AFSLÁTTARKJÖR
Akkúrat núna er ég að bíða eftir því að risinn úr Hvanngili komi og sæki mig (á eðaljeppanum en ekki Fjallabakstuðrunni) því við, ásamt fleirum, erum á leiðinni í Fjallabaksteiti á Geysi!
Ég hlakka svo til!!! Það verður svo gaman!!! Hitta allt þetta hálfruglaða og kolruglaða lið aftur. Það verður spennandi að sjá hver fær heiðurinn af því að setjast í nuddsætið hjá Hvanngilsrisanum... Hann vildi amk aldrei nudda mig í sumar því ég var samstarfskona...
En að öðru, ég fór í vax á fimmtudaginn því mig langaði að vera dömuleg og fín með engin hár á leggjunum. Ég var nefnilega orðin alveg svakalega loðin (búin að safna samviskusamlega í 6 vikur!). Alveg sama hvað María vinkona segir, þá var ég orðin kafloðin og ódömuleg! Nema hvað, þegar vaxmeðferðinni er lokið segir skvísan:
"Heyrðu, ég get ekki verið að rukka þig fullt gjald því þetta er svo lítið. Ég gef þér smá afslátt!"
Ég var svo aldeilis hissa! Hef aldrei heyrt að maður fái afslátt af vaxi af því að maður er með svo lítið af hárum! Og ég sem hélt að ég væri svo svakalega loðin... María vinkona hefur þá kannski rétt fyrir sér þrátt fyrir allt!
Ég þakkaði bara pent fyrir mig og fór...
|