það. Amk til að byrja með. Svo þegar ég vaknaði daginn eftir (í draumnum) þá fékk ég nú hálfgert sjokk yfir þessum bílaviðskiptum mínum og var með þvílíkar áhyggjur af greiðslubyrðinni og þess háttar og var eitthvað að vandræðast með það hvernig ég ætti að láta þessi viðskipti ganga tilbaka og fá Rauðkuna mína aftur.

Það besta var samt þegar ég vaknaði (í alvörunni) í gærmorgun, þá var ég ekkert viss hvort ég væri búin að kaupa mér Landrover/Námu eða ekki...

Reyndar fór ég í leiðinda-/letikasti á bílasölurúnt með bróður mínum um daginn. Ekki til að skoða 'Námur' heldur til að skoða súkkur. Það flottasta sem ég sá á þessum rúnti var samt silfurlitaður Twingo. Rosalega flottur! En ég er víst ekkert að fara að skipta um bíl...

PS. Best ég útskýri þetta með 'Námuna'. Þegar ég var lítil og átti heima í Þorlákshöfn, þá var pabbi minn að vinna í námu og keyrði um á Landrover. Hann kom stundum heim á daginn og sagði við mig:
"Viltu koma með útí námu?"
Ég vildi það auðvitað og fór með honum útí bíl og svo rúntuðum við útí námu og heim aftur. En fyrir mér var náman bíllinn en ekki náman. Nokkrum árum seinna, þegar ég var 6 eða 7 ára lenti ég í hörkurifrildi við besta vin minn um það hvort Landrover gæti líka heitað Náma eða ekki... Það er óþarft að taka það fram að mér fannst hann mjööög vitlaus að vita ekki að Landrover héti líka Náma!

21. nóv. 2003

AUGLÝST EFTIR FÉLAGSSKAP!

hæ, ég er að læra í bókhlöðunni og vantar svo afsökun til að stinga aðeins af og gera eitthvað annað. Er ekki einhver sem á leið hjá sem langar að fá sér kaffisopa með mér...?

19. nóv. 2003

ÍSLENSKUKENNARI Í BÓNUS

Ég gerði vikuinnkaup fyrir vinnuna mína í gær í Bónus í Smáranum. Þetta fellur af og til í minn hlut, ágætt að fá tækifæri til að breyta um umhverfi í vinnunni. Þessar innkaupaferðir minna mig alltaf svolítið á það þegar ég var að versla inn í ISO fyrir Sørensen-fjölskylduna á Exnersvej 36 um miðjan síðasta áratug. (Erna hefur rétt fyrir sér, það er bara nokkuð gaman að skrifa svona!)

Ég hef hitt ótrúlegasta fólk í þessum verslunarleiðangrum; gamla vinnufélaga, skólasystur úr gaggó og fleiri. Í gær hitti ég móðurbróður minn sem sagði mér að fara nú að kíkja í heimsókn og svo hitti ég gamla íslenskukennarann minn úr menntó. Hann kom mér algjörlega á óvart með því að þekkja mig með nafni því það eru liðin rúm 8 ár frá því að ég útskrifaðist sem stúdent! Ég flýtti mér náttúrulega að segja að ég væri svona nokkurn veginn að feta í fótspor hans, með íslenskunáminu. Hann bauð mér þá bara að koma og taka við kennslunni af sér þegar hann hættir. Ég afþakkaði pent og sagðist ekki hafa þolinmæði í kennslu...

Annars er gaman að hitta fólk sem maður hefur ekki séð lengi í þessum innkaupaleiðangrum. Sér í lagi rétt áður en maður fer á kassann því þá er maður búinn að yfirhlaða innkaupakerruna og er kannski með hátt í 20l af mjólk, 10l af súrmjólk/jógúrt, 4 stór brauð, 6-8 kg af kartöflum og grænmeti, kjöt, og álegg eftir því. Þá hef ég upplifað svona 'senaríó':

Það er litið á mig og heilsað, svo er litið á innkaupakerruna mína og á mig aftur, brosað vandræðalega og sagt:
“Komin með stóra fjölskyldu, ha?”

Best fannst mér nú konan (alveg ókunnug) sem var á undan mér á kassanum um daginn. Hún leit á mig vorkunnaraugum og sagði með uppgjafartón í röddinni:
“Þetta er nú ekki fyrir eina manneskju að gera öll þessi innkaup.”

Og hún hefur eflaust hugsað með sér að ég ætti nú ansi leiðinlegan mann og/eða fjölskyldu að nenna ekki með mér í búðina. Ég brosti bara og sagði að þetta væri fyrir vinnuna. Hún dæsti bara og sagði:
“Því síður fyrir eina manneskju.”

Ég held að hún hafi bara orðið þreytt á að fylgjast með mér.

16. nóv. 2003

TODMÓ/SINFÓ OG FYRSTA JÓLABOÐ ÁRSINS

Það var í dag hjá mér. Í vinnunni. Það er nefnilega venjan að bjóða fjölskyldum íbúanna okkar til smá jólaveislu og fólk hefur yfirleitt nóg að gera í desember þannig að við færðum þetta bara fram í nóvember. Þannig að ég var sem sagt að koma úr jólaboði þar sem á borðum var hangikjöt með öllu tilheyrandi og að sjálfsögðu maltesín. Smá forskot á jólastemmninguna.

Bara svo það sé á hreinu, þá mætti Todmó/Sinfó ekkert í veisluna heldur ætlaði ég bara að bæta örlitlu við tónleikaumfjöllunina mína hérna. Ég las nefnilega í Mogganum í gærkvöldi að tónleikarnir voru teknir upp og þessi sjónvarpsstöð ætlar að sýna þá á nýársdag. Þannig að þið sem misstuð af þessu læf eða í rúbartinu á föstudag, þið hafið sjens að ná þessu á nýársdag. Bara að fylgjast með sjónvarpsdagskránni...

15. nóv. 2003

TÓNLEIKARNIR

...voru alveg FRÁBÆRIR! Vei ykkur sem ekki höfðuð áhuga á að koma eða voruð í útlöndum/á leið til útlanda/úti á landi! Þið misstuð sko af miklu. Nema að þið hafið hlustað á beina útsendingu á Rás 2. Sem ég vissi reyndar ekki af fyrr en eftir tónleikana því annars hefði ég auglýst hana hérna.

Í dag er laugardagur og ég er að fara að læra. Gangi mér vel!

14. nóv. 2003

VINNUTÖRN LOKIÐ... Í BILI...

Jæja, þá er ég búin með vinnutörnina í bili. Þeas í gær var ég að vinna 9. vaktina á 11 dögum og það er soldið mikið þegar maður er bara með 60% starfshlutfall. Svo var mér boðið að taka aukavakt í dag en ég afþakkaði það. Ég hefði bara endað með því að standa á garginu því þolinmæði mín gagnvart skjólstæðingum mínum í vinnunni er komin í þrot. Ég þarf virkilega á þessum 4 frídögum að halda til að hlaða batteríin að nýju. Og læra. Og læra. Og læra.

Jamm, það er nebblega ný vinnutörn hafin á hinum vinnustaðnum mínum sem er eiginlega aðalvinnustaðurinn minn, hvort sem fólk trúir því eða ekki... Fram til 9. desember þarf ég nefnilega að skrifa 2 ritgerðir og læra fyrir 1 munnlegt próf og 1 skriflegt próf, þannig að ég hef nóg að gera. Núna er ég einmitt á leiðinni út í Hlöðu að læra.

Í kvöld ætla ég samt að skemmta mér, er að fara á þessa tónleika!

11. nóv. 2003

Ég er EFTIRLÝST...

tja, eða amk eftirsótt. Eða, ég var það alla vega eitt augnablik í morgun. Bankinn á Barónsstígnum hringdi nefnilega í mig og bað mig að koma og leggja inn. Ég varð við þeirri ósk og fór í hádeginu, beint eftir tíma.

Það er alltaf svolítil stemning yfir þessu og allir eru svo þakklátir. Svo fær maður fullt af veitingum; rúsínur og saltkex áður en blóðþrýstingurinn er mældur og hlaðborð þegar búið er að stinga mann og láta blóðið renna.

Í dag voru mér svo gefnar járntöflur og sagt að ég mætti ekki koma aftur fyrr en eftir fimm mánuði. Já, og ég fékk líka litla nælu sem er blóðdropi sem á stendur talan 5. Það stendur fyrir 5 blóðgjafir. Svaka huggulegt. Reyndar er ég búin að gefa blóð sex sinnum því ég gaf fyrst blóð í Danmörku, á Frederiksberg Hospital árið 1998. Þar var engin kaffistofa til að setjast inn á eftir blóðgjöfina, heldur var manni bara boðið uppá gosdrykk eða bjór eftirá. Danirnir alltaf samir við sig.

Athugasemdirnar komnar í lag. Án þess að ég hefði aðhafst nokkuð. Kannski voru þær bara ekki vaknaðar í morgun...?

Bumbólfur, MjúkiPúki eða... eða...

Mig langaði bara að láta ykkur vita að ég veit hvað Bumbólfur heitir en þar sem að ég veit ekki hversu opinbert það er orðið þá ætla ég ekkert að auglýsa það neitt nánar hér. Kannski að koma því á framfæri að ég notaði frekar kvikindislegt trikk til að fá nafnið. Það var einhvern veginn svona:

"Aron, hvað á litla barnið að heita?"

Og hann sagði mér það. HÚRRA fyrir eldri bræðrum!!!

Ég vil samt taka það fram að það var móðir bræðranna sem laumaði þessari hugmynd að mér...

og nú er ég fúl því kommentin mín eru horfin en ég hef ekki tíma til að rannsaka það nánar því ég er uppí hlöðu að læra. Á að flytja nokkur orð um Ólaf Þórðarson hvítaskáld á eftir. Fyrir þá sem ekki vita það, þá skrifaði hann Þriðju málfræðiritgerðina.

Þetta var fróðleiksmoli dagsins. Ef þið viljið fleiri fróðleiksmola, þá mæli ég með þessum fyrirlestri á morgun!

10. nóv. 2003

HELGIN

Helgin var fín. Föstudagurinn var rólegur enda ekki vanþörf á eftir mikla vinnutörn og verkefnaskil. Reyndar er vinnutörnin enn í gangi, 9 vaktir á 11 dögum... og ég sem þykist bara vera í 60% vinnu!

Á laugardaginn flæddi bjór og annað áfengi útum allt og yfir alla á Geysi og ég kom heim með tvær fjólubláar tær eftir góð tilþrif á dansgólfinu. Ég ætla aldrei aftur að dansa við Laugalandvörðinn því hann er með mjög harða fætur! Ég er ennþá ánægð með sjálfa mig fyrir að hafa sleppt því að fá mér gin&tónik... Bjórinn, kampavínið, whiskeyið, rauðvínið og koníakið var alveg nóg!

Það var gaman á laugardaginn en ekki eins gaman í gær. Vaknaði eins og mín er von og vísa eftir 5 klst svefn og var svona sæmilega hress en tókst þó að sofa aðeins lengur. Vaknaði aftur sæmilega hress en langaði sko ekki í neitt að borða. Þegar komið var í bæinn var heilsunni eitthvað farið að hraka enda sterk þörf á því að leggja sig aftur en það var ekki í boði því mín átti að mæta í vinnu kl. 15.
Það var ekki gaman.

Talaði aðeins við Bestaskinnið í gær. Hún var hress og var að tala um hvað það yrði nú gaman að fara að djamma og djúsa þegar leidíin lætur sjá sig á Fróni. Ég sagði bara:

“Nei, aldrei aftur fyllerí!”

En það er aldrei að vita nema maður skipti um skoðun á þessum vikum sem eru til jóla...

