8. des. 2006

„Sælla er að þiggja en gefa“

Ég hvet alla til að fylgjast með Jólalagakeppni Rásar 2 sem er í gangi núna. Reyndar er búið að velja lögin 10 en nú er mál að kjósa!

Uppáhaldslagið mitt er Sælla er að þiggja en gefa enda er þar eðalsveitin Dogdaze á ferð og trommuleikari hennar er einn sá myndarlegasti hér á landi en hann er (mjög vel) giftur fjölskyldufaðir þannig að „fingrene væk“ stelpur!

Eru ekki annars allir í blússandi jólaskapi?

24. nóv. 2006

Ullarsokkablæti

Ég svaf ekkert alltof vel síðastliðna nótt og í eitt skiptið þegar ég rumskaði heyrðist mér ég heyra urr þannig að ég lagði aðeins við hlustir.
Jú, þetta var urr svo ég settist upp til að átta mig á því hvaðan það kæmi. Ég sá Rökkvu og Myrkva, tvær af kisunum okkar, inni hjá okkur en þau voru alveg róleg og ekki að urra.
Ég fór á fætur og leit inn í litla herbergið inn af svefnherberginu okkar, þar var enginn. Ég hlustaði betur og heyrði enn urrað. Fór fram og greip með mér úðabrúsann, nauðsynlegt uppeldistæki fyrir kattareigandann, og leit inn í stofu. Sá ekkert þannig að ég kveikti ljósið.
Ofbirta.
Áfram urrað en engin læti.
Þegar ég vandist ljósinu sá ég hvar Ljómi sat í húsbóndahorninu í stofunni með angóruullarsokkinn minn í munninum og urraði. Það átti sko enginn að fá að nálgast hann eða sokkinn!

Ég held að hann sé með ullarsokkablæti. Hann lætur allar aðra sokka (og flíkur) í friði en ef hann finnur ullarsokka á liggjandi á glámbekk þá slær hann eign sinni á þá. Sérstaklega ef það eru angórusokkar. Hann reyndi m.a.s. að ná einum slíkum af fætinum á mér um daginn.

20. nóv. 2006

Lýst er eftir:

Sykurmoladisknum mínum Life's too good. Hefur einhver fengið hann lánaðan? Ég finn hann ekki heima. Lásinn er inn-út-inn-inn-út.

Eða nei, það var hjólið.

18. nóv. 2006

Sykurmolarnir

eða Sugarmoles eins og Einar Örn kallaði þau í gær, voru sætir.

Tónleikarnir voru frábærir, spilagleðin í fyrirrúmi, kemistríið á milli Bjarkar og Einars Arnar frábært og meiriháttar að fá Johnny Triumph á svið í lokin með sitt frábæra lag Luftgítar.

"I really don't like lobster!"

16. nóv. 2006

Bleh búið!

já og það er kominn fimmtudagur hjá mér.

Fékk alveg nóg af sleninu í gær og sagði því stríð á hendur og henti því út með rykinu, því þegar ég kom heim í gær þá ryksugaði ég, skúraði, skipti á rúminu og ég veit ekki hvað og hvað. Enda líður mér miklu betur - komin á eðlilegt ról aftur.

og á morgun...

þá er ég að fara á tónleika með Sykurmolunum!!!
sem minnir mig á að ég þarf að fara að sækja miðana...

15. nóv. 2006

13. nóv. 2006

mánudagur

mér líður eins og ég sé enn hálfsofandi en samt er klukkan orðin rúmlega níu og ég er komin í vinnuna og farin að sinna skyldum mínum hér.

ætla að fá mér kaffibolla...

bleh

8. nóv. 2006

Nú er úti veður...

(veit ekki hvort það er vott, vont eða eitthvað annað, heyri bara í því)

og mig langar að vera heima og kúra hjá manninum mínum sem er lasinn...

7. nóv. 2006

It’s alive!

Já ég er á lífi og þykist ætla að fara að lifa blogglífi líka, gangi mér vel!

Þótt ég viti að þetta er ekki beinlínis dagbók þar sem ég þarf að tiltaka allt sem á daga mína drífur þá ætla ég samt að bjóða upp á smá yfirlit yfir undanfarnar vikur/mánuði...

Bara svona af því að ég veit ekki alveg hvernig ég á að byrja hér aftur en mig langar að komast í gang.

