27. feb. 2007

skessustelpur eða stelpuskessur?

það er ekki oft sem maður byrjar daginn á að opna líkjörsflösku en hvað getur maður annað gert þegar maður á von á stelpuskessum í saumaklúbb í kvöld?

Reyndar eru þær engar skessur þessar elskur og svo var ég nú ekki að staupa mig, heldur að gera skyrtertu fyrir kvöldið.

Ég vona að þær láti allar sjá sig, nema kannski hún Anna Lilja því ég held að það sé löngu kominn tími á að við fáum að sjá litla bumbubúann!

23. feb. 2007

Fögur

það er uppáhaldsorðið mitt í dag. Ég sá það í stjörnuspánni minni í Blaðinu í morgun og sú „spá“ er ein sú besta sem ég hef nokkurn tímann séð:

„Það er ekki bara gott fyrir líkamann að svitna og koma öllum pirringi á brott heldur líka fyrir hjarta og sál. Ekki gleyma að þú ert fögur vél. Dansaðu, hlauptu eða hoppaðu á staðnum.“

Já, ekkert bull um spennandi fréttir úr óvæntri átt eða að einhver nákominn mér sé hrifinn af mér í laumi... Eiginlega ekki heldur spá, bara sannleikskorn.

Hafið það gott í dag!

20. feb. 2007

Ferðsjóðurinn dafnar

Bankinn okkar fer hamförum í fjölmiðlum þessa dagana með auglýsingar sem sýna hvað þeir eru góðir við okkur viðskiptavini og neytendur. Þeir eru nefnilega að endurgreiða viðskiptavinum sínum nokkur prósent af greiddum vöxtum síðasta árs. Heilsíðuauglýsingin í Blaðinu sem æpti á mig í morgun var mynd af ungum pari og fyrirsögnin var eitthvað á þessa leið:

"Okkar endurgreiðsla fer í ferðasjóðinn okkar"

Gott og blessað það en þegar maður fær fínt bréf frá bankanum sem segir manni að endurgreiðslan, sem hefur verið greidd inn á reikninginn, er ekki einu sinni heilar 1.400 krónur þá finnst manni þetta nú frekar mikið prump. Málið er að vextir af verðtryggðum húsnæðislánum og yfirdráttaheimildum eru ekki með í þessu reikningsdæmi. En hvaða skuldir eru það sem eru að sliga landann? húsnæðislánin og yfirdráttaheimildirnar!
Hvað er þá verið að endurgreiða? Jú, óverðtryggð lán. Í áðurnefndri auglýsingu er svo dæmi um að ef maður er með kr. 18.000.000 óverðtryggt lán hjá bankanum þá fær maður eitthvað um kr. 76.000 endurgreiddar.
En hver tekur átján milljón króna óverðtryggt lán? ég bara spyr.

Hugsanlega fer okkar endurgreiðsla líka í ferðsjóðinn okkar en ég á enn eftir að reikna út hvað við þurfum margar svona endurgreiðslur til að eiga fyrir einum flugmiða til Kanada...

18. feb. 2007

Lalala-la-la-lala

í (gær)morgun vaknaði ung og saklaus stúlka sem átti von á vinkonu í mat í hádeginu
vinkonan hringdi rétt fyrir hádegi og var í vandræðum með bílinn sinn
unga stúlkan fór að sækja vinkonuna
vinkonan rændi stúlkunni
.
.
.
í kvöld/nótt fer gæs að sofa
gæs sem er búin að:
láta dekra við sig
drekka
taka myndir
láta taka myndir af sér
hlæja
dansa magadans
fara smá "trip down memory lane"
drekka meira
borða
vera í útvarpinu
fara í bíltúra
dansa
kyssa Eric Hawk

takk fyrir mig!

13. feb. 2007

halló

jæja, loksins gefst tími til að blogga, póstþjónninn í vinnunni liggur nebblega niðri og þar sem starf mitt byggist meira og minna á því að sinna því sem er í pósthólfinu, þá hef ég lítið að gera í augnablikinu...

Ástæðan fyrir bloggleysi undanfarinna vikna eru veikindi sem hafa herjað á B35 undanfarið með tilheyrandi orku- og andleysi. Við hefðum kannski átt að fjárfesta í svona heilsukolvetnismorgunkorni til að bjarga heilsunni?
Við erum bæði orðin hress núna, 7-9-13, en höfum legið í pest til skiptis alveg síðan um áramót en vonum bæði að nú sjái fyrir endann á þessu volæði enda meira en nóg að gera hjá okkur á næstunni. Ekki nema tæpar 7 vikur í stóra daginn og nú þarf allt að gerast!
Já, 31. mars er nú staðfestur!