8. nóv. 2003

AFSLÁTTARKJÖR

Akkúrat núna er ég að bíða eftir því að risinn úr Hvanngili komi og sæki mig (á eðaljeppanum en ekki Fjallabakstuðrunni) því við, ásamt fleirum, erum á leiðinni í Fjallabaksteiti á Geysi!
Ég hlakka svo til!!! Það verður svo gaman!!! Hitta allt þetta hálfruglaða og kolruglaða lið aftur. Það verður spennandi að sjá hver fær heiðurinn af því að setjast í nuddsætið hjá Hvanngilsrisanum... Hann vildi amk aldrei nudda mig í sumar því ég var samstarfskona...

En að öðru, ég fór í vax á fimmtudaginn því mig langaði að vera dömuleg og fín með engin hár á leggjunum. Ég var nefnilega orðin alveg svakalega loðin (búin að safna samviskusamlega í 6 vikur!). Alveg sama hvað María vinkona segir, þá var ég orðin kafloðin og ódömuleg! Nema hvað, þegar vaxmeðferðinni er lokið segir skvísan:

"Heyrðu, ég get ekki verið að rukka þig fullt gjald því þetta er svo lítið. Ég gef þér smá afslátt!"

Ég var svo aldeilis hissa! Hef aldrei heyrt að maður fái afslátt af vaxi af því að maður er með svo lítið af hárum! Og ég sem hélt að ég væri svo svakalega loðin... María vinkona hefur þá kannski rétt fyrir sér þrátt fyrir allt!

Ég þakkaði bara pent fyrir mig og fór...

5. nóv. 2003

nútíð, FRAMTÍÐ og nánasta framtíð

Á sama tíma og það er frekar mikið að gera hjá mér, bæði vinna og skóli, get ég ekki hætt að spekúlera og velta mér upp úr alls konar ótímabærum hlutum, eins og t.d. hvað ég eigi að gera næsta vetur.

Ekki að það sé neitt vitlaust að velta framtíðinni fyrir sér en þar sem ég þarf m.a. að skrifa og skila BA-ritgerð í vor, sem er mun nær í tíma og rúmi, þá væri kannski gáfulegra að fara að negla niður um hvað ég ætla að skrifa og fara að eltast við heimildir... En ónei, mín er sko ekki mikið að huxa um það eins og stendur, heldur um hugsanlegt framhaldsnám og m.a.s. farin að bögga kennara og nemendur útum allan bæ með e-maili útaf því!

Ég ætti frekar að geyma þessar orkufreku pælingar þangað til í jólafríinu (lesist jóla"fríinu"), sér í lagi þar sem umsóknarfresturinn er til 15. febrúar.

já, nú er ég sko alveg að fara yfirum eftir eigið bloggfærsluleysi undanfarinna daga og get engan veginn hamið mig! Er samt að spá í að skokka niður á steríliseruðu kaffistofuna í Árnagarði og næra mig aðeins áður en ég fer að gera það sem ég kom til þess að gera. Nebblega LÆRA!

Danskir dagar

Hmmm... þetta er farið að líkjas aumingjabloggi. Hér hefur ekkert verið skrifað í rúma viku og fólk farið að tuða í mér. Ég óskaði ekki einu sinni afmælisbörnum síðustu viku til hamingju með daginn, ja fussumsvei! Hér kemur kveðjan þótt seint sé:

TIL HAMINGJU MEÐ AFMÆLIÐ, JÓHANNES, ÁSTA OG JÓEL!

Ætli það sé ekki best að bæta Lauren við þennan lista en mér var einmitt boðið í afmæli til hennar síðasta laugardag. 22ja ára. Hún er vinkona Davids og er frá Kanada eins og hann. Það rann upp fyrir mér þarna um kvöldið að ég var elst af öllum á staðnum, ekki það að ég fyndi fyrir því, mér fannst bara fyndið að átta mig á því. Ég upplifi mig alltaf sem rúmlega tvítuga en svo bregður mér þegar ég hitti fólk sem er rúmlega tvítugt því þá átta ég mig á því að ég er frekar tæplega þrítug en hitt...

Alla vega, hjá mér hefur lítið gerst undanfarið. Nema að það hefur verið einhver danskur andi yfir vötnum hjá mér. Talaði dönsku tvær helgar í röð! Ikke så slemt, hva?

Það kom soldið á óvart fyrri helgina því þá var ég í Thanksgiving-hittíngi með Kanadabúum á Íslandi (sat m.a.s. til borðs með sendiherranum) og þar var dönsk stelpa sem ég talaði aðeins við. Sú er að vinna fyrir danska gæjann með grænlensku sleðahundana fyrir austan.

Síðastliðinn laugardag fór ég svo á rúntinn austur á Þingvöll með Klöru vinkonu minni og Anne-Marie, danskri vinkonu hennar og sagði þeim með innlifun frá 'lovsigemanden', flekakenningunni og fleiru. Svo köstuðum við dönskum krónum með gati í Nikulásargjá.

Ekki nóg með að hafa hitt þessar dönsku skvísur heldur var ég eitthvað að gramsa í gömlum segulböndum (frábært orð!) í síðustu viku og dró fram eitthvað sem ég mundi ekki alveg hvað var. Stakk þessari snældu (annað frábært orð!) svo í fínu græjurnar í henni Rauðku minni og viti menn!

Fyrsta lagið sem ég heyrði var Han får for lidt með Østkysthøstlers. Hver kemst ekki í stuð með þessu?

Han spejler sig i spejlet for hans spejl er hans ven
Han kender hud og kinder ud og ind og ud igen
Han holder ormegården nede, sætter bumser under pres
med pincet er det nemt at holde brynene på plads
Skægget står totalt som var det målt med lineal
Han gør hvad han kan gøre for at ligne Georg Mikael
.
.
.
Han fatter ikke folk de ikke synes han er fed!

Han får for lidt,
det er derfor han er sådan
Alt for lidt kissemisse, alt for meget hånd

Mas. David sem skilur ekki orð í dönsku, sagði að þetta væri ekki svo slæmt!

Og eitt enn, kannski er það bara ég en ég hef tvisvar átt leið í nýju 10-11 búðina í Stóragarði og sú búð minnir mig bara á 7Eleven búðirnar í kóngsins Køben...

27. okt. 2003

RauðvínsStelpuKvöld?

Ekki furða þótt maður setji spurningarmerki við þetta því Davíð, maðurinn hennar Jamie (a.k.a. Ms. USA í þarsíðustu færslu...), hann tók þátt í gleðinni með okkur. Það var alls ekkert verra. Minn Davíð var líka velkominn en bar við feimni enda hringdi ég í hann á síðustu stundu og hann var líka búinn að plana annað...

Rauðvínsstundin var góð en hjá mér hófst hún þó á litlum bjór... Ég er stundum soldið öfugsnúin. Við sátum og kjöftuðum um heima og geima og hlógum líka mikið. Við vorum þó sammála um það að þetta var soldið bad tæmíng þar sem þetta var okkar vinnuhelgi og við áttum allar að mæta í vinnu daginn eftir. Næst ætlum við að hafa svona hittíng þegar það er EKKI okkar vinnuhelgi og þá getur maður vakað lengur, talað meira, hlegið meira og umfram allt drukkið meira!

Best ég bæti því við að óskað er eftir Davíð, David, Dabba eða Dave sem er á lausu fyrir hana Hörpu vinkonu. Hana langar svo að fitta inní hópinn með mér og Jamie...

TIL HAMINGJU MEÐ AFMÆLIÐ, EMIL ÞEYR!


Hann er sko stór strákur og er orðinn tveggja ára! Geri aðrir betur!

Höhömm... ekki það gáfulegasta sem ég hef sagt... En til hamingju með daginn, Emil Þeyr!

24. okt. 2003

LEYNIGESTIR


eru farnir að dreifa sér... upphaflegi leynigesturinn (sem þó hefur alltaf komið fram undir nafni) hennar Brynku er farinn að dreifa vísum til mín.

Ég þakka heiðurinn!

En núna er ég á leiðinni í stelputeiti með nuddaranum mínum - jamm, ég er búin að eigna mér hana - og Ms. USA (hún er líka að vinna með mér). Það ku víst vera rauðvín og ostar í boði og ég vona svo innilega að þetta rauðvínsstelpukvöld endi ekki eins og hið síðasta... sem þó var mjög skemmtilegt!

HAVE A NICE WEEKEND!

NUDD ER...


Ég vaknaði á miðvikudagsmorguninn og fann það að ef ég gerði ekki eitthvað í mínum málum þá yrði ég komin með hálsríg á næstu dögum. Ég var svo stíf í hálsinum, sérstaklega hægra megin. En ég er nú það heppin að það er lærður nuddari að vinna með mér á sambýlinu og ég var einmitt á leiðinni á starfsmannafund þar sem ég myndi hitta hana.

Þar sem ég var þar að auki bullandi kvefuð, frekar sljó og hægvirk í öllu (varð t.d. alveg kúguppgefin að labba uppá 4. hæð í Bókhlöðunni síðar um daginn... og notabene það er bara af annarri hæð uppá þá fjórðu (fyrir þá sem ekki þekkja til þar...)) þá mætti ég eilítið of seint á fundinn. Strax í kaffipásunni snéri ég mér að henni og spurði hvort hún gæti ekki komið í veg fyrir yfirvofandi hálsríg. Hún hélt það nú og fór eitthvað að þreifa á hálsinum á mér.

“Já, vá! Þú ert með svaka hnút hérna. Hvað hefurðu verið að gera?”

“Ekkert.”

Svo stóð hún þarna og ýtti punktinn. Það var ekki gott. Það var VONT. Ekki svo vont að ég fengi tár í augun. Ónei, verra en það, heldur fann ég til svona sársaukaógleði. Svo ákváðum við að það væri best að ég kæmi í almennilegan nuddtíma til hennar daginn eftir.

Ég var nú aðeins lausari í hálsinum eftir þetta pot hennar og dreif mig til hennar í gær. Það var líka vont. OG GOTT. Þetta var ferlega notalegt; að liggja á nuddbekknum, með Nick Cave í græjunum (ekkert svona róandi panpipe-væl) og láta hana “laga” mig. Svo fann hún barasta fullt af aumum punktum á stöðum þar sem ég hreinlega vissi ekki að ég væri eitthvað aum á... Hún skammaði mig líka fyrir að vera ekki nógu dugleg að teygja á vöðvunum eftir æfingar... Eitthvað sem ég vissi svosem alveg að ég mætti vanda mig betur við en það er alltaf erfiðara að heyra einhvern annan skamma mann... En samt alveg ótrúlegt hvað hún gat sagt mér eftir að hafa “káfað” aðeins á mér... Ég er alveg sammála því sem einn kúnninn sagði víst við hana:

“Það mætti halda að þú værir með GPS-tæki í fingrunum. Þú finnur alla aumu punktana ‘med det samme’!”

Svo fór ég í ræktina í dag og lyfti aðeins og vandaði mig við að teygja vel á eftir æfinguna. Sem var mjög gott. En mér fannst þó furðulegt að finna hvað ég fann öðruvísi fyrir vöðvunum við æfingarnar í dag en vanalega og þá sérstaklega vöðvunum sem hún fann að væru eitthvað stífir en ég hafði eiginlega ekki hugmynd um. Hún hefur greinilega losað um eitthvað...

Takk fyrir þetta, Harpa!

ps. ég ætla aftur til hennar í næstu viku... :o)

22. okt. 2003

VERKEFNI DAGSINS


Skjöldungr, fórt of óþjóð eldi.
Auðit vas þá flotnum dauða.
Hæstan kynduð, hlenna þrýstir,
hyrjar ljóma suðr at Jómi.
Hvergi þorði hallir varða
heiðit folk í virki breiðu.
Buðlungr, unnuð borgar-mönnum
björtum eldi stalldræp hjörtu.

Þetta er 13. vísa Magnúsardrápu hrynhentrar eftir Arnór jarlaskáld Þórðarson frá miðri 11. öld. Verkefni mitt er að greina þessa vísu, finna varðveislu hennar, útskýra notkun, finna tilvísanir í goðsögur og/eða kristið myndmál ef þær finnast, útskýra myndmál og kenningarnar og svo framvegis...

Datt í hug að skella þessu inn til að leyfa ykkur að fylgjast með því hvað ég er að bralla, bullandi kvefuð, þessa stundina...