Síðan síðast (eða þarsíðast eða bara einhvern tímann) er ég búin að:

- fara í tvær sumarbústaðarferðir; sú fyrri til að skoða stjörnurnar en stjörnukíkirinn varð eftir í bænum þannig að í staðinn spiluðum við Catan og brutum sófa, sú seinni til að tjútta og tralla með vinahópnum og óboj hvað það er langt síðan ég hef farið í bústað með þessu liði og óboj hvað það var gaman!
- læra að spila Catan og það er rosalega skemmtilegt spil!
- fara á stelpudjamm með frábærum konum sem m.a. leiddi okkur inn á Café Paris, Óðal, Café Kozy. Say no more. Og uppskeran daginn eftir var af verri endanum: þynnka dauðans!
- detta í húsakaupapælingar en þið vitið nú allt um það...
- vera löt að æfa mig – fussumsvei!
- vera haldin ákvarðanafælni varðandi allt sem við kemur brúðkaupinu....
- skrópa í vikulegri göngu með vinkonunum - ja, sveiskítalykt!

Og síðast en ekki síst, fagna brautskráningu míns heittelskaða frá HÍ.

1. okt. 2006

undan feldi, eða ekki

jamm, við erum skriðin undan feldi og höfum tekið ákvörðun:

áfram í Vesturbænum
hér er gott að vera
ótímabært að fara

en þetta var mjög hressandi hugsanaferli sem vakti okkur til umhugsunar um íbúðina okkar, sem btw hefur hækkað um 36% í verði á þessu eina ári!
spark í rassa okkar til að fara gera það sem við höfum bara talað um hingað til!

skriðin undir feld aftur til að losna við kvefið.

Aaaatjú!

28. sep. 2006

undir feld

samkvæmt verðmati eru húsakaupin raunhæf.
spurningin er: Viljum við?
ég er lögst undir feld.

óboj

27. sep. 2006

óboj!

húsið er líka æðislegt í alvörunni og fasteignasalinn kemur til okkar í dag að verðmeta Bárugötuna.

óboj!

26. sep. 2006

Alvarlegar afleiðingar

Já, það getur haft alvarlegar, eða a.m.k. ófyrirséðar, afleiðingar að sitja og lesa blöðin með morgunkaffinu í rúminu á sunnudagsmorgnum.
Það sem gerðist síðasta sunnudag var það að við fundum hús sem okkur langar til að kaupa og við erum að fara að skoða það núna á eftir.
Á Eyrarbakka.

Írónían í þessu er að í þessari viku, fyrir nákvæmlega ári síðan fórum við David að skoða íbúð sem var til sölu á Bárugötunni án þess að ætla okkur að kaupa.
Tæpri viku síðar var búið að ganga frá kaupsamningi und alles.

(Ég er ekki viss um að ég hafi taugar í annan svoleiðis rússíbana.)

25. ágú. 2006

í uppáhaldi þessa dagana:

... hafragrautur með smá púðursykri, eplabitum, hnetum og kanil. Namminamm!
... kroppaskrúbbið frá Bláa lóninu. Alger unaður!
... útilegur og önnur samvera með vinum og vandamönnum.
... Alexander Mcall Smith. Hann er bara fyndinn. Er núna að lesa framhaldið af 44 Scotland Street.

Bráðum kemur alvöru færsla frá mér, kannski eins konar sumaryfirlit þar sem ég hef ekki verið á bloggbrókunum í sumar...

20. júl. 2006

Svona eiga vinkonur að vera!

Hringja í mann rétt fyrir hádegi, plata mann út í hádegismat í sólinni og láta mann kveljast á loftlausri skrifstofunni eftir hádegið á meðan úti er sumar og sól (ekki algeng blanda á Íslandi í augnablikinu).

Ég ætla að hætta að vinna klukkan 3 í dag og njóta veðurblíðunnar í garðinum heima.

Takk yðar hátign.

11. júl. 2006

rauð bréfaklemma

og svo finnst mér þessi sniðugur!

í tilefni af...

afmælisdeginum hennar Berglindar ákvað ég að henda þessum hlekk á Nornabúðina inn á síðuna mína.

Til hamingju með afmælið, Berglindin mín!

ps. svo fer ég líka bráðum að taka til hérna inni, hef verið svo upptekin við að taka til á Bárunni...

14. jún. 2006

varð barasta að stela þessum:

Leiðsögumaður var með hóp erlendra ferðamanna á leið um landið okkar. Á ónefndum stað sáu þeir fýl fljúga um og spurðu túristarnir hvað þessi fugl héti. Leiðsögumaðurinn var ekki klár á enska nafninu en svaraði um hæl:
„Well, this is an elephant with a 'y'.“

18. maí 2006

óboj!

Á maður virkilega að taka þetta fólk alvarlega og veita því atkvæði? Ég meina, það er fyndið að Silvía Nótt skuli gera þetta en ég tek hana heldur ekki alvarlega.

