18. apr. 2005

mig langar að blogga en...

ég er bara svo déskoti andlaus í augnablikinu... Það sýgur bæði úr manni orku og andann að standa í atvinnuumsóknarbréfaskriftum (vá, hvað þetta er flott orð hjá mér!)

Ég hafði ansi undarlegar draumfarir í fyrrinótt, tja, eða kannski ekki undarlegar heldur frekar óþægilegar. Ég var að tala við einhvern sem ég þekki en get ómögulega munað hver er (eða um hvað við vorum að tala) og alltíeinu var viðkomandi komin með hníf á loft og stakk mig í kviðinn. Ég vaknaði um leið með andfælum og greip um kviðinn og bjóst við blóðpolli en auðvitað var ekkert slíkt. Sem betur fer. Og mikið asskoti var erfitt og óþægilegt að sofna aftur.

14. apr. 2005

lífið er bara nokkuð ljúft í dag...

reyndar byrjaði dagurinn ekkert alltof vel útaf samskiptum mínum við ákveðna ráðningastofu hér í bæ enda eru það fyrirbæri sem ég ber ekkert alltof mikið traust til. Frekar írónískt þar sem ég er í bullandi atvinnuleit um þessar mundir.
Allavega, það kemur kannski pistill um þessar ósléttu farir mínar síðar en núna vil ég frekar hugsa um sólina og íslenska fánann sem blaktir við hún núna.

Ég hef nefnilega eytt lunganu úr deginum á háskólasvæðinu, því ég er svo stórheppin að fá tækifæri til að vinna aðeins á ráðstefnunni sem er haldin til heiðurs Frú Vigdísi Finnbogadóttur og var einmitt að koma af fyrstu málstofunni. Ég get hreinlega ekki lýst því með orðum hvað það er gaman og mikill léttir fyrir önd mína að vera innan um fólk sem hefur eitthvað meira að segja en hvað þessi og hinn er með mikið nefhár og er loðinn um eyrun. En þannig er umræðunni háttað á mínum núverandi vinnustað, jú og svo er líka hægt að tala um 'Ædolið' fimm daga vikunnar og hvað eru helstu fréttirnar í DV. Og vinnuveitandi minn "skilur ekkert í fólki sem er mörg ár í háskóla og fer svo bara að vinna á bókasafni." Enda er ég löngu hætt að taka mér kaffitíma.
Nóg um það, erindin sem ég heyrði í dag voru vel til þess fallin að gleðja sál mína og er það vel.

Til hamingju með daginn á morgun, Frú Vigdís.

5. apr. 2005

jahérnahér!

Já, ég er svo aldeilis hissa. Ég sit í Bókhlöðunni og er að tölvast og einsog gerist svo oft hérna þá byrjaði alltíeinu sími að hringja. Og hringja. Og aldrei þessu vant þá gleymdi maðurinn/strákurinn alveg örugglega að slökkva á símanum því hann varð frekar vandræðalegur stóð upp og um leið og hann byrjaði að labba fram, sagði hann:
"Afsakið."

Það er alltof oft og á alltof mörgum stöðum sem fólk gleymir (eða gleymir ekki) að slökkva á símum sínum eða taka hljóðið af og er svo alveg nákvæmlega sama hvort það truflar fólk í nágrenninu eða ekki. Hver hefur ekki farið í bíó og heyrt símhringingar út um allan sal? Ég hef m.a.s. setið fyrir aftan einhvern gaur sem hreinlega svaraði í símann og byrjaði að spjalla í miðri mynd! Ég hef líka lent í þessu á veitingastað þar sem konan hélt greinilega að hún væri að tala í gamla sveitasímann því hún hreinlega gargaði það sem hún þurfti að segja og yfirgnæfði alla í kringum sig. Og svo kannski það eftirminnilegasta þegar ég fór í leikhús að sjá Með fulla vasa af grjóti, þá byrjaði sími að hringja og hann hringdi og hringdi og truflaði að sjálfsögðu sýninguna því leikhúsgestir voru hættir að hlusta og horfa á það sem fór fram á sviðinu heldur horfðu í áttina að upptökum hringingarinnar. En hann Hilmir Snær bjargaði þessu með því látast svara í símann og allur salurinn sprakk náttla úr hlátri. Og stelpuskjátan með símann skammaðist sín vonandi niðrí tær.

Allavega, ég var bara svo ánægð með viðbrögð drengsins hérna áðan að ég varð bara að deila þessu með ykkur.

ekki Jón Oddur heldur...