Ef þið hafið eitthvað um vísuna að segja; endilega látið ljós ykkar skína!

20. okt. 2003

!RULLUF


Mér var boðið í mat á laugardagskvöldið sem var í sjálfu sér mjög sakleysislegt og gott. Byrjaði mjög vel og maturinn var mjög góður. Kjúklingur í appelsínugúmmelaði, namminamm! SKÁL FYRIR KOKKINUM!

Kvöldið endaði líka mjög vel. Morguninn eftir. Þrátt fyrir að hafa uppgötvað það einhvern tímann um fjögurleytið í miðju Austurstrætinu, þegar ég ætlaði að fara að finna mér leigara heim, að ég var algjörlega auralaus! Ekki með krónu á mér og ekki heldur eitt einasta plastkort!!! Nú máttu góðu ráðin alls ekki vera of dýr...

Mín fyrsta hugmynd var að labba til Monopolizten og fá að sofa á sófanum hjá honum en það kallaði á þessi viðbrögð hjá Bestaskinninu:

"NEI! Þú gerir það sko alls ekki!!!" (með 'ég ræð!'-augnaráðinu...)

"Ha? Akkuru ekki?" (mín þreytt, vildi bara fara að sooofa...)

"Hvað heldurðu að David segi?!?!!? Ég borga bara leigubíl fyrir þig heim!"

Og þannig varð það. Reyndar gaf hún mér fyrst að borða; djúsí, grísí Hlöllabát og kók. Takk fyrir matinn!

Kvöldið/nóttin var sem sagt mjög gott þrátt fyrir að hafa misst sjónar af Brynkunni í myrkviðum miðbæjarins og að hafa ekki fundið hana aftur. Fram að því vorum við samt búnar að drekka rauðvín í lítratali, bjútífúlla okkur fyrir framan stóra spegilinn á baðinu hennar Brynku, borða góðan mat, skrifa bréf til LadyMary í UK og nú er það á mína ábyrgð að koma því í póst... Já, og svo sendi ég örugglega skrilljón SMS og spjallaði á netinu við einn af Einar-unum sem ég kynntist í sumar (þeir voru nákvæmlega 3!). Netspjallið var nú ekki af því að stelpurnar væru ekki nógu skemmtilegar fyrir mig, heldur voru þær bara í einhverri öfga bjútífúlliseríngu sem ég nennti ekki að taka þátt í... Enda voru þær miklu fallegri en ég!

Niðurstaðan: 1,33 rauðvínsflaska á mann er fullmikið af því góða! ...en samt ekki alveg nóg til að drekkja (ó)blessuðum kvefbakteríunum sem hafa tekið sér bólfestu í mér...

17. okt. 2003

meira af Bumbólfi...


fyrir þá sem vilja vita og sjá meira, þá er tilvalið að kíkja á síðuna hans Arons Fannars en hann er einmitt stóri bróðir Bumbólfs...

Ég var að koma úr heimsókn frá Bumbólfi og hann er bara sætur!

15. okt. 2003

BUMBÓLFUR...


er kominn!!! Ég er svo glöð og hlakka svo til að sjá hann loksins! Er bara búin að bíða síðan í febrúar!!!

TIL HAMINGJU MARÍA OG JÓHANNES OG ARON FANNAR!!!

Núna eruð þið orðin STÓR fjölskylda!

... eða læra?!


Þetta var nú frekar glatað móment sem ég átti í morgun. Vissulega stakk ég af úr tölvuverinu til þess að forðast leitandi seiðmagn alnetsins og andaði að mér fersku sjávarloftinu á leið minni eftir Ægissíðunni til Lilju í Sörlaskjólinu. En viti menn! Lilja var bara alls ekki heima og mér varð það ekki ljóst fyrr en ég fékk sms frá henni þegar ég var um það bil að beygja inn Sörlaskjólið...

Nú voru góð ráð dýr því mig langaði engan veginn að trítla í skólann aftur til að fara að læra! Ég er bara svo heppin að ég á aðra vinkonu í Vesturbænum og það vildi svo vel til að hún var heima. Reyndar var hún á leiðinni í vinnuna þannig að kortér í tólf var ég sest inná kaffistofuna í Háskólabíói og byrjuð að læra!

Mér var nær!

læra eða...?


ég veit ekki hvort ég á að sitja lengur hér í tölvuverinu og þykjast læra eða hvort ég eigi að fá mér göngutúr og kíkja í hádegismat til mæðgnanna í Vesturbænum... Miðað við lærdómsafköstin síðasta klukkutímann en þau eru ENGIN þá hugsa ég að það sé heilbrigðara að rækta vinina í Sörlaskjólinu en að sitja hér lengur í loftleysi og tölvusuði...

Lilja, hitaðu kaffi því hér kem ég!

14. okt. 2003

HHMMPFFHHH!!


Ég held nú að s u m i r hefðu átt að tuða meira yfir athugasemdaboxleysi mínu. Ekki eitt einasta komment komið frá þessum skvísum og heil vika síðan athugsemdirnar fóru að virka!

HHMMPFFHHH!!!

TÍMAÞJÓFUR!


Ég komst að því í gær þegar ég ætlaði að vera svooo dugleg að læra að bloggið er bölvaður tímaþjófur! Og ekki orð um það meir!!!

13. okt. 2003

helgarblogg


hmm... er ekki skylda á mánudegi að hafa svona helgarblogg?

Ég átti rólega og góða helgi; vann á föstudagskvöldið en kíkti svo aðeins á djammið en var ekkert lengi úti. Átti letilegan laugardag; fór seint á fætur, slæptist aðeins í bænum, slæptist svo heima hjá mér. Kvöldinu eyddi ég svo í sjónvarps-/vídeógláp með einum þreyttum sem sofnaði yfir sjónvarpinu í fanginu á mér.

Sunnudagurinn var tekinn nokkuð snemma og byrjað í pallatíma hjá Jóhannesi fyrir hádegi. Það var alveg svakalega gaman! Þetta eru skemmtilegustu tímar sem ég komist í síðan ég var að æfa í Scala í Köben ’98...

Svo heimsótti ég Maríu vinkonu og klappaði henni á bumbuna en ekkert gerðist. Kvöldinu eyddi ég í að sýna Klemma sumarmyndirnar mínar og skoða myndirnar hans. Það var mjög gaman eða eins og hann orðaði það á sinn pena hátt:
“Ég fæ fjallastandpínu af því að sjá þessar myndir!”

Ég ætti kannski að reyna að koma mér upp myndasíðu svo ég geti deilt þessum myndum og sumarupplifunum með fleira fólki...

BUMBÓLFUR


Ég bankaði uppá hjá Bumbólfi í gær. Eða réttara sagt ég strauk bumbunni og var að vona að Bumbólfur yrði þá alveg jafnóþreyjufullur eftir að fá að hitta mig og ég er óþreyjufull eftir að hitta hann og myndi barasta drífa sig í heiminn til að heilsa mér. En ekkert gerðist. Hann er greinilega ekki eins spenntur fyrir mér og verðandi stóri bróðir sem settist í fangið á mér með sængina sína eftir miðdegislúrinn... Bumbólfi líður greinilega bara vel í maganum á mömmu sinni en held að hún vilji nú fara að sjá framan í hann enda er kúlan orðin mjög myndarleg...

Kannski í kvöld eða á morgun...

jólapróf og kaffistofan í Árnagarði


Próftaflan var birt á föstudaginn. Eins og vanalega er maður annað hvort með fáránlega langt á milli prófa eða alltof stutt! Í mínu tilfelli er alltof langt á milli þessara tveggja prófa sem ég fer í... Fyrra prófið er 9. desember, sem er fínt en seinna prófið er ekki fyrr en á síðasta prófdeginum, nebblega 20. desember!
Alltaf jafngaman að vera til!

Einu sinni var kaffistofan í Árnagarði besta kaffistofan á háskólasvæðinu með sín þungu og ljótu en samt æðislegu seventís-húsgögn en því var því miður breytt í sumar. Núna er bara stál og grátt og plast og kalt og allt, alltof bjart. Enda brá mér svo mikið þegar ég fór á kaffistofuna í fyrsta sinn í haust að ég eiginlega bara bakkaði út og langaði skyndilega ekkert í kaffi eða nokkuð annað! Maður hefur nú látið sig hafa það í haust að fá sér einn og einn kaffibolla og tekið með sér í tíma en nú er svo komið að manni er líka bannað að taka góðu fs-fantana með sér í tíma. Ef maður ætlar með kaffið fram af kaffistofunni þá skal maður gjöra svo vel að nota pappamál! Aaarrrggghhh!!! Ég þoli ekki að drekka kaffi úr plast-eða pappamáli. Vill bara hafa minn leir!
Þessi kaffistofa er að verða komin á alvarlegt unfriendly-stig!

11. okt. 2003

TIL HAMINGJU MEÐ DAGINN, STRÁKAR!


David og Elvar eiga báðir afmæli í dag, báðir orðnir 29 ára. En eru þó ekki tvíburar... Til hamingju með það strákar!

9. okt. 2003

TIL HAMINGJU MEÐ AFMÆLIÐ, MARÍA NÍNA!


Hún á þriggja ára afmæli í dag. Stór stelpa!

41 VIKA


Vinkona mín er barnshafandi. Hún var dagsett 2. október og síðast þegar ég vissi þá var hún ekki búin að eiga. Maður er nú orðinn soldið óþreyjufullur... Þannig að ég hringdi í hana áðan, heim til hennar. Hún svaraði ekki.

"Úúps!" hugsaði ég og hélt að hún lægi kannski sveitt á Lansanum að fæða og þorði varla að hringja í gsm-ann hennar. Ég gerði það samt. Hún svaraði.

"Hæ!" sagði ég "þú ert greinilega ekki á fæðingardeildinni að eiga..."

"Nei," svaraði hún "en ég er á leiðinni þangað..."

"Ha??!?! Í alvöru?!?! Vá, frábært!!! Héddna, þetta er meiriháttar!" Það kom soldið fát á mig...

Hún hló bara og sagðist vera á leiðinni í skoðun... Svona er hún nú alltaf dugleg að hrekkja mig. En ég bíð samt enn spennt eftir litla bumbubúanum...

3. kafli BANKINN


Ég fór í bankann í dag, dró djúpt andann og byrjaði að útskýra. Þegar ég hafði lokið máli mínu þá brosti þjónustufulltrúinn sínu blíðasta og sagði:

"Komdu bara með greiðsluseðilinn til okkar og við borgum kostnaðinn."

Ég brosti líka og þakkaði pent fyrir mig.

8. okt. 2003

RÍKI OG LÁNADROTTNAR


Já, mikið er nú indælt að eiga viðskipti við ríki og lánadrottnara, ekki satt? Hér koma 2 kaflar um mín viðskipti við þessi bákn.

1. kafli GJALDHEIMTAN
Litla, sæta Rauðkan mín er víst ekki alfarið mín því ég er enn að borga af henni og fékk til þess lán hjá Lýsingu. Um síðastliðin mánaðarmót fékk ég svo 2 greiðsluseðla frá þeim; annar var hin týpíska, mánaðarlega rukkun fyrir láninu og greiddi ég hana med det samme en hinn var fyrir bifreiðagjöldunum með tilheyrandi dráttarvöxtum og kostnaði þar sem þau voru á gjalddaga 1. ágúst.

Hmmm, mér fannst það nú ekki alveg passa þar sem ég þóttist vera viss um að þau hefðu verið greidd fyrir mína hönd ásamt öðrum reikningum í mínu nafni sem ég afhenti þjónustufulltrúa í bankanum mínum áður en ég fór á fjöll í sumar. Og mikið rétt, þegar ég fór í gegnum kvittanabunkann minn var þar kvittun fyrir greiðslu á bifreiðagjöldunum.
“Fínt!” hugsaði ég og hélt að þetta kostaði bara eitt símtal til Lýsingar og væri svo afgreitt.