16. maí 2006

"Lets start with a little jumping!"*

Þar sem ég er komin með nett ógeð á sjálfri mér, aukakílóum og hreyfingarleysi (kannski frekar hreyfingarleti) þá skráði ég mig á svona stelpunámskeið í einni af líkamsræktarstöðvum borgarinnar. Það er mjög gaman og gengur bara vel, svona eftir fyrstu vikuna. Í gær lét hún okkur sippa og sippa og sippa og sippa. Ég hef ekki hoppað svona mikið síðan í janúar 1990 þegar Stefan nokkur Krisping byrjaði fyrstu karateæfinguna með þeim orðum sem titillinn vísar í.

Eníveis, elsku, stóru kúlukálfarnir mínir eru núna í einum hnút og ég þarf helst að teygja á þeim á tveggja klukkustundarfresti eða eitthvað álíka. Þetta eru klárlega þeir vöðvar í mínum líkama sem hafa minnstu teygjuna og það hefur alltaf verið þannig. Reyndar fann ég mikinn og góðan mun á þeim eftir jóganámskeið sem ég fór á fyrir tæpum tveimur árum en að sjálfsögðu hef ég verið löt að halda því við. Ætti kannski bara að skella mér í jóga aftur... hmmm...

* lesist með sænskum hreim og nb! mjög mikilvægt að lesa 'jumping' sem 'yumping'...

11. maí 2006

Takk fyrir mig!

Blóm í vinnuna, gjafakort í Mál og menningu, eftirmiðdagslúr með kisunum, thailenskur matur í góðum félagsskap, einn bjór á Ölstofunni, allskyns kossaflengs og faðmlög, skriflegar og símleiðis hamingjuóskir og fallegt veður var meðal þess sem ég fékk að njóta á afmælisdaginn minn.
Takk fyrir mig.

9. maí 2006

Í dag...

fellur lífið í eðlilegar skorður aftur og ég er orðin árinu eldri. Dojojongs!

6. maí 2006

nýtt tímabil

Ég get ekki neitað því að það var ákveðinn léttir að vakna í morgun og finna að ég átti allskonar aðrar hugsanir í kollinum en hvernig væri best að skipuleggja vinnudaginn til að fá sem mest útúr honum á báðum stöðum og samt ná heim fyrir kvöldmat. En það fylgir því vissulega ákveðinn söknuður að vera hætt í Hátækni því að ég hef aldrei unnið með jafnmikið af skemmtilegu og léttklikkuðu fólki á einum stað.

Ég var reyndar svo búin á því í gær, sjálfsagt einhvers konar spennufall og uppsöfnuð þreyta, að ég var komin upp í rúm kortér yfir átta og fór því ekki í afmælispartíið í gær.

Nú er ég mætt aftur í vinnuna til að vinna eins og hestur að klára stóra verkefnið sem við eigum að skila á mánudaginn þannig að eðlilegt líf hefst ekki aftur fyrr en á þriðjudag.

5. maí 2006

síðasti dagurinn!!!

jessörííí! í dag er síðasti tvöfaldi vinnudagurinn minn og er það vel.

... það gengur ágætlega á Everest en áfall að vakna og frétta það að fullt af fólki hafi ekki skilað sér og að einhverjir hafa dáið. Ég veit ekki af hverju ég upplifi þessa bók svona sterkt.

... ég er að hugsa um að taka hana Garún vinkonu mér til fyrirmyndar og svara öllum kommentum sem ég fæ á síðuna mína. Hef bara gert það eftir hentugleika hingað til.

... í kvöld er svo fyrsta afmælisveislan af nokkrum sem eru framundan á næstu dögum.

... og þessu gleymdi ég alveg í gær (skammskamm Elísabet!):
Til hamingju með afmælið Sigurborg og Dögg

4. maí 2006

gat skeð!

bróðir minn elskulegur lánaði okkur skötuhjúum bílinn sinn til afnota um óákveðinn tíma þar sem hann er kominn með nýja vinnu og fékk þar bíl til sinna afnota. Einn maður hefur ekkert við tvo bíla að gera þannig hann semsagt lánaði okkur sinn eigin bíl.
Sem er stór, amrískur bensíngleypir þannig að maður er ekkert mikið að rúnta á honum af gamni sínu, enda á ég þetta líka forláta strætókort sem rennur ekki út fyrr en á laugardag (dugar akkúrat til að klára gömlu vinnuna).
Eníveis, við þurftum að skreppa alla leið út á Keflavik International Airport í morgun til að sækja vinkonu okkar sem var að koma frá BNA og til þess að vera viss um að komast báðar leiðir klakklaust, þá keyptum við bensín í morgun. Fyrir kr. 127 og einhverja aura lítrann!!!