Jón Bjarni sem ég var að bæta við hlekkina mína en hann er lítill frændi minn sem er í Boston að jafna sig eftir hjartaaðgerð, rúmlega hálfs árs og hann stendur sig eins og hetja!

Ef maður væri bara sjálfur svona duglegur!

14. mar. 2005

eftir góða helgi...

...geta mánudagar verið frekar leiðinlegir. Alla vega ef maður er í leiðinlegri vinnu.

En helgin var mjög góð. Ég lét loksins verða af því að halda svona samangaman fyrir þær vinkonur mínar sem ekki (eða amk lítið) tengjast öðrum vinkonum mínum og við vorum alls 11 og þetta var bara rosalega gaman og núna er ég voða spennt að sjá hvort að skvísurnar þori eitthvað að tala saman innbyrðis án mín... en til þess var leikurinn eiginlega gerður.
Ég hló alveg rosalega mikið.
Ég drakk líka slatta og fékk svo sannarlega að finna fyrir því í gær...
Ég var meira að segja svo úr sambandi að ég tók símann minn rafmagnslausan með mér í vinnuna en ekkert hleðslutæki og það þýddi það að ég eyddi drjúgri stund, þegar ég kom heim í gærkvöldi, í að lesa og hlusta á skilaboð.
Já og svara þeim líka. Nema einu sem ég gleymdi en ég reddaði því í dag.
eníveis, helgin var góð en vinnuvikan framundan er frekar óspennandi vegna þess að vinnan mín er bara hundhelv...leiðinleg þannig að hér með óska ég eftir vinnu!
Ef einhver hefur einhver sambönd og veit um eitthvað gott handa mér... ;o)

þar til síðar, túttilítú!

8. mar. 2005

tími til að blogga

já, ég held það barasta.
ég ákvað að drífa mig á LBS eftir vinnu því ég þurfti svo svakalega mikið að komast á netið til að gera ýmislegt (erum ekki en búin að redda nettengingu á nýja staðinn) en nú sit ég hér fyrir framan skjáinn (við hliðina á gaurnum sem kann ekki fingrasetninguna og hamrar á hvern einasta staf af öllum kröftum og hann er sko að skrifa ritgerð eða eitthvað - ég bíð bara eftir því að hann fari í gegnum lyklaborðið...)... bíddu hvar var ég?
jú, ég sit hér fyrir framan skjáinn og er alveg blanco. Veit ekkert í minn haus hvað ég ætlaði að gera á netinu. Kannski er ég bara netfíkill og verð að vera nettengd...?

Annars er bara allt fínt að frétta. Píparinn er loksins kominn til að græja lagnirnar heima eftir að við biðum og biðum og biðum eftir honum til að geta tengt þvottavélina en reyndar gáfumst við upp á að bíða og reyndum að tengja og þá kom í ljós að það var bara heitt vatn í boði... og við lentum líka í svona senu þar sem kraninn þeyttist af og vatnið sprautaðist beint uppí loftið - voða fallegur gosbrunnur - og ég reyndi að halda fyrir (jamm, ekta ljóska) og gargaði á David að koma og skrúfa fyrir!
Hann kom og sagði: "Skrúfa fyrir hvað?"
og ég svaraði: "Ég veit það ekki, bara eitthvað!"

Þetta er soldið fyndið svona eftir á.

og við fengum líka miða á Iron Maiden, liggaliggalái! 91 dagur!

26. feb. 2005

flutt!

jæja, þá erum við flutt! reyndar er allt fullt af kössum útum allt og heilmikil vinna eftir en þetta kemur allt. Við erum líka orðnir hamingjusamir eigendur að ísskáp, þvottavél og örbylgjuofni, allt hlutir sem ég hef aldrei átt áður þannig að mér finnst það fyndið...
annars er maður frekar andlaus og hlandlaus þessa dagana, aðeins of þreyttur og vegna þess missti ég af síðasta saumaklúbbi þar sem enn ein óléttan var á dagskrá. Maður fer að verða eins og eitthvað viðrini svona barnlaus... Bara að djóka. Til hamingju með bumbubúana stelpur!

okeibæþá

15. feb. 2005

búin að taka aðeins til...

sko, ég neyddist til að taka NZ-hlekk drottningarinnar út því hann virkaði hreinlega ekki hjá mér og setti svo bara alls konar strik hingað og þangað á síðuna mína og ég er ekki nógu flink til að skilja 'hvorfor'.
og svo bætti ég við hlekk á unga stúlku sem er við nám í Rússlandi og er stóra systir hennar efst á listanum mínum en hún er einmitt hætt að vera í fríi...
og svo breytti ég líka bókalistanum mínum í bestu bækurnar sem ég las 2004 og mæli eindregið með þeim öllum ef þið skylduð ekki vera búin að lesa þær. Er mas búin að lesa Life of Pi tvisvar! Og hlakka til að lesa hana í þriðja skiptið...

og að lokum:
mig vantar ÞVOTTAVÉL & SÓFA fyrir lítið vegna flutninga. Anyone, anyone?

blogga seinna.

