26. feb. 2003

auglýsingar


Ég heyrði útvarpsauglýsingu í gær frá nýja lággjalda flugfélaginu Iceland Express og ég fór að skellihlæja! Alveg frábær auglýsing, amk fyrir svona njóla eins og mig. Það eru nokkrar útgáfur af þessari auglýsingu sem í aðalatriðum snýst um að það er einhver stelpa að æfa sig að segja "Welcome on board this Iceland Express flight..." og í þessari tilteknu auglýsingu er einhver gæi að leiðbeina henni og segir henni að segja þessa setningu með dönskum hreim. Ef það er eitthvað sem mér finnst fyndið, þá er það að heyra ensku talaða með dönskum hreim og áherslum...
Hver man ekki eftir Eddie Skoller og:
"You have been to school today, not?
I thought it enough man!"

Mér finnst þetta fyndið!

Kannski eru þetta einhver laumuáhrif frá tæplega fjögurra ára búsetu í DK....


25. feb. 2003

nammidagar og nammilausir dagar


Ég er algjör lúser!
Ég þykist vera að taka mataræði mitt í gegn og minnka nammiát og svoleiðis þannig að ég er komin með reglu um nammidaga! Mjög sniðugt! Mér finnst helst til strangt að vera bara með 1 nammidag þannig að ég er með 'nammihelgar' þeas ég leyfi sjálfri mér að borða nammi um helgar, bæði lau og sun.
Svona til að byrja með.
Það er amk hugmyndin.
En reyndin er önnur.
Mínar helgar, amk 'nammihelgar' ná nefnilega yfirleitt frá fös-morgni til mán-kvölds eða jafnvel lengur! Eins og t.d. núna þá nær nammihelgin alveg fram á þriðjudag!!!
Eins og ég sagði: Ég er algjör lúser.

Byrja á fullu í ræktinni á morgun...

21. feb. 2003

samskipti


Hér kemur smá saga, ekki skálduð. Eins og flestir sem koma hingað reglulega vita, þá stóð ég í flutningum í janúar og það er svo sem ekki í frásögur færandi nema hvað að ég öðlaðist óvænta lífsreynslu útúr því. Eða réttara sagt, fékk nýja hugmynd um samskipti fólks í dag.
Alla vega, sendibílstjórinn sem hjálpaði mér bauð mér að borga beint inn á reikninginn sinn og gaf mér tilheyrandi upplýsingar og gsm-númerið sitt. Ég hins vegar stóð ekki við að borga á þeim degi sem ég hafði lofað, gerði það degi of seint og var með hálfgerðan móral yfir því og sendi honum SMS-skilaboð um að ég væri búin að borga þegar ég loksins komst í banka til að ganga frá því.
Einfalt og ofureðlilegt.

Hann svaraði mér tilbaka:
Ég hafði nú engar áhyggjur af greiðslunni... má ég spyrja þig einnar spurningar?

Hmm... þetta hljómar nú svolítið skringilega. Hvað vill hann vita? Og ég svara:
Hvað viltu vita?

Svarað um hæl:
Ertu einhleyp? ef þetta er of persónuleg spurning þá þarftu ekki að svara...

Pínlegt! Ég hef engan áhuga en veit ekki alveg hvernig á að gefa það til kynna. Finnst asnalegt að ljúga og segjast vera á föstu eða vera lesbía eða eitthvað þess háttar. Hux, hux, hux! í 2 klst. Og svo, er þetta ekki bara pent og nett 'nei takk':
reyndar er ég einhleyp en er bara ekki að leita mér að neinum...

Persónulega fannst mér þetta mjög einfalt og skiljanlegt og var bara nokkuð ánægð með mig. Og fegin að vera laus við þessa hangandi spurningu en um leið þá kom þetta:
ég var nú ekkert á höttunum eftir slíku - bara að spá í bíó, sund eða kaffihús

Ég svaraði ekki þessum síðustu skilaboðum því mér fannst ég alveg vera búin að segja NEI TAKK.

Þetta vakti mig aðeins til umhugsunar hvað samskipti manna hafa breyst undanfarin ár. Internet og gsm-símar. Samskipti nútímans. Maður er auðvitað nokkuð stikkfrí þegar maður hefur samband á þennan hátt og þarf ekki að horfa framan í manneskjuna sem maður er kannski eitthvað spenntur fyrir, þarf ekki að hafa áhyggjur af því að roðna eða stama eða að segja eitthvað ógáfulegt. Og höfnunin verður kannski ekki eins sterk heldur.
Ég frétti svo af einni skvísu um daginn sem sá flottan gæja í bænum og hafði uppi á netfanginu hans og sendi nokkrar línur. Er þetta málið í dag? Er það svona sem maður nær sér í gæja eða skvísu?


19. feb. 2003

lítið að frétta


já, lítið að frétta er bara komin með bullandi kvef og lýsið virkar sko ekki r...gat á það! Nóg um það. En það er bara ekkert annað að frétta, ég sest kannski niður í góðu tómi síðar og skálda einhverja skemmtilega sögu fyrir ykkur, kæru lesendur, svo þið haldið ekki að ég sé að gefa upp öndina...

kíkið svo á nýjasta bloggarann sem ég þekki, hana Brynku

13. feb. 2003

lýsi er allra meina bót


Eftir að hafa verið ógeðslega þreytt á morgnana í nokkrar vikur og alls ekki getað komið mér á fætur til að fara í ræktina og varla til þess að fara í skólann, þá ákvað ég að fara að eta einhver fjörefni. Ég ákvað að fylgja fordæmi bróður míns sem býr í Sverige og lætur senda sér Heilsutvennu reglulega út því sænsk vítamín virka ekki, og hef tekið þetta inn í 10 daga og er bara miklu hressari! Ég er mas búin að fara tvisvar í ræktina fyrir skóla í þessari viku en slíkt hefur ekki gerst síðan fyrir jól! Húrra fyrir lýsi og vítamínum.