Svo þegar ég fletti núna uppá mbl þá er barasta búið að lækka bensínverð allsstaðar. Já, fussumsvei segi ég bara!!!

arrógant...

er bara að velta fyrir mér, getur ropi verið hrokafullur?
það er gaur að vinna með mér og svona almennt séð er hann yfir aðra hafin (að eigin mati) og ég sver það, ég heyri það þegar hann ropar. Sem hann gerir hátt og snjallt á hverjum degi. Og ég fæ svona vibbahroll í hvert sinn.

ef þið hafið horft á sænsku fangelsisþættina í vetur, Häktet, þá var þar gaur sem var síétandi og ég get ekki að því gert að þessi samstarfsmaður minn minnir mig á þennan sænska. Ekki alveg jafnógeðslegur en eiginlega alveg jafnóaðlaðandi.

just wondering...

tveir...

dagar enn.
Ég vildi bara að þetta væri búið, því þá gæti ég eytt minni tíma í nýju vinnunni (sem bráðum verður VinnaN) og meiri tíma heima að lesa. Ég er nefnilega að lesa svo spennandi bók og í gær, áður en ég fór að sofa, var ég búin að ná toppinum á Everest og aftur komin niður í fjórðu búðir, hálf rugluð af þreytu og súrefnisskorti og algjörlega ómeðvituð um að 19 manns væru föst í hlíðum tindsins útaf óveðrinu.
Jamm, ég er að lesa Á fjalli lífs og dauða (Into Thin Air) eftir Jon Krakauer. Fékk hana lánaða hjá frænku minni sem lánaði mér líka þessa. Þeim ber nefnilega ekki saman um atburði og annað, segir hún og það er gaman að sjá mismunandi skoðanir og upplifun manna.

Ég man eftir þessum leiðangrum, fyrir akkúrat 10 árum, í apríl/maí 1996. Ég man eftir þessu af því að í einum þeirra var dönsk kona sem var fyrst danskra kvenna til að ná toppnum á Everest og þarafleiðandi mikil umfjöllun um þetta í fjölmiðlum í DK. Hún skrifaði einmitt bók um þessa lífsreynslu og ef ég verð ekki komin með nóg eftir að hafa lesið bæði Krakauer og Boukreev, þá verð ég mér kannski úti um bókina hennar Lenu líka.

Eníveis, vinnan kallar.

3. maí 2006

þrír...

dagar eftir í tvöfaldri vinnu... þetta er allt að koma.

Mér bauðst að fá boðsmiða á (forsýningu?) á MI:III annað kvöld en ég afþakkaði. Ég veit ekki hvað það er en ég er hreinlega komin með óbeit á Tom Cruise. Ég hef svo sem alveg upplifað það áður að missa áhugann á einhverjum leikara þannig að maður hættir að eltast við myndir með viðkomandi en heldur samt áfram að horfa á gömlu myndirnar. En svoleiðis er það ekki með TC - ég hreinlega get ekki hugsað mér að horfa á neitt með honum, hvorki nýtt né gamalt. En það er alltílagi, ég sakna hans ekkert.

2. maí 2006

Fjórir...

dagar eftir í Hátækni. Sem er eiginlega alveg 4 dögum og mikið fyrir mig núna, er nefnilega alveg búin að fá nóg af ofurvinnu í bili.

Já, niðurtalningin er hafin!

1. maí 2006

1. maí

æ, hvað mig langar mikið að vera allt annarsstaðar en í vinnunni í dag. Mig langar að fá mér ís, fara í gönguferð í Esjunni eða Heiðmörk, hitta skemmtilegta fólk eða bara vera úti og njóta maísólarinnar! En í dag á ég ekkert val, verð að vinna.

Það eru bara 4 tvöfaldir vinnudagar eftir!!! Síðasta vinnudagurinn í Hátækni er á föstudaginn og það er svooo ljúft!

Annars eru bara ammli og meiri ammli framundan, 6 manneskjur sem ég þekki vel eiga afmæli á næstu 10 dögum...
Til hamingju með það afmælisbörn!

Síðar:

Ég heyri í lúðrablæstri 1. maí göngunnar inn um gluggann minn. Mig langar ennþá út.

Enn síðar:

Ég ætla út núna.
Út í maírigninguna,
sólin gafst uppá að bíða eftir mér.