11. feb. 2005

úff!

ég þarf að fara að taka aðeins til á síðunni minni, allt fullt af einhverjum strikum og læti og ég hef ekki guðmund akkuru.
og ég ætti kannski að fara að blogga líka...? en ekki núna.

seinna

13. jan. 2005

var einhver...

svo sneddí að taka upp Amacing Race þáttinn sem var á Stöð 2 á þriðjudaginn? Mig laaangar svo að sjá hann...

6. jan. 2005

Mr. Twenty-Four

Við kíktum aðeins á Hressó á milli jóla og nýárs og þar sáum við þennan gaur sem, eins og alþjóð veit, eyddi hér nokkrum dögum um áramótin (og borðaði nautasteik).
Alla vega, við þessa sýn (sem var frekar lítil og rindilsleg) þá datt mér í hug að það gæti verið gaman að leigja ofurseríuna 24. David tók vel í það og við náðum í fyrstu spóluna síðasta sunnudag. Þættirnir eru mjög spennandi og góð afþreying en maður er alltof spenntur yfir þeim og einhvern veginn hefur allt sem við þurfum að gera, verið sett á bið eða til hliðar því nú sitjum við bara stjörf á kvöldin og horfum K. Sutherland bjarga sér og sínum úr bráðum lífsháska í 225 mín. í senn. Svo staulumst við í rúmið rétt fyrir miðnætti algjörlega freðin af of miklu 'intensive' sjónvarpsglápi.
Lífið var miklu betra þegar maður var ekki með sjónvarp!

jamm og gleðilegt ár til ykkar allra!!!
...sérstaklega til þeirra 5 sem sendu mér sms-kveðju til að hjálpa mér að endurnýja símaskrána mína - nú veit ég hverjir nenna að tala við mig... ;o)

17. des. 2004

jólalús

Við skruppum skottúr í Kringluna í gær því við áttum þangað nokkur erindi, meðal þeirra var að koma við í apótekinu. Nú er búið að breyta því og það er orðið risastórt með svaka ilmvatns-/snyrtivöru-eitthvað fremst. Við komum inn og ætluðum að ganga í gegnum þessa fínerísdeild og beint inn í apóteksdeildina því við vorum bæði þreytt og langaði bara heim.
Við erum varla komin 5 skref inn í parfumeríið og sýnum umhverfinu engan sérstakan áhuga þegar aðvífandi kemur ung, vellyktandi kona sem segir brosandi:
"Get ég aðstoðað ykkur?" og hugsaði væntanlega með sér að hún gæti nú aldeilis látið David kaupa eitthvað vellyktandi handa mér...
"Já" svaraði ég, "hvar finnum við lúsakamb?"
Greyið konan, hún fölnaði undir farðanum og tók eitt skref frá okkur og stamaði:
"Öhh, þa-a-að er þa-a-arna innar" og benti inn í apótekið.

Já, svona er að eiga kærasta sem vinnur á leikskóla.

12. des. 2004

riiing-riiing! riiing-riiing!

símamálin komin í lag! fannst það blóðugt en það endaði með því að ég keypti nýjan síma og get nú farið að blaðra og smessa á fullu aftur.
Þið sem þekkið mig megið endilega senda mér smákveðju með sms því símaskráin mín hvarf auðvitað um leið og síminn og maður er alveg hættur að geta munað símanúmer eftir að þessir b...aðir símar fóru að muna þau fyrir mann...

já og ekki gleyma að setja nafnið ykkar undir kveðjuna svo ég viti nú hver á hvaða númer :o)

10. des. 2004

vetur...

er þegar maður vaknar á morgnana og fer í vinnuna í myrkri. Líka þegar maður mætir ekki fyrr en kl. 10:30...

22. nóv. 2004

EKKI HRINGJA EÐA SENDA MÉR SMS!!!

