29. mar. 2006

Draumfarir, NYC og Morgunblaðið

Mig hefur dreymt svo mikið undanfarið. Í fyrrinótt dreymdi mig t.d. að vinkona mín (32) og strákur sem er að vinna með mér (23) væru eitthvað að skjóta sig hvort í öðru en ég sé það ekki gerast í alvörunni. Hann tekur í vörina.
Í nótt dreymdi mig svo að ég væri í New York og væri heima hjá Ernu vinkonu að bíða eftir að hún kæmi heim úr vinnunni. Mér leiddist eitthvað að bíða þannig að ég fór eitthvað út og sá þá Baltasar Kormák leikstjóra og byrjaði eitthvað að tala við hann. Ég þurfti nefnilega að segja honum eitthvað en ég man ekkert hvað það var. Það endaði með því að ég labbaði með honum heim til hans þar sem var fullt af fólki og ég lenti þar í hrókasamræðum um plötur Halla og Ladda...
Ég skil ekkert hvaðan þetta kemur allt.

Í morgun vaknaði ég svo við það að David rétti mér Moggann sem hafði komið til okkar óvænt. Ég hélt að við værum þvílíkt að græða á því að nýr blaðberi væri byrjaður en svo kom í ljós að Icelandair hafði keypt allar auglýsingarnar í blaðinu í dag og því dreift í stærra upplagi.

24. mar. 2006

Andleg líðan, brúðkaup+orðapressa og helgin

Ég hef verið hálf domm undanfarna daga, eftir að ég skilaði síðasta þýðingaverkefninu mínu og eftir að það komst á hreint að ég væri að fara að skipta um vinnu. Held að þetta sé bara uppsöfnuð þreyta og í gær langaði mig hreinlega ekki að tala við fólk. Var í engu skapi fyrir félagsskap en ég er öll að koma til.

Við erum búin að búa til blogg fyrir brúðkaupið okkar, sem er eiginlega meira ætlað sem upplýsingaveita til vina og ættingja í Kanada og annars staðar sem ekki þekkja til á Íslandi. En að sjálfsögðu er öllum velkomið að líta við þar, sú síða er hýst af Wordpress og ég er jafnvel að spá í að færa þessa síðu þangað, sjáum til. Þessi síða þarfnast alla vega upplyftingar.

Helgin framundan er róleg, ekkert planað annað en tiltekt og heimilisleg verkefni. En ég ætla að njóta þess á meðan ég er bara í einu starfi.

Á mánudagskvöldið er svo þetta á dagskránni.

13. mar. 2006

BraBra

ég fékk að heyra það í morgun að ég væri ósanngjörn og frek (það síðara reyndar ekki sagt beint við mig) en ég fékk mínu framgengt þannig að frá og með 1. apríl verð ég í 150% vinnu um óákveðin tíma. Þó aldrei lengur en til 31. maí.

"Brabra" segir þýðÖndin

11. mar. 2006

Að eiga eða að ná?

Ég var að tala við Garún vinkonu mína, hún hringdi í mig til að athuga hvað andlegri heilsu liði. Hún varð nebblega fyrir þeirri (ó)skemmtilegu reynslu að keyra mig heim eftir vísindaferðina í gær og ég jós yfir hana öllum þeim miður skemmtilegu hugsunum sem ásóttu mig eftir að hafa áttað mig á því að ég hefði misst af tækifærinu hjá Skjali.

Alla vega ég byrjaði á því að þakka henni fyrir afnot af ótrúlega stórum eyrum í gær, stórum í merkingunni rausnarlegum en það hljómaði því miður ekki þannig þegar ég sagði það heldur eins og ég væri að segja að hún væri með stór eyru. Svo hélt samtalið áfram og ég sagði eitthvað um að eiga ekki upp í nefið á mér yfir einhverju og hún sagði þá:

G: "Átt?"

E: "Já, ég á ekki upp í nefið á mér yfir þessu." voðalega er hún vitlaus að hafa ekki heyrt þetta orðatiltæki áður en hvaðan ætli það sé komið? hmmm, kannski eitthvað tengt því að eiga ekki til neftóbak í nefið á sér, hmm....

G, hlæjandi: "Meinarðu ekki að þú nærð ekki upp í nefið á þér?" núna skellihlæjandi

E: "Jú, auðvitað! Og mér sem fannst þú treg að hafa ekki heyrt þetta orðatiltæki áður."

Svo hlógum við alveg eins og bavíanar í smátíma. Held samt að ég sé búin að fá overdose af orðum í dag eftir að hafa setið við skriftir meira og minna í allan dag. Fyrst að semja bréf sem ekki verður misskilið og svo að þýða. Held að það sé komin háttatími á mig núna.

God nat og sov godt.

8. mar. 2006

blikur á lofti

jamm, það eru blikur á lofti varðandi nýju vinnuna af því að gamla vinnan er farin að draga í land með hvenær ég get losnað frá þeim. Ég geri mér alveg fulla grein fyrir því að brotthvarf mitt skilur eftir sig ákveðið skarð sem tíma tekur að fylla* en mér finnst að það væri alveg hægt að leysa þetta ef viljinn virkilega er fyrir hendi.
Það er bara mjög súrt að þurfa að sjá á eftir tækifæri að starfi sem maður er að mennta sig fyrir af því að maður getur ekki losnað úr fúlu þjónustustarfi!!!
Alla vega, þetta ætti allt að skýrast á morgun.

Hluti af mér langar bara til ganga út 31. marz og mæta ekki aftur...
en ég hef ekki samvisku í það.

aaaaaarrrrrrggggggggggghhhhhhhhhh

*ekki að ég sé ómissandi, það tekur bara tíma að komast inní það sem ég geri.

4. mar. 2006

nokkrir venjulegir dagar, loksins...

Já, það hefur verið ansi mikið að gera hjá mér undanfarið en ég átti nokkra venjulega daga núna í lok vikunnar en svo er hasarinn að byrja aftur núna.

Alla vega, við komumst norður á Hofsós um daginn og áttum alveg frábæra helgi í frábærum félagsskap og komum í bæinn nokkrum rekaviðardrumbum og fjörugrjóti ríkari. Síðan þá hef ég svo verið upptekin við að þýða þegar ég hef ekki verið í vinnunni.
Já, ég sagði þýða. Mér bauðst nefnilega smá aukaverkefni við að þýða innréttingabækling sem var mjög gaman og gekk bara nokkuð vel. Tja, eiginlega svo vel að mér bauðst fullt starf við þýðingar! Ég gat ekki annað en gripið tækifærið og kem því til með að skipta um starf eftir nokkrar vikur.
Svona er lífið nú óútreiknanlegt.

Núna áðan var ég að eyða úreltri bloggfærslu sem ég var ekki búin að klára og þar af leiðandi ekki búin að birta en þar sá ég þessa setningu:
"vinnan mín hefur ekki orðið neitt skemmtilegri en hver veit hvað gerist í framhaldinu af þessum þýðingum..."
Heilmikið gerðist í framhaldi af þessum þýðingum og í raun miklu meira en ég átti von á eða bjóst við. Ójá og þetta átti að vera viðburðalítið ár...