Ég talaði við Lýsingu og fékk þær upplýsingar að bifreiðagjöldin af Rauðku minni væri einungis búið að greiða einu sinni, þeas af Lýsingu þannig að mín greiðsla virtist hafa lent einhvers staðar annars staðar og ég þyrfti bara að tala við bankann minn til að finna út úr því.
“Fínt!” hugsaði ég aftur og hélt að það væri nóg að fara í bankann minn og láta rekja greiðsluna þar.

Ég fór í bankann með kvittunina og talaði við þjónustufulltrúa og vildi vita hvað væri að, af hverju þessi greiðsla væri ekki komin til skila hjá gjaldheimtunni og/eða Lýsingu. Hún var nú ansi skörp og sá að greiðslan hafði farið inn á minni kennitölu til gjaldheimtunnar en ekki í nafni Lýsingar eða á bílnúmeri Rauðku. Það væri þar sem hnífurinn stæði í kúnni.
“Fínt!” hugsaði ég aftur og hélt að smá spjall við gjaldheimtuna myndi kippa þessu í liðinn.

Ég fór og talaði við gjaldkera hjá gjaldheimtunni sem sagði mér það að þessi sexþúsundkall, eyrnamerktur mér, hefði verið lagður inn á opinber gjöld í staðinn fyrir bifreiðagjöld. En ég skulda engin opinber gjöld!
Hvernig stendur á því að þegar maður skuldar ríkinu eitthvað þá draga þeir það beint af launum manns án þess að spyrja hvort það henti manni eður ei en um leið og maður á inni hjá þeim þá sitja þeir á peningunum og borga manni út 1. ágúst ári síðar? Aldrei fær maður tilkynningu um að það hafi borið óútskýranleg greiðsla í nafni manns og að peningurinn verði endurgreiddur med det samme þar sem maður skuldi ekki neitt...
Alla vega, sexþúsundkallinn, eyrnamerktur mér, var fluttur af opinberum gjöldum yfir á bílnúmer Rauðku þannig að þar var kominn inneign vegna þess að bifreiðagjöldin voru þá tvígreidd. Einu sinni af mér og einu sinni af Lýsingu.
“Fínt!” hugsaði ég enn eina ferðina og hélt að eitt símtal í viðbót til Lýsingar myndi afgreiða málið. EN...

2. kafli LÝSING
Ég hringdi í Lýsingu aftur, mjög ánægð með að vera búin að finna hvar greiðslan mín hefði lent og koma henni á réttan stað. Viðmælandi minn þar pikkaði eitthvað í tölvunni og staðfesti það að bifreiðagjöldin væru tvígreidd. Svo pikkaði hún eitthvað meira og sagði:

“Það er kostnaður sem fellur ekki niður og hringdu bara í mig þegar þú færð greiðsluseðilinn og millifærðu beint. Þá losnarðu við að borga dráttarvextina. Þetta eru 1940 krónur.”

“Ha!? 1940 krónur fyrir hvað?”

“Þetta er kostnaður sem Lýsing verður fyrir við að þurfa að innheimta bifreiðagjöldin.”

“Ertu að segja mér að ég þurfi að borga kostnað fyrir að hafa borgað bifreiðagjöldin á réttum tíma?!?!!”

“Já.”

Ég gat nú ekki orða bundist og sagðist hreinlega ekki skilja þetta og gæti engan veginn sætt mig við að borga þetta. Hún vísaði mér að tala við bankann minn þar sem þetta væru þeirra mistök að eyrnamerkja greiðsluna vitlaust. Það verður gaman að sjá hvernig það fer.

Hins vegar er ég nokkuð viss um að minn kostnaður í þessum eltingarleik við sexþúsundkallinn sé farinn að nálgast 1940-krónurnar:
2 símtöl við Lýsingu – símakostnaður, tími
1 ferð upp í banka – bensín, tími
1 ferð niðrí miðbæ – bensín, stöðumælir, tími
+ 1 fyrirhuguð ferð í bankann
+ 1 fyrirhugað símtal við Lýsingu

... to be continued...

FYRSTA SKAF VETRARINS


... var í morgun! Brrrr...

SPONSORED BY...


Ég fór á stúfana í gær og skoðaði gsm-síma. Mér var nefnilega “hótað” um daginn. Hótað því að ef ég fengi mér ekki nýjan síma hið snarasta þá yrði ég (fátæki námsmaðurinn) styrkt til kaupa á nýjum síma! Þessi hótun kom frá Einari vini mínum sem er víst orðinn eitthvað þreyttur á að síminn minn skellir alltaf á þegar við tölum saman. Alveg sama hversu vel eða illa hlaðinn síminn er. Mín tilgáta er sú að símanum mínum sé ekki sama við hvern ég tala frekar en að þetta sé vandamál með rafhlöðuna...

Hins vegar var síminn sem ég ætlaði að kaupa uppseldur og er ekki væntanlegur fyrr en í næstu viku. Kannski er þetta hint frá æðri máttarvöldum um það að ég eigi að halda áfram að hringja í Einar og láta símann minn skella á hann alveg þangað til að hann gefst upp og kaupir nýjan síma fyrir mig. Þá gæti ég haft eftirfarandi skilaboð á talhólfinu mínu:

“Þetta símtal er í boði Monopolizten.”

7. okt. 2003

Saumaklúbbur... eða ódýr sálfræði?


Saumaklúbburinn hjá mér að klárast. Þegar síðasta manneskjan mætti þá vildu allar hinar fara. Kannski af því að hún mætti með karlmann með sér. Viðtökurnar við því voru misgóðar og heyrðist meðal annars þetta:

“Karlmaður í saumaklúbb! Hmmpff! Þetta er bara eins og það sé ráðist inná mann í sturtu!”

Ekki veit ég þó hversu mikil alvara bjó að baki þessum orðum...

Einu komst ég að í dag og það er að ég líkist móður minni að því leyti að mér finnst ekkert gaman að baka. Mér fannst tilhugsunin um að þurfa að galdra fram einhverjar veitingar fyrir kvöldið ekki spennandi. Ég var eitthvað að barma mér við eina vinkonuna (því það var ofurhúsmóðir sem sá um síðasta saumaklúbb og var með svakalegt hlaðborð sem hún made from scratch! Allar þrjár terturnar og heita réttinn líka!). Svarið sem ég fékk var:

“Iss! Þú þarft bara að vera með einn heitan rétt og eina köku.”

Sem mér fannst engin hughreysting. Ég sökka feitt þegar kemur að því að gera heita rétti og mér finnst eiginlega ekkert gaman að baka... Það er kannski vert að taka það fram að vinkonan sem veitti ráðið er tveggja barna húsmóðir úr Vesturbænum!

Svo fékk ég hugljómun! Ég fór bara út í búð og keypti nokkrar tegundir af ostum, kex, brauð, pestó, ólífur og fleira í þeim dúr. Og til þess að geta boðið upp á eitthvað sætt líka þá keypti ég bara 2l af ís, súkkulaðisósu, jarðaber og Nóakropp...

Ég sló í gegn! Og þurfti mas lítið að hafa fyrir hlutunum, bara að leggja þetta fallega á borðið.

Það sem ég lærði í dag var að mér finnst skemmtilegra að elda en að baka!

athugasemdir...


ættu að vera komnar í gagnið núna. So, comment away!

6. okt. 2003

SJÁLFSBLEKKING, OVER!


Ég komst að því mér til mikillar skelfingar í gær að ég er orðin kaffifíkill! Ég hef nefnilega alltaf haldið því fram að ég væri það ekki og að mér fyndist gott að drekka kaffi til að halda mér vakandi ef ég er þreytt/syfjuð. Jú, og líka eftir góðan mat, þá er mjög gott að fá sér bolla af sterku kaffi og annaðhvort súkkulaðibita eða koníaksstaup með...

Ég áttaði mig hins vegar á því í gær að ég er ekkert almennilega vöknuð fyrr en ég er búin að fá fyrsta kaffiskammtinn. Enda hresstist ég um allan helming þegar ég var búin að hella uppá í gær og sötra einn bolla af sterku kaffi. Þá fór ég einmitt að spá í það að ég er ekkert almennilega vöknuð fyrr en fyrsti kaffibollinn hefur runnið niður. Alveg sama þótt ég drífi mig í ræktina og svo sturtu áður en ég fer í skólann því ég bíð alltaf með óþreyju eftir fyrstu frímínútunum til að komast á kaffistofuna og fá fyrsta “skotið”. Þannig er það nú.

Það var ekki auðvelt að rífa sig á fætur rúmlega sjö í morgun eftir að hafa sofið til eitt í gær... sem er enn ein ástæðan fyrir því að mér leiðist að sofa fram yfir hádegi; þá er svo erfitt að rífa sig á lappir á réttum tíma daginn eftir!

5. okt. 2003

BANANAREPUBLIKKEN


Hef verið að dóla mér í hinu og þessu í dag (sunnudagur til leti!) og það hafa svona smám saman verið að rifjast upp punktar úr innflutningspartíinu í gær og mig langar að deila þeim með ykkur, eins og t.d. að meðal umræðuefna var nýjasta Hollywood-trendið; flottar konur með yngri menn og út frá því kom hin frábæra setning:
“Lambakjöt á lakið mitt!”

Í framhaldi af því hófust miklar umræður um stinningu og vandamál drengja/ungra manna með stjórnun hennar. Við skvísurnar fengum góðar lýsingar með leikrænum tilburðum og hlógum mikið. Enda er þetta vandamál sem að við könnumst engan veginn við!

Allt þetta hófst á því að 2 aðilar stóðu í eldhúsinu og borðuðu banana. Undirrituð var annar þeirra. Þetta er í fyrsta sinn sem ég mæti í partí og borða banana og hugsanlega í það síðasta líka!

Til marks um það að í dag er sunnudagur til leti, vil ég taka það fram að ég er enn á náttfötunum! HÚRRA FYRIR ÞVÍ!

SOFIÐ ÚT...


Það er víst hægt að segja það að ég hafi sofið út í dag. Vaknaði ekki fyrr en klukkan eitt! Þvílíkt og annað eins hefur ekki gerst í mjööög langan tíma. Ég þoli það nebblega ekki að sofa fram yfir hádegi því þá verð ég bara úrill allan daginn (er einmitt að vanda mig við það núna að vera EKKI úrill). Í mínum augum er það að sofa út að sofa til svona 10 eða11. Ég fer nefnilega yfirleitt á fætur á bilinu 6:30-9 og það þýðir að ég næ alveg 1-5 klst. aukasvefni með því að sofa til 10 eða 11. Ég fór nú reyndar frekar seint að sofa í gær og þurfti víst á þessum lúr að halda.

Í gær var nefnilega laugardagurinn þar sem allt var að gerast á sama tíma. Ég mætti í vinnu kl. 15:30 og “brúðkaupaðist” þar, þeas. hellti freyðivíni og fleiri guðaveigum í fólk á meðan það fagnaði með brúðhjónunum. Þaðan losnaði ég blessunarlega um tíu-leytið, eiginlega 2 klst. fyrr en ég hafði þorað að vona og þá brenndi ég heim og skipti um föt í snarhasti, setti upp pæjufeisið og brunaði lengst út í rassgat! Afsakið orðbragðið en hún Brynhildur á eldhúsbílnum býr í “The ÚTHVERFI” Reykjavíkur! Næstum því í Mosó!