ég er nú ekki frá því að þetta hafi verið eitt af leiðinlegri haustum sem ég hef upplifað á mínum 30 árum... fyrst þetta langa stress og depurðarvesen á mér í haust og svo þegar það hafði runnið sitt skeið á enda þá lagðist ég í leiðindaflensu og þurfti að fresta stelpu/dömu/skvísu/norna/gellu/gyðju/o.s.frv.-partíinu sem ég er búin að ganga með í maganum í næstum TVÖ ÁR!!! Vegna sömu flensu datt ég alveg úr æfingataktinum mínum og er bara eins og belja á svelli. Ekki má gleyma tímareiminni í bílnum mínum og þeim viðgerðarkostnaði sem þar fylgdi. Ég hélt að þetta væri nóg, að nú væri ég búin að fá allan þann leiðindaskammt sem mér væri ætlaður í ár en ÓNEI!

Ég týndi símanum mínum á föstudaginn og einhver annar fann hann en lét mig ekki vita, búhúhúhúúú!!! :o(

Ég læt ykkur vita þegar símamálin komast í lag aftur og það verður vonandi sem fyrst því maður er orðinn svo háður þessum ...skota ;o)

9. nóv. 2004

er enginn annar pirraður...

á nýju blikkedíblikk-stefnunni á mbl-vefnum en ég? Bara spurði. Ég er eiginlega alveg hætt að nenna að skoða þennan vef útaf blikkinu.
Ég er semsagt ekki diskódrottning í hjarta mínu...

öhömm...

já, mér finnst ég þurfa að ræskja mig áður en ég byrja því ég hef ekkert bloggað af viti í haust og kemur þar margt til. En kannski fyrst og fremst af því að þetta haust hefur verið mér frekar erfitt andlega (ég hélt á tímabili að ég væri alveg að tapa mér) og stundum hafði ég varla orku til að halda mér vakandi og því síður eitthvað 'overskud' til að blogga og vera hress. Núna held ég að ég sé komin 'on top of things' aftur, ég vona það alla vega, og ætti að geta farið að halda reglulegu bloggeríi.
Annað sem reyndar hefur böggað mig líka er að þótt ég sé komin með tölvu heim þá gengur ekkert að koma henni í netsamband og það er fúlt. En úr því að ég er farin að geta unnið alla mína tölvuvinnu heima, þá nenni ég ekki að hanga í tölvuverunum og þar af leiðandi bloggast lítið hjá mér.

Nóg af afsökunum í bili. Af mér er allt gott að frétta; í dásamlega ömurlegri vinnu, ástfangnari en allt sem ástfangið er, skuldug uppfyrir haus, skemmti mér í skólanum, byrjuð í ræktinni á fullu og staðráðin í að standa mig í blogginu á næstunni...

25. okt. 2004

þetta er allt að koma

já, ég veit að ég sagði það líka fyrir einhverjum dögum síðan en ég fer alveg að blogga aftur. Alveg satt.
En núna var ég að bæta inn nýjum hlekk. Hún er svakalega fyndin, alla vega þegar maður hittir hana.

Ég á að vera að læra en ekki að blogga í hlöðunni núna þannig að ég ætla að hætta þessu bulli. Get líka farið að blogga heima þar sem að nettengingin á fartölvunni okkar er LOKSINS komin í gagnið!!!

bloggumst!

13. okt. 2004

28. sep. 2004

brummbrumm!

jamm, Kölski var að hringja og segja mér að Rauðka mín er komin í gang aftur, þannig að núna er ég að fara að sækja hana JIBBÍÍÍÍ!!! ...ooog að borga reikinginn uppá rúm 70þ BÚHÚHÚHÚÚÚ!!!

annars er ég bara á fullu að leita mér að vinnu, er einhver þarna úti sem getur bent á eitthvað?!?!?!?
- hmmm... maður ætti kannski að fara í bílabransann?

22. sep. 2004

bíllinn minn

Kölski var að hringja í mig áðan og sagði mér það að hann væri búinn að skipta um tímareimina en það virkaði ekki þannig að það þarf að fara að vesenast í ventlum og öðru dóti. Æðislegt! þar sem maður er nú svo ríkur þessa dagana, eða þannig...

Svo er ég búin að sitja í marga klukkutíma að semja nokkrar atvinnuumsóknir og fullgera starfsferilsskrána mína. Af hverju var enginn búinn að segja mér hvað þetta er leiðinlegt?!!!??

bleh!

21. sep. 2004

það sem manni dettur í hug!