Hitt er annað mál að maginn minn er ekki eins hrifinn og ég ropa upp lýsisbragði hálfan daginn...

Mér finnst alveg dásamlegt að búa á Íslandi þar sem öfgarnir geta verið svo miklir! Daginn er virkilega farið að lengja og það er orðið bjart kl. 9 og ekki dimmt fyrr en um kl. 19. Þetta er dásamlegt og mig kitlar og klæjar eftir því að komast aftur í tæri við bjartar sumarnætur!

11. feb. 2003

írónía


BNA-ferðin mín sem var ,,meant to be" er alveg augljóslega ekki ,,meant to be" þar sem að kanadíska flugfélagið HMY hefur ákveðið að fella allar ferðir til Evrópu niður eftir 10. mars.

Mín fyrsta ferð til BNA verður þá væntanlega til NY eins og ég hef áður ráðgert. En það verður samt ekki í nánustu framtíð því engar líkur eru á utanlandsferð hjá mér á þessu ári.

Nema ég vinni í lottó...

10. feb. 2003

helgin...


var bara nokkuð góð. Fór í ræktina á laugardaginn og tók vel á - hef ekki gert það í laaangan tíma þannig að ég er með smá strengi og harðsperrur í dag en mér finnst það ekkert slæmt. Það minnir mig á hvað ég var dugleg á laugardaginn og hvað ég ætla að halda áfram að vera dugleg næstu vikurnar. Það er jú árshátíð framundan í vinnunni og átakið sem er í gangi þessa dagana er 'Í kjólinn fyrir árshátíðina!' eða eitthvað. Reyndar kemst ég alveg í kjólinn en maður hefur samt bara gott af því að hreyfa sig aðeins.

Það var líka pulsupartí á laugardaginn. Langt síðan maður hefur farið í svoleiðis. Allur vinahópurinn og öll börnin, grillaðar pulsur og snjókoma. Ekki slæmur kokteill það. Eitthvað var rætt um '30 ára-ferðalagið' og því komið á framfæri að næstu 18 mánuðina má enginn í hópnum verða barnshafandi! En við eigum von á nýju barni um miðjan júlí.

Talandi um ferðalög. Mér var boðið að koma með til Seattle í maí/júní. Mig alveg dauðlangar, það vantar ekki og myndi hiklaust fara ef ég ætti pening! Það er nefnilega amerísk stelpa að vinna með mér, hún er frá Seattle og var að segja mér að hún og maðurinn hennar væru að spá í að fara í ca 1 mánuð í maí/júní og að ef ég vildi þá ætti ég að koma með. Spennandi, ekki satt?
En það furðulegasta við þetta er að einungis nokkrum dögum áður var spáð fyrir mér að ég væri að fara í ferðalag í maí/júní, með 2-3 öðrum og líklegast væri þetta til USA. Þetta passar alveg nákvæmlega saman!
It's fate.
It's meant to be.
Ég fæ bara bankalán!

NOT!!!

Ég ætla bara að vera dugleg að vinna í sumar og græða pening, ekki eyða honum!

7. feb. 2003

framundan...


... er fríhelgi! sú fyrsta í heilan mánuð og ég ætla sko að njóta hennar. Reyndar þarf ég að læra og það mikið en það verður frábært að þurfa ekki að fara í vinnuna. Á morgun er mér svo boðið í pulsupartý þar sem allir vinirnir ætla að mæta og börnin þeirra líka. Það verður gaman. Maður sér þessi litlu kríli ekki oft þegar maður á ekki barn sjálfur og er ekki inní svona barnapælingum.

Það var ,,sauma"klúbbur í vikunni og þetta var sko alvöru KONUklúbbur þar sem m.a. var rætt um barneignir, fæðingar (saltvatnssprautur og þess háttar), túrverki, blæðingar og Jack Ass. Og ég komst að því að ég þekki virkilega fólk sem finnst Jack Ass þættirnir fyndnir! Gott að það eru ekki allir eins. Ótrúlegt en satt, þá fór jafnmikill ef ekki meiri tími í að ræða JA en öll hin konumálin.
Reyndar var líka annað sem var rætt af ákafa og það var fyrirhugað þrítugsafmælisferðalag á næsta ári. Við erum nefnilega 12 sem náum þessum aldri á 10 mánuðum og það er víst ódýrara að fara saman til útlanda heldur en að kaupa 12 afmælisgjafir. Ég sé ekki alveg hvernig það reikningsdæmi snýr en mér er alveg sama, ég er alveg til í að fara til útlanda! Alltaf til í að fara til útlanda. Þannig að nú er kominn tími á að fara yfir hugmyndir og byrja að skipuleggja ferðalagið - amk komast að niðurstöðu um áfangastaðinn, já og tíma sem hentar öllum. Þetta verður eins og að leita að nál í heystakk!!! ;o)
I will keep you posted on our travel plans...

Ég dró Berglindi LúnuLöpp í bíó í gær. Við sáum Fridu. Ég kom mér ekki í bíó um síðustu helgi eins og ég ætlaði mér en er nú loksins búin að sjá Fridu. Mér fannst hún góð og bæði Salma Hayek og Alfred Molina stóðu sig með prýði. Mæli með myndinni. Bókinni reyndar líka.