28. apr. 2006

Spenningurinn í algleymingi

Við skötuhjúin á Bárunni höfum beðið spennt eftir að “vinsælasti sjónvarpsþáttur í heimi”* hæfi aftur göngu sína á Skjá einum eftir að nýja sjónvarpið okkar opnaði hann fyrir okkur aftur. Í gær hófst svo gleðin og við sáum vin okkar Horatio Caine loksins aftur og þvílík gleði! Hann hefur ekkert breyst og er alveg einsog þegar við sáum hann síðast.
Nú megið þið ekki misskilja mig, galdurinn er að horfa á þennan þátt sem grínþátt. Fyrsta atriðið er alltaf best, þið vitið áður en að kynningin á þættinum kemur. Þá er hann alltaf á vettvanginum þar sem glæpurinn átti sér stað og hann á alltaf síðustu setninguna. Hádramatískur einsog honum einum er lagið. Það er líka alveg merkilegt hvað hann snýr oft baki í fólk sem hann talar við eða horfir bara alls ekki á það.
Ég veit ekki með ykkur en okkur finnst hann alveg drepfyndinn og frábært að herma eftir honum. Þegar við erum í stuði þá endurtökum við allar línurnar hans og hlæjum svo einsog bavíanar.
Ég mæli með því að prófa það.

*mig langar rosalega að vita hvert úrtakið var til að fá þessa niðurstöðu, trúi því engan veginn að þetta standist.

24. apr. 2006

Brúðkaup, þynnka og vinna

Brúðkaupið á laugardaginn var alveg stórskemmtilegt og gaman að sjá nánast alla móðurfjölskylduna saman komna á einum stað. Ég er nefnilega ekki eins frændrækin einsog ég vildi vera. Það stendur allt til bóta og batnandi manni er best að lifa.
Í gær fór lítið fyrir vinnu einsog áformað hafði verið en hinsvegar fór meira fyrir þynnku og afslöppun. Já, ég var ekki mjög hress þegar ég vaknaði í gær en það lagaðist þegar leið á daginn en ég ákvað samt að njóta þess að gera mest lítið og dagurinn fór að mestu í sjónvarpsgláp og kattaklapp. Enda vaknaði ég fersk í morgun, tilbúin að takast á við næstsíðustu löngu vinnuvikuna mína. Núna get ég farið að telja niður!

22. apr. 2006

í gær, í dag, á morgun

í gær var keiluferð með vinnunni (gömlu), í dag er brúðkaup frænku minnar, á morgun er afslöppun og smá vinna.

akkúrat núna: að lesa yfir ritgerð fyrir D

20. apr. 2006

Gleðilegt sumar!

samkvæmt mbl.is fraus vetur og sumar saman þannig að það ætti að vera von á góðu sumri. Það er allavega bjart og fallegt í dag.
Takk fyrir veturinn!

17. apr. 2006

annar í páskum

mætt í vinnuna aftur eftir þriggja daga frí sem var alveg svakalega endurnærandi og dagurinn í dag verður bara stuttur, 9-16, en svo á að halda áfram að njóta lífsins með mínum heittelskaða.

14. apr. 2006

mýs í Vesturbænum

já, það er ekki frá því að við höfum orðið vör við músagang undanfarið og eigum reyndar ekkert von á að það lagist. Músagangur er kannski ekki alveg rétta orðið því þær ganga nú ekki mikið þessar títlur eftir að hafa verið veiddar og bornar inn í hús til okkar af ofurveiðikisunni okkar, henni Rökkvu.
Þeim sem til okkar þekkja, eru varla hissa á því að David er að springa úr stolti yfir veiðikunnáttu kattarins.

Fernt af öllu...

ég ætlaði víst að vera búin að þessu um síðustu helgi en betra er seint en aldrei...

4 störf sem ég hef unnið um ævina:
Uppvaskari (fyrsta starfið)
Au pair (í útlöndum)
Skálavörður á hálendinu (draumastarf)
þýðandi (nýjast)

4 bíómyndir sem ég gæti horft á aftur og aftur:
Secondhand Lions
Amélie
The Princess Bride
Saving Grace

4 staðir sem ég hef búið á:
Mogadishu, Sómalíu
Mukalla, Yemen
Pattani, Thailandi
Kaupmannahöfn, Danmörku

4 sjónvarpsþættir sem mér líkar:
Aðþrengdar eiginkonur
Spooks
Aukaleikarar
Jörðin

4 síður sem ég skoða daglega fyrir utan bloggið:
mbl.is
... er rosalega léleg að vafra um netið

4 matarkyns sem ég held upp á:
íslenskt lambakjöt
íslenskur fiskur
mexikóskur matur
asískur (indverskur/thailenskur/kínverskur...) matur

4 staðir sem ég vildi heldur vera á núna:
Álftavatni að Fjallabaki
Snæfellsnesi
víðsvegar í Kanada
Skagafirði

4 staðir sem ég hef heimsótt í fríum:
Noregur/Svíþjóð (æfingabúðir í Karate + heimsókn til ættingja)
Kanada (skoða uppruna D)
Barcelona (U2 tónleikar!!!)
Færeyjar (með gömlu Norrænu)

4 bloggarar sem þurfa að gera þetta líka:
þeir sem ekki hafa gert þetta áður...