Alla vega, hjá Brynhildi hitti ég fullt af fólki sem voru nokkuð reglulegir gestir hjá mér í ríkidæmi mínu í sumar, s.s. Jón Inga sem braust inn til mín (að minni ósk þar sem ég hafði læst sjálfa mig úti); Viktor sem tók ruslið með sér í stað þess að skilja það eftir fyrir framan dyrnar hjá mér; Einar sem var næsti nágranni minn í sumar (í Hvanngili) og neitaði að nudda mig af því að ég var samstarfskona; Kela sem sá dansandi konurnar í hlíðinni norðan við kofann minn; Ástu sem baðaði sig í vatninu mínu og færði mér bakkelsi úr bænum sem þökk fyrir gistingu í óveðri; Elsu eldhúspíu sem sefur alltaf í húsi (alls ekki tjaldi!); Gest sem ég hef ekki séð síðan á afmælinu hans í Hattfelsgili í júlí; Sari sem býr til listaverk um rigningu og súld úr steypu; Guðbjörgu sem er eins og lítill búálfur og keyrir stóra bíla og svo auðvitað Brynhildi sjálfa sem eldaði ósvikna Álftavatnskássu á planinu hjá mér oftar en einu sinni í sumar og fékk að gista á loftinu mínu nokkrum sinnum.
Þetta var alveg dásamlegt! En ég gat því miður ekki stoppað nema stutt því ég var jú á leiðinni í enn annað partí!

Það var innflutningsteiti hjá Brynkunni og þar var líka margt af góðu fólki. Sú sem stal senunni var þó partíljónið Margrét Líf, tæplega 2ja mánaða! Hún hvarf þó á brott skömmu eftir miðnætti og eldri partíljónin héldu stuðinu áfram. Mín var hins vegar þreytt og stútaði ekki nema einum bjór og fór akandi heim. Síðan vissi ég vart af mér fyrr en rúmlega 9 í morgun þegar síminn hringdi.

Það var þá gamla settið að hringja frá Krít, bara til þess að láta vita að þau væru þar í sól og góðu yfirlæti. Alveg hreint frábær tímasetning hjá þeim, rúmlega 9 á sunnudagsmorgni! Ég var líka fljót að skríða uppí aftur og rumskaði ekki fyrr en eitt eins og fram kom að ofan.

Í kvöld á ég svo von á gestum í mat, matseðillinn verður með sama sniði og á fimmtudaginn en félagsskapurinn allt annar...

3. okt. 2003

maturinn


Ég sló í gegn með matnum í gær. Þökk til þín, Anna í Bolungarvík, fyrir uppskriftina!

2. okt. 2003

HMMPPFFHH...


nú er ákveðið fólk farið að dissa mann opinberlega fyrir skort á athugasemdaboxi... verður maður þá ekki að fara að gera eitthvað í þessu?
En ekki í kvöld. Ég á von á gesti í mat á eftir og þarf að fara að sjæna mig til... túttilítú!

1. okt. 2003

VINSÆLDIR


Af hverju er það þannig að skemmtilegir hlutir raðast allir á einn dag?
Bara til þess að svekkja mann á því að komast ekki yfir allt?

Næsti laugardagur er einmitt dæmi um svona dag þar sem allt er í gangi á sama tíma!
Í fyrsta lagi er ég búin að lofa mér í vinnu sem ég get ekki snúið mig útúr...
Í öðru lagi er vinkona mín með innflutningspartí og lofar mas. skemmtiatriði að hætti hússins!
Í þriðja lagi var verið að bjóða mér í eldhúspartí, dinner und alles!!!

Allt sama kvöldið!!!
Fólk í kringum mig hefur leiðinlegt tímaskyn. Eða kannski heldur fólk bara að þetta sé eini dagurinn á næstu vikum sem ég verð skemmtileg...

Ég þarf að komast í klónun!!!!!!!!!

STRENGIR...


Mín er með strengi í dag. Strengi í lærunum, í handleggjunum, í öxlunum, í brjóstvöðvunum, í maganum og barasta alls staðar! Er nefnilega að byrja að lyfta aftur. Hef ekkert farið að lyfta í 4 mánuði og finn fyrir því núna. En þetta er fínt, ég veit þá að líkami minn er ekki alveg dauður...
Þetta er alveg hrikalega vontgott.
Vont af því að maður er aumur og veit að maður hefur verið latur.
Gott af því að maður er byrjaður aftur og manni líður svooo vel eftir æfingar!

29. sep. 2003

TIL HAMINGJU ANDRI OG SIGURBORG!


Þau eignuðust dóttur í morgun og heilsast mæðgunum vel!

25. sep. 2003

sofið í tíma


ég var að koma af fyrirlestri um rúnaristur á Íslandi í boði heimspekideildar Háskólans. Ég sat við hliðina á einum kennara úr íslenskuskorinni og hann svaf meira og minna allan fyrirlesturinn! Það er ágætt að vita að það kennarar eru líka mannlegir...
Hann sagðist hafa verið svo þreyttur.

Best að fara að koma sér heim í kvöldmat og gleðja gamla settið með því.
Algengasta spurningin heima hjá mér þessa dagana er: Verðurðu í mat í kvöld? Hvað viltu borða?
og næstalgengasta spurningin er: Ertu að fara að vinna?

24. sep. 2003

lífið er ljúft...


það finnst mér að minnsta kosti. Ég var nefnilega að endurheimta góða vinkonu og það er gott. Maður á aldrei of mikið af góðum vinum. Það fyndna er að við erum á mjög svipuðum slóðum í lífinu akkúrat núna. Við búum báðar í foreldrahúsum og hugsum mikið um að komast í eigið húsnæði; við eigum báðar nýjan vin sem, by the way, gerðist sama kvöldið hjá okkur báðum... Hún hefur reyndar forskot á mig þar sem hún er komin með háskólapróf (reyndar 2) og er farin að vinna en ég er "bara" á fullu í HÍ að klára mína fyrstu gráðu.

Sit einmitt núna á Landsbókasafninu og þykist vera að læra... á að flytja nokkur orð um skáldið Hofgarða-Ref Gestsson í tíma á morgun – best að fara að snúa sér að því...

Já, og eitt enn, tékkið endilega á Emil Þey, var að bæta hlekk inn á síðuna hans hérna til hliðar.

athugasemdir


já, svo þarf ég að fara að gefa mér tíma til að koma athugasemdum inn á bloggið mitt aftur... ég hef smá gálgafrest því "konan í lífi mínu", sú sem mest kvabbar yfir athugasemdaboxleysi, er farin í smáfrí til Ítalíu og böggar mig þá væntanlega ekki á meðan...

mið vika


já, nú er jafnlangt í næstu og frá síðustu helgi. Er að reyna að hætta að hafa bara helgarblogg...

Í dag er góður dagur. Það er tími í skemmtilegasta kúrsinum hjá skemmtilegasta kennaranum sem ég er í! Eftir tímann er ég svo að fara að hitta eina þriggja mánaða... Já, vinkonur mínar eru svo duglegar við að fjölga mannkyninu að maður veit varla hvað er að gerast. Það er mas von á 2 nýjum börnum í vinahópinn minn í næstu viku! Þær verða farnar að ferma og gifta börnin sín þegar ég kem með mitt fyrsta kríli, amk. með þessu áframhaldi!

Svo ætla ég að fara að hitta góða vinkonu mína sem ég hef ekki heyrt í eða hitt í rúmt ár! Sambandið dó einhvern veginn en svo fengum við báðar sömu hugmynd um að hafa samband hvor við aðra á sama tíma og ætlum að hittast í dag og taka upp þráðinn þar sem frá var horfið!!! Ég hef saknað hennar og hlakka mikið til að hitta hana aftur...

19. sep. 2003

helgi - aftur!


Það er víst föstudagur í dag. Ég hef það hálfpartinn á tilfinningunni að maður vakni á mánudagsmorgni og svo þegar maður fer að sofa þá er kominn föstudagur! Það er svo sem ágætt, þá er alltaf helgi! Ágætis framlenging á sumrinu mínu þegar það var alltaf helgi!

Þessa helgi ætla ég að bregða mér austur fyrir fjall í sveitina með 9 ára frænku mína, hún er víst búin að vera að bíða eftir þessu síðan í júní! Ef ég væri búin að láta hækka kaggann minn þá myndi ég örugglega kíkja aðeins á ríkidæmi mitt til fjalla en ég hugsa að Twingoinn minn komist ekki alla leið :o(

hafið það gott um helgina!

16. sep. 2003

helgin...


ekki seinna vænna en að blogga aðeins um helgina úr því að það er kominn þriðjudagur... ég var að vinna á föstudaginn og svo var planið eiginlega að slappa bara af, horfa kannski á imbann og eitthvað en onei! Ég á nebblega vinkonu sem gleymir alltaf (ok, stundum) afmælinu mínu og hún fær samviskubit yfir því. Og þegar hún fær samviskubit yfir því þá hringir hún í mig og er ferlega sorrí og vill gera eitthvað fyrir mig...

Það var einmitt það sem gerðist á föstudaginn. Hún vildi endilega bjóða mér á tónleika með Herði Torfa sem er í miklum metum hjá henni. Þannig að ég fékk að fara fyrr heim úr vinnunni og fór í eldsnögga sturtu og svo brunað niðrí bæ og ég var rétt sest í sætið mitt þegar hann steig á sviðið.

Tónleikarnir voru mjög góðir og hann fékk annað prik hjá mér þegar hann sagði að það væri ekki til laglaust fólk. Heldur væri það fólk sem syngi með hjartanu. Ég geri það nebblega. Og syng hástöfum þegar færi gefst. Tralalala laaaa TRALALALA LAAAA!!!!

Fyrsta prikið hjá mér fékk hann fyrir nokkrum árum þegar hann mætti heim til foreldra vinkonu minnar á annan í jólum og hélt þar stutta prívat tónleika að beiðni vinkonu minnar og systkina hennar fyrir dauðvona móður þeirra. Það eru ekki allir sem hefðu gefið sér tíma í slíkt.

Svo var meiri vinna á laugardaginn og smá djamm. Mjög gaman. Og enn meiri vinna á sunnudaginn. Sem sagt enginn lærdómur frekar en fyrri daginn...

15. sep. 2003

BLONDES HAVE MORE FUN


hvað get ég annað sagt? amk er það ég sem er á leiðinni á deit í kvöld en ekki Bestaskinn...

13. sep. 2003

akkúrat núna...


er ég að bíða eftir að Bestaskinn sæki mig. Við erum á leiðinni út á lífið til að athuga hvort Kynorkugeislinn sé fyrir ljóskur eða brúnkur... brúnar ljóskur...? ljósar brúnkur...? eða kannski eitthvað allt annað!

SKÁL FYRIR ÞVÍ!

11. sep. 2003

takk...


fyrir hjálpina, Marý

skipt um skoðun


Ég gleymdi að minnast á það um daginn að vinkona mín hefur skipt um skoðun. Varðandi það hvort ég og Vinurinn megum sofa saman. Hún er nefnilega svo hrædd um að hún geti ekki hitt okkur bæði í einu ef við sofum saman.
Alltaf má maður ekki neitt!

10. sep. 2003

Álftavatn, Álftavatn. Emstrur kalla


Þetta er eitthvað sem ég sakna frá því í sumar. Talstöðin. Þótt maður væri ekkert endilega sjálfur alltaf að spjalla þá heyrði maður í hinum og þessum og alls konar samskipti á milli fólks. Líka fyndið hvað fólk gat stundum oftúlkað það sem sagt var. Eins og þegar ég var að biðja einn trússarann um að koma með kassa úr Hvolsvelli. Daginn eftir var ég spurð hvort ég hefði verið að biðja um pappakassa eða bjórkassa! Ég var sem sagt að biðja um pappakassa til að pakka dótinu mínu í...

Ástæðan fyrir þessum hugrenningum núna er að ég er á leiðinni á sýninguna súldduld í Norræna húsinu hjá listakonunni Sari Maarit Cedergren sem var einmitt skálavörður í Botnsskála á Emstrum í sumar. Ég hvet alla eindregið til að kíkja á þessa sýningu!

9. sep. 2003

lífið í bænum


ég er smám saman að skríða aftur inn í daglegt líf í bænum þrátt fyrir að hugurinn sé enn að miklu leyti að Fjallabaki. T.d. ætti ég líklegast von á hópi frá Fjallabaki í gistingu í kvöld og væri akkúrat núna að drekka kaffi með trússaranum...
En í staðinn er ég á leiðinni í tíma hjá Guðrúnu Nordal.
Ekki að það séu leiðinleg skipti.

