30. júl. 2007

égþoliekkiDV!!!

Allir sem fylgdust eitthvað með fréttum í gær vita af hræðilegum harmleik sem átti sér stað í Reykjavík og á Þingvöllum. Ég er mjög slegin yfir þessum fréttum eins og flestir Íslendingar, geri ég ráð fyrir.
Og kannski pínulítið forvitin, þjóðin er jú lítil, skyldi maður þekkja/kannast við þetta fólk? En tíminn mun leiða það í ljós og fjölmiðlar eiga eftir að fjalla um málið og einhverjir, því miður, að velta sér uppúr því. Ef vera skyldi að maður þekki til fólksins þá á maður eftir að frétta það eftir réttum leiðum, vona ég.
Eða réttara sagt, vonaði ég.

Í morgun, um kl. 8:30 fór ég inn í 10-11 til að kaupa mér nesti fyrir vinnuna og þar er búið að stilla DV upp í öllu sínu veldi og á forsíðunni stendur:
"X myrti Y og skaut svo sjálfan sig" eða eitthvað álíka grafískt.
Báðir mennirnir nafngreindir og ekki sólarhringur liðinn frá atburðunum.

Mér finnst þetta gróft og algjört virðingarleysi gagnvart aðstandendum og fórnarlömbunum. Hverju er Jón Jónsson útí bæ eða ég bættari við að vita nöfnin?
Engu en aðstandendur fá ekki að jafna sig í friði eða jafnvel að láta alla sína vita.

Aðstandendur og vinir beggja mannanna eiga samúð mína alla.

SVEI YKKUR HJÁ DV!!!

29. júl. 2007

Grænland

Ferðin til Grænlands var alveg frábær og við erum strax farin að tala um hvað við ætlum að gera þegar við flyt... uss, ég meina í næstu ferð þangað!
Í þessari ferð flugum við í flugvél og þyrlu; sigldum í alls kyns bátum; sáum ísjaka af öllum stærðum og gerðum, sáum fullt af hröfnum, moskítóflugum og rollum en bara einn örn; borðuðum sauðnaut, hreindýr, hval og dásamlegustu fiskisúpu í heimi (engar ýkjur); drukkum grænlenskan bjór í lítratali, skáluðum í Dry Martini með ísmolum úr 2000 ára gömlum ís sem brakaði í og smökkuðum grænlenskt kaffi; gengum út um allt, slökuðum á, nutum veðurblíðunnar og lífsins almennt, svo fátt eitt sé nefnt.

19. júl. 2007

Sumarfrí

Það er dásamlegt að vera í sumarfríi!
Það byrjaði á vinnupartíi í Nauthólsvík síðastliðinn föstudag þar sem mikið var etið af góðum mat og enn meira drukkið af góðum bjór. Síðastliðinn sunnudag fengum við svo að njóta einnar brúðkaupsgjafarinnar þegar Ragnar dreif okkur í flúðasiglingu í Hvítá og það var mikið gaman. Í gær fengum við svo að njóta annarrar gjafar þegar við drukkum forláta bjórinn sem Unnur og Heiða færðu okkur. Bjór er ekki bara bjór.
Framundan er svo enn ein gjöfin, sú stærsta, því við erum á leiðinni til Grænlands!

12. júl. 2007

CSI Miami

Þess vegna er CSI Miami skemmtilegt!



Frábært að byrja laaangan vinnudag með þessu!