2. apr. 2006

fyrsti apríll

Dagurinn í gær var fínn, ég vaknaði eldsnemma, alveg eldhress eftir að hafa skriðið uppí rúm kl. 19:30 kvöldið áður, alveg að drepast úr mígreni. Gaf mér góðan tíma með kaffibollann og blöðin í rúminu á meðan ég leyfði David að vakna í rólegheitunum.

Það fyrsta virkilega spennandi sem ég las í blöðunum í gær var að Apple-búðin var að bjóða Ipod á hálfvirði útaf einhverjum breytingum á tollaflokkum. Ég velti því fyrir mér hvort við skötuhjúin ættum ekki að skella okkur þangað og ná okkur í einn svona ipod á hálfvirði á meðan ég hélt áfram að lesa blaðið. Nokkrum opnum síðar var svo
umfjöllun um 1. apríl gabb fjölmiðla í gegnum árin og þá fattaði ég djókið. Þannig að ég hafði allan varann á mér þegar lestur/fletting næsta blaðs hófst. Og viti menn, fljótt kom ég auga á frétt um að Den Danske Bank og SPRON ætluðu að bjóða íbúðalán með 3% vöxtum og ég lét nú ekki gabbast af því. Enda svosem ekkert í neinum húsnæðishugleiðingum nema hvernig við getum betrumbætt Báruna okkar. Eníveis, flettingin hélt áfram og þá kom hið allraskemmtilegasta í blöðunum þann daginn:
Bílaleigubíll á 35 kr. hjá Hertz.
Ég þorði nú ekki alveg að trúa þessu þannig að ég hringdi til þeirra og jú, mikið rétt, þeir voru að fagna 35 ára afmæli sínu á Íslandi og buðu alla sína bíla á 35 kr. yfir daginn. Ég var ekki lengi að koma mér í föt og af stað til að næla mér í einn slíkan!
Þannig að í gær rúntuðum við David um á Toyota Avensis Station og keyptum fullt af dóti. Fullorðinsdóti.

Neineinei, ekki svona dónalegu dóti, heldur nýtt sjónvarp, dvd-spilara og magnara (en engan ipod). Hátalararnir koma svo í vikunni. Það var nú alveg löngu kominn tími á að fá nýtt sjónvarp, þótt 30 ára Hitatchi tækið okkar hafi nú alveg staðið fyrir sínu hingað til en því miður ekki hægt að tengja dvd-spilara við það. Það kom líka í ljós við sjónvarpsskiptin að við erum alltíeinu komin með aðgang að Skjá einum, Sirkus og Omega en fundum bara RÚV á gamla tækinu. Það var reyndar alveg nóg að hafa bara eina sjónvarpsstöð.

Við fórum svo og skiluðum bílnum í morgun og á leiðinni heim komum við við hjá Jamie og skoðuðum nýju kettlingana hennar. Þeir eru svo sætir!

Á morgun byrjar svo ballið, þar sem ég verð í 150% vinnu. :o)

29. mar. 2006

Draumfarir, NYC og Morgunblaðið

Mig hefur dreymt svo mikið undanfarið. Í fyrrinótt dreymdi mig t.d. að vinkona mín (32) og strákur sem er að vinna með mér (23) væru eitthvað að skjóta sig hvort í öðru en ég sé það ekki gerast í alvörunni. Hann tekur í vörina.
Í nótt dreymdi mig svo að ég væri í New York og væri heima hjá Ernu vinkonu að bíða eftir að hún kæmi heim úr vinnunni. Mér leiddist eitthvað að bíða þannig að ég fór eitthvað út og sá þá Baltasar Kormák leikstjóra og byrjaði eitthvað að tala við hann. Ég þurfti nefnilega að segja honum eitthvað en ég man ekkert hvað það var. Það endaði með því að ég labbaði með honum heim til hans þar sem var fullt af fólki og ég lenti þar í hrókasamræðum um plötur Halla og Ladda...
Ég skil ekkert hvaðan þetta kemur allt.