Það hefur verið heilmikið að gera hjá mér síðan ég kom til byggða; skólinn, vinnan, aukavinnan, klipping (nýjasta nýtt frá París þótt ég sé ekki alveg búin að læra að meika parísarlúkkið sjálf...), saumaklúbbur (búin að blogga um hann), djamm (það var gaman!), kaffihús (líka búin að blogga um það), bíltúr í Borgarfjörðinn, LSK-hittíngur og bíóferð.

Bíóferðin var nú nokkuð góð. Fór með Bestaskinni og hún er stundum soldið tortryggin varðandi kvikmyndasmekk minn og var treg til að fara á eitthvað af myndunum á Breskum bíódögum í Háskólabíói þannig að við enduðum á að sjá 28 days later. Sem er nokkuð blóðugri en við áttum von á. Sérstaklega var atriðið þar sem einn gaur stingur augun úr öðrum með þumalputtunum frekar ógeðslegt – ég held að allur salurinn hafi haldið fyrir augun.
Bestaskinn hótaði að fara aldrei aftur með mér í bíó. Ég benti henni hinsvegar pent á það að það var hún sjálf sem valdi 28 days later fram yfir Breska bíódaga...

5. sep. 2003

vinir


á meðan ég var á fjöllum þá kynntist vinkona mín strák og þegar hún sagði mér frá honum sagði hún:

Ég þekki strák sem er alveg æðislegur! Hann er klár, skemmtilegur og rosalega myndarlegur. Þið mynduð falla fyrir hvort öðru og þú átt að sofa hjá honum!

Ég vissi hreinlega ekki hvað ég átti að segja. Sérstaklega ekki þegar ég komst að því að hún var búin að segja eitthvað svipað við hann um mig... Svo hringdi hún í mig í gær og sagði:

Ég er á rúntinum með Honum, eigum við ekki að koma að sækja þig?

Hjálp! Hvernig á maður að vera þegar maður hittir einhvern sem hefur ,,fengið leyfi” til að sofa hjá manni án þess að maður hafi hitt viðkomandi?!? Þau komu og sóttu mig og við rúntuðum smá og kíktum aðeins á kaffihús. Ég féll nú kannski ekki fyrir kauða en líst svosem ekkert illa á hann...

4. sep. 2003

Amelie


ég eignaðist nýjan geisladisk í dag, með tónlistinni úr myndinni Amelie. Frábær mynd og frábær tónlist!
Annars var ég að koma úr saumaklúbbi með vinkonum mínum og þar var mætt nýjasta stelpan í vinahópnum; óskírð Jóhannesdóttir, 4 vikna gömul. Hún var langsætust og vinsælust í kvöld en hafði lítinn áhuga á okkur skvísunum og svaf mest allt kvöldið.
Það gæti nú kannski verið gaman að eiga svona lítið kríli. Alveg þangað til að maður þarf að skipta á kúkableyju og vaka á nóttunni...

3. sep. 2003

óður til lífsins


bara að testa aðeins meira...

honey, I'm home!


já, mín er komin til byggða aftur... í hálfgerðu kúltúrsjokki! Alltof mikið af bílum, alltof mikið af húsum, alltof mikill hávaði, alltof mikið af fólki og alltof mikið af trjám!
Eins og einn félagi minn sagði: Húsin eru slæm skipti fyrir fjöllin! Ég er sko hjartanlega sammála honum!

Sumarið mitt var frábært! Hér er brot af því besta:
Þrjú óveður á sex dögum, misárangursríkar veiðiferðir, sveittir Laugavegshlauparar í 25° hita og glampandi sól, útlendingar kvartandi yfir veðrinu (sem var aldrei vont, bara gott, leiðinlegt eða brjálað), 44° á hitamælinum mínum, langir göngutúrar, langir bíltúrar, flugferð í heimasmíðaðri flugvél, fullt af góðum gestum, útlenskar veimiltítur að biðja um "helicopter service", snjókoma í júlí og kofinn minn sem vaggaði mér í svefn í roki...

Need I say more?

22. jún. 2003

sumarsólstöður


Fór og sótti mér orku á Snæfellsnesi í gær og kom heim með Djúpalónsperlu í vasanum. Það var smá hátíðardagskrá út við Dagverðará í gær þar sem föðurforeldrar mínir voru heiðraðir með bautasteinum. Veðrið var dásamlegt og Snæfellsjökullinn skartaði sínu fegursta. Um kvöldið var svo grillað í fjörunni á Hellnum. Ekki slæmt það! Ég tók svo rúntinn út á Djúpalónssand áður en ég hélt heim og það var dásamlegt að setjast þar aðeins í fjöruna og horfa á og hlusta á sjóinn.

Í dag er ég frekar löt. Á að vera byrjuð að skipuleggja mig og pakka fyrir fjalladvölina en ég kem mér ekki að verki. Eiga sunnudagar ekki að vera letidagar?
Mest langar mig að leggjast út með bók og gleyma mér eitt augnablik... Kannski á eftir.


19. jún. 2003

hugleiðing...



ég skrapp í heimsókn með mömmu minni í dag, til kunningja okkar sem kom nýverið útúr skápnum en á að baki 25 ára hjónaband og 4 börn. Hann sagði okkur að þetta hefði auðvitað verið erfitt fyrir börnin og fyrrverandi konuna þegar hann kom út úr skápnum (sem gerðist eftir skilnaðinn og var ekki ástæðan fyrir honum) en það væru allir vinir í dag og allt í góðu. Elsti strákurinn býr hjá honum og fyrrverandi konan og yngstu börnin í sama hverfi og mikill samgangur á milli. Ekkert nema gott um það að segja.
Annað sem hann sagði sem sló mig svolítið og það er að hann fengi stundum að heyra ókvæðisorð kölluð á eftir sér og annað neikvætt áreiti tengt kynhneigð hans. Ekki bara frá börnum og unglingum heldur líka frá fullorðnu fólki. Ég er svo aldeilis gáttuð! Ég bara hélt að svoleiðis gerðist ekki lengur! Fyrir mér er þessi maður nákvæmlega sá sami og fyrir 10 árum (bara með aðeins minna hár) og mér kemur kynhneigð hans á engan hátt við. Ef maður getur ekki höndlað að annað fólk breyti lífsmáta sínum á maður þá ekki að láta það í friði? Það er alla vega mín skoðun.

Það mætti halda að ég væri nú þegar farin á fjöll miðað við bloggframmistöðu undanfarinna vikna en svo er ekki. Ég fer af stað í næstu viku og reyni að blogga amk einu sinni aftur áður en ég tek mér svo tveggja mánaða hlé...

29. maí 2003

vinir


Það er merkilegt hvað lítil atriði geta vakið mann til umhugsunar um ýmislegt og ég varð fyrir svoleiðis upplifun um daginn. Nánar tiltekið á júródaginn. Það var að sjálfsögðu partí og þar var mjög gaman. Fylgst með keppninni, borðaður góður matur og drukkinn bjór og fleira. Sem sagt svakastuð! Ein vinkvenna minna er hjúkrunarfræðingur og hún ætlaði að koma og tjútta með okkur en þurfti að vinna eitthvað lengur og það endaði með því að hún kom ekki fyrr en um miðnætti og var ekki í mesta stuðinu því hún var þreytt eftir langan vinnudag, hafði verið að vinna frá kl. 8. Hún tók nú samt þátt í stuðinu með okkur og einhver spurði hana hvað hún hefði nú eiginlega verið að gera í vinnunni úr því að hún losnaði ekki fyrr en svona seint og hún svaraði:

Ég var að hnoða.

Og það var ekki brauð sem hún var að hnoða.
Þessi setning situr í mér ennþá. Hún vakti mig til nánari umhugsunar um það hvað hún og aðrir hjúkrunarfræðingar fást við í sínu starfi. Maður hefur oft bara einhvers konar yfirborðskennda tilfinningu fyrir því hvað fólk í kringum mann er að gera ef maður hefur sjálfur ekki þekkingu á þeirra sviði. Eins og ég hef hugsað um hjúkrunarfræðinga: þeir sinna sjúkum sem er auðvitað alveg rétt en ég hef ekkert pælt meira í því en þetta stutta, einfalda svar hennar lét mig sjá starf hennar í nýju ljósi.

Annar vinur minn er hotshot-endurskoðandi og vinnur hjá einu stærsta fyrirtækinu á landinu. Hann tók frekar illa í það þegar ég spurði hann hvort hann vildi ekki leika sama leik og gaurinn hjá Landsímanum og dreifa nokkrum millum til okkar, vinanna. Hann sagði að það borgaði sig ekki.
Þannig að ég held bara áfram í minni vinnu á sambýlinu...

Annars rölti ég uppá Esju í góða veðrinu í dag og tók svo stuttan sundsprett í Kópavogslauginni. Ef svona dagur er ekki endurnærandi...

27. maí 2003

líf eftir prófin...


er letilíf!
amk ef maður á svo 1 viku í sumarfrí strax á eftir.

Þannig var það einmitt hjá mér. En nú er ég farin að vinna aftur þannig að maður er farinn að vakna til lífsins og fylgjast með bloggi annarra aftur og ekki seinna vænna en að fara að uppfæra sitt eigið... hafið þið saknað mín?

ég hef nú ekki alveg legið í leti þessa viku - eða tvær vikur sem eru liðnar frá prófum. Ég er búin að fara á rúntinn austur fyrir fjall og drekka þar kaffi í lítratali hjá bændum, hestamönnum og hótelstýrum, ég er búin að taka rúntinn uppí Borgarfjörð og það mas tvisvar. Í fyrra skiptið var það með samnemendum mínum og það var bara ansi gaman.
Og ég komst að því að það er fullt af sætum strákum í íslenskunni. VEEIII!!!
en það eru líka næstum því jafnmargir strákar sem taka í vörina: OOOJJJJ!!!! PÚÚÚ!!!
En ferðin var mjög góð og eitt af betri atriðunum var landbúnaðarkapphlaupið sem var haldið fyrir okkur á Hvanneyri! Ég var valin í stelpuliðið og varð í 5. sæti. Sem var reyndar næstneðsta sætið. Það er allt #$%#% rúllubagganum að kenna. Hvaða heilvita borgarbúi getur vippað sér léttilega yfir rúllubagga sem er næstum því jafnhár manni sjálfum? EKKI ÉG!

Hin Borgarfjarðarferðin mín var eiginlega Langjökulsferð en við keyrðum í gegnum Borgarfjarðardali á leiðinni tilbaka. Gaman að komast aðeins uppá jökul og það var mun skárra veður en síðast þegar ég fór á Langjökul og fór á snjósleða í stingandi rigningu og skyggnið var 2 metrar. Það var nú reyndar ekki mikið betra skyggni núna en ekkert að veðri. Það besta var samt þegar við vorum á niðurleið aftur og allt var hvítt í kringum okkur. Þá birtist allt í einu snjósleði við hliðina á okkur og bankaði í rúðuna hjá Jóa bílstjóra (sá hinn sami og henti Brynku í sjóinn ca 12 klst síðar). Jói stöðvaði bílinn og skrúfaði rúðuna niður og vélsleðagæinn kom nánast hálfur inn í bílinn og sagði:
,,Geturðu nokkuð sýnt mér á tölvunni hvar við erum? Ég er nefnilega með vélsleðahóp og við erum farin að fara í hringi!"

Við litum aftur fyrir bílinn og sáum þá ca 30 vélsleða og á hverjum voru 2 menn. Gæinn fékk þær upplýsingar sem hann vildi og brunaði af stað aftur með hópinn í halarófu á eftir sér. Manni finnst nú ótrúlegt að þessir gæjar séu ekki með amk 1 GPS-tæki í svona ferðum því veðrið getur breyst svo snögglega. Örstuttu seinna vorum við svo komin niður úr skýjunum aftur.
Það var nú frekar svekkjandi að horfa uppá jökulinn þegar við vorum komin niður og sjá að það var að létta til...

