31. ágú. 2007

VÁ!

Við hjónin fórum á tónleika með Eivöru Pálsdóttur og Stórsveit Reykjavíkur í Austurbæ í gær og og þeir voru frábærir. Ég get ekki sagt neitt annað en „Vá!“

VÁ!

27. ágú. 2007

mánudagur

Hvernig er hægt að vera svona latur eins og ég er í dag? Er það kannski bara af því að það er mánudagur?
Ég hef MIKLU meira en nóg að gera í vinnunni en kem mér bara ekki að verki. Kannski af því að þetta eru allt verkefni í leiðinlegri kantinum, eilífar reddingar á síðustu stundu og svoleiðis...

bleeeeeehhhhhhh!!!!!!!

4. ágú. 2007

"Það er verslunarmannahelgi og maður rolast einn í bænum"

Reyndar er ég ekki ein en það eru engin stórferðalög áætluð um þessa helgi. David þarf að læra því sumarönninni er að ljúka og svo eru próf framundan hjá honum. Ég stefni að því að vera dugleg á einhverjum sviðum, t.d. taka til og þrífa heima, í garðinum, heimsækja vini og ættingja og að slaka á.
Ég vona að allir gangi hægt um gleðinnar dyr um helgina!

2. ágú. 2007

útborgunardagur

Við fengum útborgað í gær eins og öllu vinnandi fólki sæmir og svo sem ekki frásagnarvert nema hvað að David fékk einungis rúmlega 8.000 krónur útborgaðar. Ástæðan er einhver villa í launakerfinu hjá ÍTR/Reykjavíkurborg og hann var ekki sá eini sem varð fyrir röngum launaútreikningum en það á að leiðrétta þetta í næstu viku. Ennþá finnst mér þetta svo sem ekki frásagnarvert og lítið sem hér kemur á óvart. Það koma alltaf upp einhverjar villur í svona tölvukerfum af og til og það tekur jú allt sinn tíma þegar maður er í vinnu hjá ríkis- eða sveitarfélagabáknum.

En mér finnst ástæða til að dvelja við þetta og blogga um þetta því að þessi villa er víst búin að vera í kerfinu SÍÐAN Í MAÍ!!! Hvað er í gangi?!?!? Um síðustu mánaðamót fékk ein 18 ára stelpa sem er að vinna með David t.a.m. 300.000 krónur útborgaðar en sagði víst engum frá því. Það er greinilega hægt að þéna feitt hjá ÍTR.

Launaseðillinn hans var svo stórskemmtileg lesning því samkvæmt honum var David í launalausu leyfi í 1,14 mánuð í júlí en samt fékk hann þó eitthvað útborgað. Geri aðrir betur!