Í morgun vaknaði ég svo við það að David rétti mér Moggann sem hafði komið til okkar óvænt. Ég hélt að við værum þvílíkt að græða á því að nýr blaðberi væri byrjaður en svo kom í ljós að Icelandair hafði keypt allar auglýsingarnar í blaðinu í dag og því dreift í stærra upplagi.

24. mar. 2006

Andleg líðan, brúðkaup+orðapressa og helgin

Ég hef verið hálf domm undanfarna daga, eftir að ég skilaði síðasta þýðingaverkefninu mínu og eftir að það komst á hreint að ég væri að fara að skipta um vinnu. Held að þetta sé bara uppsöfnuð þreyta og í gær langaði mig hreinlega ekki að tala við fólk. Var í engu skapi fyrir félagsskap en ég er öll að koma til.

Við erum búin að búa til blogg fyrir brúðkaupið okkar, sem er eiginlega meira ætlað sem upplýsingaveita til vina og ættingja í Kanada og annars staðar sem ekki þekkja til á Íslandi. En að sjálfsögðu er öllum velkomið að líta við þar, sú síða er hýst af Wordpress og ég er jafnvel að spá í að færa þessa síðu þangað, sjáum til. Þessi síða þarfnast alla vega upplyftingar.

Helgin framundan er róleg, ekkert planað annað en tiltekt og heimilisleg verkefni. En ég ætla að njóta þess á meðan ég er bara í einu starfi.

Á mánudagskvöldið er svo þetta á dagskránni.

13. mar. 2006

BraBra

ég fékk að heyra það í morgun að ég væri ósanngjörn og frek (það síðara reyndar ekki sagt beint við mig) en ég fékk mínu framgengt þannig að frá og með 1. apríl verð ég í 150% vinnu um óákveðin tíma. Þó aldrei lengur en til 31. maí.

"Brabra" segir þýðÖndin

11. mar. 2006

Að eiga eða að ná?

Ég var að tala við Garún vinkonu mína, hún hringdi í mig til að athuga hvað andlegri heilsu liði. Hún varð nebblega fyrir þeirri (ó)skemmtilegu reynslu að keyra mig heim eftir vísindaferðina í gær og ég jós yfir hana öllum þeim miður skemmtilegu hugsunum sem ásóttu mig eftir að hafa áttað mig á því að ég hefði misst af tækifærinu hjá Skjali.

Alla vega ég byrjaði á því að þakka henni fyrir afnot af ótrúlega stórum eyrum í gær, stórum í merkingunni rausnarlegum en það hljómaði því miður ekki þannig þegar ég sagði það heldur eins og ég væri að segja að hún væri með stór eyru. Svo hélt samtalið áfram og ég sagði eitthvað um að eiga ekki upp í nefið á mér yfir einhverju og hún sagði þá:

G: "Átt?"

E: "Já, ég á ekki upp í nefið á mér yfir þessu." voðalega er hún vitlaus að hafa ekki heyrt þetta orðatiltæki áður en hvaðan ætli það sé komið? hmmm, kannski eitthvað tengt því að eiga ekki til neftóbak í nefið á sér, hmm....

G, hlæjandi: "Meinarðu ekki að þú nærð ekki upp í nefið á þér?" núna skellihlæjandi

E: "Jú, auðvitað! Og mér sem fannst þú treg að hafa ekki heyrt þetta orðatiltæki áður."

Svo hlógum við alveg eins og bavíanar í smátíma. Held samt að ég sé búin að fá overdose af orðum í dag eftir að hafa setið við skriftir meira og minna í allan dag. Fyrst að semja bréf sem ekki verður misskilið og svo að þýða. Held að það sé komin háttatími á mig núna.

God nat og sov godt.

8. mar. 2006

blikur á lofti

jamm, það eru blikur á lofti varðandi nýju vinnuna af því að gamla vinnan er farin að draga í land með hvenær ég get losnað frá þeim. Ég geri mér alveg fulla grein fyrir því að brotthvarf mitt skilur eftir sig ákveðið skarð sem tíma tekur að fylla* en mér finnst að það væri alveg hægt að leysa þetta ef viljinn virkilega er fyrir hendi.
Það er bara mjög súrt að þurfa að sjá á eftir tækifæri að starfi sem maður er að mennta sig fyrir af því að maður getur ekki losnað úr fúlu þjónustustarfi!!!
Alla vega, þetta ætti allt að skýrast á morgun.

Hluti af mér langar bara til ganga út 31. marz og mæta ekki aftur...
en ég hef ekki samvisku í það.

aaaaaarrrrrrggggggggggghhhhhhhhhh

*ekki að ég sé ómissandi, það tekur bara tíma að komast inní það sem ég geri.

4. mar. 2006

nokkrir venjulegir dagar, loksins...