13. maí 2003

amma mín...


og nafna, hefði orðið níræð í dag, blessunin, hefði hún lifað. Til hamingju með það, amma! Hún fussaði einmitt og sveiaði fyrir rúmum 29 árum yfir að mamma hefði ekki haldið (mér) í sér til 13. maí...

jess!


prófin eru búin!!!
- og skýin eru komin!

Ég held að ég sé bara nokkuð sátt við prófframmistöðu mína, amk eins og er, það gæti breyst þegar ég fæ einkunnirnar. Svaraði bara öllu nokkuð vel nema einni spurningu í norrænni trú í gær þar sem ég gleymdi að minnast á mikilvægi mjaðarins í tengslum við blót... sem er eiginlega alveg grátlegt því að það má tengja mjöðinn við hefðina sem hefur skapast í kringum jólabjórinn frá Tuborg í Danmörku.

mmm... mig langar í julebryg!

12. maí 2003

góðviðrisdagur þrjú


og próf 2 er framundan... leggst ekkert alltof vel í mig en maður gerir sitt besta og ég er full fyrirheita um minni vinnu næsta vetur og jafnari lærdóm! Hvenær skyldi maður nú læra þetta?

Ég vildi benda ykkur á það að það er ekki alveg jafn gott veður í dag og um helgina, vindurinn er kaldari og meiri enda eru veðurguðirnir að búa sig undir slagveður og leiðindi sem munu dynja á landinu seinni part þriðjudags eða á miðvikudaginn. Þá hefst nefnilega eiginlegt sumarfrí mitt.

Til þess að koma í veg fyrir slagveður og leiðindi og fá áframhaldandi sól og blíðu vil ég benda fólki á að heita á þrumuguðinn Þór því það er jú hann sem stjórnar veðri og vindum! Ef mér gengur vel í prófinu (norræn trú) þá getur verið að hann blessi mig (og allt landið) með góðu veðri í sumarfríinu mínu og vonandi lengur. Þannig að ef þið eruð ekki nógu heiðin til að heita á Þór, þá skuluð þið bara heita á mig fyrir góðan prófárangur og ég kem áheitunum áfram...

11. maí 2003

ein ég sit...


og læri
inní stóru húsi
enginn kemur að sjá mig
nema litla músin...

Að sitja Bókhlöðunni þegar veðrið er svona gott er ekki það skemmtilegasta sem ég geri. Kvart og kvein! Sem betur fer er bara opið til kl. 17:00 í dag.
Ég bæti mér þetta upp með því að fá mér góðan ís á heimleiðinni... mmm...

hjálp!


er einhver sem getur tekið 24 upp fyrir mig í kvöld? er ekki með Stöð 2 lengur og er orðin gjörsamlega húkd á þessum þáttum...
Anyone? Anyone?

10. maí 2003

veðurspáin...


...mín var alls ekki svo vitlaus. Besta veðrið sem hefur komið í vor var einmitt í dag. Þegar ég hef akkúrat ekki haft neinn tíma til að njóta þess, næsta próf er jú á mánudaginn. Gangi mér vel!

one down, two to go...



þá er fyrsta prófið búið og það gekk alveg ágætlega, held ég, þótt maður hefði alveg getað gert betur. Einbeitingin var frekar slök síðari klukkutímann og ekki á það bætandi að fólk væri í sífellu að fara út. Það borgar sig ekki að fara þreyttur og illa sofinn í próf, svo mikið er víst.
Best að fara að læra fyrir næsta próf!

Og ég er líka búin að kjósa.


9. maí 2003

kakan í ofninum...


kakan í ofninum er þar af því að ég á afmæli í dag! Mér leyfist samt ekki að halda almennilega uppá það strax því það er próf á morgun – og svo strax aftur á mánudag og þriðjudag en þá er ég líka búin í bili.

Þessi dagur hefur bara byrjað vel, fékk hamingjuóskir í morgun um kl. 7 þegar ég mætti í ræktina! Maður skráir sig inn með korti með segulrönd og í morgun þegar ég kom þá heyrðust einhverjir skruðningar í tölvunni þegar ég skráði mig inn og stelpan í afgreiðslunni sagði ‘Til hamingju með afmælið’ við mig. Það var ferlega notalegt. Svo hringdi bróðir minn frá Svíþjóð líka áðan. Ekki það að hann sé svona góður í að muna afmælisdaga heldur er hann með dagbók í gemsanum sínum sem pípir og minnir hann á þegar einhver á afmæli... 20°C hjá honum í dag.

Jæja, kakan kallar og svo er það lærdómur þangað til seinni partinn!


5. maí 2003

auglýst eftir veiðikennara!



eftir ítrékaðar ábendingar um að það er fullt af silung í vatninu sem er við skálann sem ég ætla að passa í sumar þá hef ég tekið þá ákvörðun að læra að veiða svo ég geti nú fengið mér grillaðan silung reglulega... Þannig að hver býður sig fram í veiðikennslu? Anyone? Anyone?

29. apr. 2003

GLEÐILEGT SUMAR!


já, það virðist vera komið hálfgert sumar hérlendis í kjölfar sumardagsins fyrsta sem var á fimmtudaginn var, aldrei þessu vant. Hins vegar er ég með veðurspá fyrir næstu 3 vikurnar:

Það verður gott veður fram til 13. maí (síðasta prófið mitt) eftir það fram til 20. maí verður slagveður og þess háttar (sumarfríið mitt) en svo kemur sæmilegt veður aftur. Amk þá þrjá daga í viku sem ég verð að vinna út júní. Bestu dagarnir verða 9.-13. maí og 21. maí.

Ég er nokkuð viss um að þetta er ekkert verri veðurspá en þær sem Veðurstofan gefur út reglulega.

12. apr. 2003

bloggleti


Ég veit að ég hef verið frekar slök í blogginu undanfarið en það hefur verið frekar mikið að gera.
Vinna, skóli og félagslíf.
Já, ótrúlegt en satt þá hefur félagslífið verið nokkuð aktívt miðað við undanfarna mánuði... En það er líka svo týpískt að það gerist allt á sama tíma.
Eins og núna. Er að skrifa ritgerð sem ég á að skila á mánudaginn og eftir það tekur við önnur ritgerð sem á að skila strax eftir páska. Um leið er svo nóg hjá mér að gera á öðrum sviðum; um síðustu helgi fór ég að sjá Veisluna í Þjóðleikhúsinu - það var alveg stórkostleg sýning; á fimmtudaginn var skólaferð á Laxdæluslóðir - það var líka mjög gaman; í gær var ég á blárri árshátíð þar sem ég var líka í árshátíðarnefnd og það var mjög gaman. Í kvöld er það svo leikhús aftur. Í þetta sinn á að sjá Allir á svið, líka í Þjóðleikhúsinu.

Ég verð aðeins aðsegja frá því hvað mér finnst gaman að skrifa ritgerðir. Ég kemst einhvern veginn á flug og ef maður er með spennandi efni og góðar heimildir, þá skrifar ritgerðin sig nokkurn vegin sjálf. Ég held að ég skilji hvað rithöfundar eigi við þegar þeir segja að sögurnar þeirra skrifa sig sjálfar og að persónurnar öðlist sjálfstætt líf. Auðvitað þarf maður að lesa og pæla í efninu en um leið og maður fær rétta sjónarhornið þá stingur maður sér á kaf og veit ekki fyrr en allt er búið. Amk upplifi ég þetta svona.
Og mér finnst þetta svo gaman!

Best að halda áfram að skrifa um örlagavefi í norrænni trú og hætta að vefa hérna...

3. apr. 2003

svarið...


við hinni æsispennandi spurningu um óvenjuháan meðalaldur í bíósalnum er:

Þegar 2 gsm-símar eða fleiri hringja fyrir hlé. Með Nokia-hringingunni.

1. apr. 2003

eitt enn um Nóa


Dagur Kári leikstjóri og handritshöfundur er sami maðurinn og stóð á bakvið 'dönsku' Thule-auglýsingarnar hér um árið. Húrra fyrir því!

31. mar. 2003

fordómar


Ég komst að því um helgina, mér til mikillar skelfingar, að ég er fordómafull gagnvart Íslendingum. Ekki öllum Íslendingum þó, heldur þeim sem eru 'að meika það' hérlendis sem erlendis. Ég sem hélt að ég væri ekki svoleiðis en svo er ég bara eins og kjarninn í þjóðarsálinni.
Það sem setti þessar pælingar af stað var kvikmyndin Nói albínói sem ég sá á föstudaginn og svo bókin Grafarþögn eftir Arnald Indriðason sem ég las um helgina. Mér fannst myndin ekki nógu góð, af því að ég var búin að ákveða það fyrirfram að hún væri það ekki.
Ég meina, einhver ungur Íslendingur sem fær fullt af verðlaunum í útlöndum, það getur ekki verið að hann sé að gera eitthvað sem vit er í. Er það nokkuð?
En ég hef nú samt hugsað mikið um myndina síðan ég sá hana og spekúlerað í henni. Ég sé alveg hvað útlendingar sjá í henni og af hverju hún hefur heillað fólk á kvikmyndahátíðum um alla Evrópu (og kannski víðar?) en minn 'innri mekanismi' (=íslenska þjóðarsálin) kemur í veg fyrir að ég láti heillast. Kannski af því að hún snertir þjóðarsálina í mér. Ég veit líka að ef þessi myndi væri frönsk, finnsk eða bara útlensk þá myndi ég örugglega vera í skýjunum yfir henni...
Ég er líklegast bara algjör snobbari fyrir evrópskum myndum.
Málið er líka það að við, Íslendingar, gerum miklu meiri kröfur til okkar fólks en til útlendinga. Amk á þessu sviði. Útlensk mynd sem er góð er sögð góð en íslensk mynd sem er góð er sögð sæmileg eða 'alltílagi' mynd. Íslendingar þurfa að sýna yfirburði til að geta fengið stimpilinn að þeir séu góðir, alveg sama hvaða gagnrýni og lof þeir fá í útlöndum.
Útlendingarnir vita hvort eðer ekki betur, þekkja ekki íslenskar aðstæður.
En það er bara alls ekki málið. Spurningin er hvort verkið snertir eitthvað innra með þér eða ekki.
Nói albínói er engu síður mjög góð mynd þótt ég sé sammála því sem ein vinkona mín sagði við mig; að hún sé að vissu leyti dæmigerð íslensk mynd með dæmigerðum íslenskum einfaratýpum.

Það var ekki bara myndin sjálf sem setti þennan þankagang af stað hjá mér heldur líka bókin Grafarþögn. Sem er íslensk glæpasaga. Mér hefur aldrei fundist þær virka. Einhvern veginn alltaf verið að heimfæra 'útlenskt samfélag' og 'útlenskar flækjur' upp á íslenskt samfélag sem er bara mikið minna og þolir það ekki. Amk ekki að mínu mati. Ég las t.d. bókina Nóttin hefur þúsund augu eftir Árna Þórarinsson fyrr í vetur og fannst hún engan veginn sannfærandi. Fannst hún vera algjört dæmi um áðurnefnda heimfæringu. Þetta var svosem ekkert alslæm bók, hún bara virkaði ekki á mig. Kannski af því að bækur/kvikmyndir um drykkfellda blaðamenn/spæjara sem eru í leit að eigin lífi um leið og þeir fást við einhverjar ráðgátur tengdar vinnunni hafa aldrei heillað mig.
Hins vegar finnst mér Grafarþögn vera mjög góð og vel skrifuð saga. Ég sé alveg fyrir mér að þetta er eitthvað sem gæti gerst í íslensku samfélagi. Glæpasögur verða að hafa einhverja samsvörun við þjóðfélagið sem þær eru skrifaðar í til þess að vera sannfærandi og þess að fólk, amk ég, kaupi fléttuna. Ég byrjaði að lesa Grafarþögn með sömu fordómum og ég horfði á Nóa albínóa. Ólíkt myndinni náði bókin strax að slökkva á þeim og ég gleymdi mér algjörlega við lesturinn. Ég hlakka til að lesa fleiri bækur eftir Arnald.

Þótt ég sé ekki ánægð með sjálfa mig fyrir að vera eins og snýtt beint útúr íslensku þjóðarsálinni þá er ég ánægð með að ég geri mér grein fyrir því og get verið meðvitaðari um að taka hlutina með opnara hugarfari.

Að lokum er hér ein spurning. Gáta. Alltaf gaman að fara í leiki! Hún er ekki mín, heldur bíófélagans míns og hljómar svona:
Hvernig veit maður að meðalaldur bíógesta er óvenjuhár í salnum sem maður situr í?

Svör óskast. Engin verðlaun í boði.



27. mar. 2003

spennandi tilboð...


Ég fékk ansi spennandi tilboð í gær.
Þannig er að hún LadyMary hringdi í mig og bauð mér að koma með sér til Ástralíu í vor. Málið er nefnilega að hún þekkir einhvern gaur þar sem er alveg svakalega klár í blaki og ameríski fréttaþátturinn 60 Minutes ætlar að gera þátt/innslag um hann og buðu LadyMary einmitt að koma með. Og hún má taka einhvern með sér á þeirra kostnað og hún valdi mig. Við förum í maí, eftir prófin hjá mér og verðum í 1 mánuð. Ég ætla að fljúga í gegnum Köben á leiðinni til Ástralíu og í gegnum Ameríku á leiðinni tilbaka og koma við í New York!!!
Er þetta ekki frábært?
Mér fannst það. Alveg þangað til að ég vaknaði. Og fattaði hversu langsótt þetta er... Mig langaði helst að sofa til 20. júní.

Takk samt fyrir tilboðið, Marý.



25. mar. 2003

skráningarvika


núna er skráningarvika í HÍ, þeas við erum að velja okkur námskeið fyrir næsta vetur og ég var einmitt að klára það áðan. Valdi mas 2 námskeið í þjóðfræðiskor (er í einu námskeiði þaðan núna), annað um norrænar goðsögur og hitt um munnlega hefð. Ég er öll á kafi í miðöldunum og því sem er eldra...
Reyndar er athyglisvert námskeið í boði í íslenskunni næsta vor sem heitir einmitt Blogg, blogg, blogg sem ég skráði mig líka í. Gaman að sjá hvað kemur útúr því.

24. mar. 2003

aftur í fjöri...


jæja, ég hef nú ekki verið mjög aktíf á þessari síðu undanfarið og er það vegna þess að ég hef verið frekar óhress með sjálfa mig undanfarið... en er orðin hressari. Huxa að þetta hafi bara verið stress; fannst ég vera að svíkja sjálfa mig með því að gefa mér ekki tíma í það sem skiptir mig mestu máli, námið. Var að vinna alltof mikið en nú er ég búin að segja upp á einum stað, Kringlunni - HÚRRA fyrir því!!! Reyndar á ég 4 vinnudaga eftir þar en svo er það líka búið!
Og þvílíkur léttir.
Enda hef ég verið að hugsa um þetta alltof lengi en ekkert gert í því...

Svo er ég líka búin að ráða mig í sumarvinnu þannig að ég þarf ekki lengur að hafa áhyggjur af því... Verð skálavörður fyrir Ferðafélagið. Ætlaði reyndar að reyna að komast í fulla leiðsögn í sumar en hef ekki verið nógu dugleg að bera mig eftir því og ekki boðist mikið þar sem ég hef talað við fólk og eins og er hef ég hreinlega ekki 'overskud' til að eltast við það. Skálavarslan leggst líka bara vel í mig.
Þá get ég leikið svona 'loner-type' í einhverjum kofa uppi á fjöllum...

Fór í bíó í gær. Ein. Finnst mjög gott að fara ein í bíó en flestum finnst það undarlegt. Ég skil ekki alveg af hverju því ekki er maður að fara í bíó til að spjalla saman heldur til að upplifa myndina - eða er ég að misskilja eitthvað? Hef líka heyrt frá ansi mörgum að það sé 'hallærislegt að fara einn í bíó' enda fæ ég iðulega viðbrögð eins og:
,,Af hverju fórstu ein í bíó? Vildi enginn koma með þér? Af hverju hringdirðu ekki í mig?"
Ég fór ein í bíó af því að mig langaði til þess og talaði ekki við neinn.
Myndin sem ég sá í gær var The Hours og er hún mjög góð. Skil vel að Erna hafi verið lengi að átta sig á því að þetta væri Nicole Kidman sem Virginia Woolf. Ótrúlega góð í hlutverkinu, enda fékk hún óskarinn. Ótrúlega flott förðun líka.

Mig langar líka aðeins að tuða um hlé og ónúmeruð sæti! Þetta er eitthvað sem mér finnst óþolandi í íslenskum kvikmyndahúsum, troða hléi á viðkvæma staði inn í myndir til að selja meira popp!!! Þetta er BARA neikvætt í mínum augum því maður 'dettur útúr' myndinni og inn í einhverja nammi/smók-maníu og tapar oft tilfinningu fyrir myndinni. Þetta hefur oft eyðilagt myndir fyrir mér. Það er ekki ósjaldan að myndir 'eru betri fyrir hlé' og maður labbar svo út ósáttur við myndina. Oft á tíðum er þetta hléinu sjálfu að kenna því maður nær ekki að byggja upp þá stigmögnun sem myndin býður upp á og nær þar af leiðandi ekki 'klæmaxinu'. Þar af leiðandi verða myndirnar oft, að ósekju, 'frekar slöpp eftir hlé'.
Ég verð nú samt að segja það að pínulítill hluti af mér fagnaði hléinu í gær. Það sátu nefnilega 2 vinkonur 2 sætum frá mér sem voru endalaust að tala um myndina - og annað: ,,Jii, hvað strákurinn er sætur!" ,,Heldurðu að hún drepi sig?" ,,Hvað er að frétta að austan?" og þar fram eftir götunum.
Ég var ekki lengi að standa upp og færa mig í hléinu.

Eins finnst mér ótrúlegt að kvikmyndahúsin hérna hafi ekki tekið upp númeruð sæti. Það væri svo miklu, miklu þægilegra heldur en það er í dag. Það er alveg óþolandi að fara á myndir sem er uppselt á og þurfa að standa í kös við innganginn til að taka þátt í einhverri villimannslegri baráttu um góð sæti. Íslendingar kunna nefnilega ekki að standa í röð. Hjá okkur gildir víst ekki lögmálið 'fyrstir koma - fyrstir fá' heldur frekar þetta: 'sá sem er feitastur og frekastur fær'.

23. mar. 2003

á meðan ég man...


þá vil ég hvetja alla til að sjá ljósmyndasýninguna Jörðin séð frá himni eftir franska ljósmyndarann Yann Arthus-Bertrand sem verður sett upp á Lækjartorgi í sumar. Ég sá þessa sýningu á Kongens Nytorv í Köben sumarið 2001 og var alveg heilluð.

20. mar. 2003

BURT MEÐ BIRGITTU - BOTNLEÐJU TIL RIGA!


ég veit að þetta kemur kannski svolítið seint en vildi samt koma þessu á framfæri...

12. mar. 2003

næturvaktir og augnblöðkur


Var að klára næturvakt og er eitthvað hálfsúr.
Ég verð alltaf hálfsúr og mygluð af því að sofa á daginn enda er það eitt það leiðinlegasta sem ég geri og reyni að forðast það eins og heitan eldinn. Enda sefur maður ekki nærri því eins vel á daginn og á næturnar. Þrátt fyrir eyrnatappa og að breiða yfir haus. Ég þarf eiginlega að fara að huga að því að fá mér svona ‘augnblöðkur’ eins og maður sér á fínu frúnum í amerísku bíómyndunum...

Annars er ég nú öll að koma til; fletti blöðunum þegar ég vaknaði og blaðaði svo aðeins á netinu, mamma og pabbi komu svo færandi hendi með nýbakaðar kringlur og fínerí. Alltaf gott að fá eitthvað í svanginn. Þegar ég var búin að koma mér í sturtu dreif ég mig í búðina og á leiðinni þangað rambaði ég inní Lyfju (eða eitthvað annað apótek) og þar var kona að kynna einhvern andlitsfarða. Ég aumkaði mig yfir hana og leyfði henni að blaðra aðeins við mig og mála mig. Þannig að ég er svaka sæt og fín núna...
Það er nú ekki oft sem maður kemur nýfarðaður úr Bónus-ferð.

Ég klikkaði alveg á að sjá fleiri myndir á Norrænu kvikmyndadögunum en ég sé að það er enn verið að sýna finnsku myndina Maður án fortíðar . Maður verður nú að sjá hana. Þótt það sé ekki nema bara til að upplifa það að heyra finnsku í bíó. Hún er tilnefnd til Óskarsverðlauna sem besta erlenda kvikmyndin.

Talandi um Óskarinn, hver ætlar að bjóða mér í Óskarsvöku?

9. mar. 2003

árshátíð


Já, ég var á árshátíð í gær með vinnunni minni og það var bara gaman. Ekki af því að árshátíðin sjálf (skemmtiatriði, veislustjóri o.s.frv.) hefði verið svo frábær, frekar af því að félagsskapurinn var góður! Alltaf gaman að sjá aðra hlið en 'vinnuhliðina' á fólki...
Auðvitað var maður dressaður upp í sitt fínasta púss; í nýju pilsi og nýlegri blússu og til að vera extra foxí þá var maður í netasokkabuxum!!! Og það er eitthvað sem ég er að spá í að leggja á hilluna, þeas netasokkabuxur. Það er mér lífsins ómögulegt að skilja hvernig maður á að geta verið í netasokkabuxum heilt kvöld án þess að eyðileggja þær og stækka götin.
Hvernig fara überskvísurnar að þessu?

Fór í bíó á fimmtudaginn. Það eru Norrænir kvikmyndadagar og það er alltaf gaman að fá tilbreytingu frá þessum amerísku klisjumyndum sem tröllríða öllum bíóhúsum bæjarins allan ársins hring... Alla vega, sá myndina Lilja 4-ever eftir sænska leikstjórann Moodyson (sem gerði Fucking Åmål og Tillsammans). Þetta er rosalega góð mynd um mansal og ég hvet alla til að drífa sig í bíó og sjá þessa mynd. Og sem flestar aðrar á þessum Norrænu kvikmyndadögum.
Ég ætla í bíó aftur í kvöld.

BTW prófið mitt gekk í samræmi við undirbúning og lestur. Gengur bara betur næst...

3. mar. 2003

næturvaktir, próf og afmæli...



er það ekki týpískt að þegar veðrið er gott þá hefur maður ekki möguleika á að nýta sér það og vera úti...? Í dag er t.d. fínasta vorveður; logn og sól en samt soldið svalt, amk í skugga og frábært væri að geta spókað sig um utandyra í afslöppun en ónei, ekki hún Elísabet Smelísabet! Ég er nefnilega að fara í próf á miðvikudaginn sem þýðir það að ég þarf að eyða frítíma mínum í dag í lestur fyrir prófið og svo er ég að fara á næturvakt í nótt þannig að þegar ég hætti að lesa þá þarf ég að sofa! Til þess að geta vakað í nótt og lesið meira!!! Alltaf stuð að vera í skóla!

Svo er búið að birta próftöflurnar og á þessu 20 daga tímabili sem próftíminn er þá er auðvitað best að setja prófin mín þrjú niður á 4 daga! Jebb, ég byrja í prófum 10. maí og lýk þeim þann 13. Eitt mega þeir þó eiga, elskurnar, og það er að ég er ekki í prófi á sjálfan afmælisdaginn minn!!! Ég á nú samt eftir að sitja sveitt yfir bókunum þann daginn...
Ótrúlegt en satt, miðað við að eiga afmæli akkúrat á aðalpróftímanum þá hef ég aldrei lent í því að fara í próf á sjálfan afmælisdaginn...

Fór í bíó í gær. Sá The Ring. Mæli ekki með henni. Algjört prump. Ósannfærandi og alltof margir lausir endar í lokin. Langt frá því að vera alvöru treflamynd!

ok, farin heim að læra... og sofa... góða nótt eða eitthvað