Já, það hefur verið ansi mikið að gera hjá mér undanfarið en ég átti nokkra venjulega daga núna í lok vikunnar en svo er hasarinn að byrja aftur núna.

Alla vega, við komumst norður á Hofsós um daginn og áttum alveg frábæra helgi í frábærum félagsskap og komum í bæinn nokkrum rekaviðardrumbum og fjörugrjóti ríkari. Síðan þá hef ég svo verið upptekin við að þýða þegar ég hef ekki verið í vinnunni.
Já, ég sagði þýða. Mér bauðst nefnilega smá aukaverkefni við að þýða innréttingabækling sem var mjög gaman og gekk bara nokkuð vel. Tja, eiginlega svo vel að mér bauðst fullt starf við þýðingar! Ég gat ekki annað en gripið tækifærið og kem því til með að skipta um starf eftir nokkrar vikur.
Svona er lífið nú óútreiknanlegt.

Núna áðan var ég að eyða úreltri bloggfærslu sem ég var ekki búin að klára og þar af leiðandi ekki búin að birta en þar sá ég þessa setningu:
"vinnan mín hefur ekki orðið neitt skemmtilegri en hver veit hvað gerist í framhaldinu af þessum þýðingum..."
Heilmikið gerðist í framhaldi af þessum þýðingum og í raun miklu meira en ég átti von á eða bjóst við. Ójá og þetta átti að vera viðburðalítið ár...

16. feb. 2006

bleh...

Ætlunin var að vera núna stödd í vellystingum hjá vinafólki okkar á Hofsósi.
Í staðinn sit ég hér á Bárunni og skoða tilboð í tryggingar frá tryggingafélaginu mínu.

Ákall mitt til veðurguðanna virðist hafa virkað.

31. jan. 2006

til hamingju með afmælið, þið öll janúarbörn!

Svona í lok mánaðarins finnst mér rétt að óska öllum þeim janúarafmælisbörnum sem ég þekki til hamingju með afmælið. Ég hef verið jafnleiðinleg við ykkur öll og hvort sem þið trúið mér eða ekki, þá mundi ég eftir ykkur öllum og hugsaði:

"Æ, ég hringi/smessa/meila á eftir!"

En einsog þið janúarbörn vitið, þá gerðist það ekki, þannig að ég hef ákveðið að 'á eftir' er núna og ég blogg'etta til ykkar!

Innilegar hamingjuóskir með daginn og gangi ykkur vel á nýja árinu:
Andri ellefta
Anna Lilja sautjánda
Erna sautjánda
Bryndís tuttugasta
Marý tuttugastaogfimmta
Einar Snorri þrítugastaogfyrsta


Er ég nokkuð að gleyma einhverjum...?

19. jan. 2006

"Mér finnst rigningin góð..."

en ég vil frekar hafa snjó og frost á veturna (nóg er af rigningunni á öðrum árstímum).

Heyrið þið það, Veðurguðir?!?!?

3. jan. 2006

nýtt ár

já, það er víst komið nýtt ár og lífið heldur áfram sinn vanagang. Satt að segja er ég pínulítið fegin því þetta voru ein af meira stressandi jólum í mínu lífi. Líklegast vegna þess að ég var að bíða eftir jólafríinu mínu allt fram til 21.12. þegar ég áttaði mig á því að það sem ég ætlaði mér að gera, þyrfti ég að gera EFTIR vinnu eða um helgar. Einsog áður sagði, ætla ég að taka þetta með í reikninginn á þessu ári svo ég geti jólast á aðventunni og haldið fjölskylduaðventukaffið sem ég hef ætlað mér að halda á fyrsta í aðventu undanfarin 2 ár.
Nóg um það.

Nýtt ár, já. Og fullt af fallegum fyrirheitum. Efst á blaði er minnkun líkamsmassa heimilisfólks (kettir ekki meðtaldir) því árið 2005 fór að mestu leyti í (óþarfa)forðasöfnun... Eins og ársins 2005 verður minnst sem viðburðaríka ársins (2 flutningar, íbúðakaup, nýhafið kattauppeldi, atvinnuskipti, bílasala og síðast en ekki síst trúlofun) þá mun ársins 2006 verða minnst sem sparnaðarársins. Já, það þarf að herða sultarólarnar í ár til að eiga nóg fyrir veislunni/svallinu/djamminu/fjörinu sem stefnt er að 31.03.2007 ... jú og sömuleiðis til að líta sem best út þá.
Massaminnkunin er þegar hafin með salati á matseðlinum fjórum sinnum þessa vikuna og amk. þrisvar sinnum í viku á næstunni...

Gleðilegt ár!