Ég var rétt áðan í Bókabúð máls og menningar og sá þessa bók í hillunni.
Og það sem ég hugsaði var: "Ég vona að Krakauer hafi ekki skrifað þessa bók líka af því að hann sjá sjálfan sig í öðrum bræðranna..." (Svona rétt eins og hann skrifaði bók um Chris McCandless, líklegast af því að hann sá sjálfan sig í honum)

19. sep. 2004

bækur

jæja, þá er ég búin að uppfæra bókalistann minn og bæta inn þeim bókum sem ég las í sumar. Þær voru nú misgóðar og misáhugaverðar en ég get alla vega sagt að Life of Pi var laaangbest, að hinum ólöstuðum og Bare Bones var langverst. Og leiðinlegust.

Life of Pi byrjaði frekar rólega og ég var alltaf að bíða eftir því að blessaður Pí kæmist um borð í bátinn og hvernig hann höndlaði tígrisdýrið og mér fannst fyrsti hlutinn of langur og óþarfur þegar ég var að lesa hann en um leið og seinni hlutinn (í bátnum) byrjaði þá sá ég hvernig þetta tengdist allt. Ég mæli eindregið með þessari bók!

Into the Wild var áhugaverð en mér fannst maður alltaf vera að kafa ofaní líf manns sem ekki vildi láta skrifa um sig eða vera miðpunktur athyglinnar á þennan hátt. Enda held ég að bókin hafi meira verið skrifuð í þágu foreldranna en stráksins, þeirra leið að sætta sig við hvarf hans. Of mikil forvitni um náungann sem var áhugaverður en ég hefði mikið frekar vilja heyra söguna beint frá honum en ekki bara um hann. En þar sem hann er látinn er það ekki hægt.

Þessa dagana er lítið um skemmtilestur eða afþreyingarlestur hjá mér því þegar ég hvíli mig á fræðiritum um dróttkvæðum kveðskap og Snorra Eddu þá glugga ég í þessa bók sem er skólabók en mjög fljótlesin. Það er langt síðan ég hef haft svona einfalda skólabók og ég verð stundum hálfpirruð þegar ég er að lesa hana því mér finnst hún alltof einföld og einhvern veginn alltaf verið að tyggja sömu tugguna ofaní mann. Stundum verð ég að gapa eins og ég get, svo bókin geti gleypt fyrir mig líka.

Nóg um bækur, ætla að fara að snúa mér að Ólafi mínum og Hrynhendunni hans.

13. sep. 2004

bilaður bíll og dramatískt partí

Þótt helgin hafi ekki byrjað mjög glæsilega með biluðum bíl á föstudag þá var hún samt mjög góð. Ekki síst vegna þess að við erum búin að koma okkur fyrir að mestu leyti í nýju íbúðinni og svo vorum við að fagna því að það er eitt ár síðan ég nældi í D.

Bíltúrar helgarinnar urðu ekki eins margir og ætlunin var en það var allt í lagi því það viðraði vel til göngutúra. Eins eyddum við dágóðum tíma hér á sunnudaginn. Mér líst bara nokkuð vel á safnið, svona við fyrstu sýn og hvet alla til að kíkja þangað.

Það var partí í húsinu á laugardaginn sem er svo sem ekki í frásögur færandi nema hvað að mér fannst lagavalið ansi dramatískt. Ég hélt reyndar á tímabili að það væri einhver í bullandi ástarsorg að reyna að drekkja sorgum og ástum sínum en það passaði ekki alveg við lagavalið og svo var eitthvað fleira fólk á staðnum en bara húsráðandi. En lögin sem voru hæst spiluð voru m.a. Cat Stevens Father and Son / Vilhjálmur Vilhjálmsson Þú átt mig ein / Guns'n'Roses Don't you cry / Simon & Garfunkel Sound of Silence og þar fram eftir götunum. Og þetta eru lögin sem voru hæst spiluð.

9. sep. 2004

fleiri börn

já, ég var að bæta einni barnasíðu við, sá stutti er alveg glænýr eða tæplega 2ja vikna í dag og hann á stóra systur sem heitir María Nína og er alveg að verða fjögurra ára. Kíkið endilega á þau!

bleh búið!

núna virkar þetta fínt, þeas. að 'publisha' en hins vegar er soldið erfitt að komast inná síðuna sjálfa og engar athugasemdir.
Maður getur víst ekki fengið allt...

8. sep. 2004

bleh!

þetta virkar ekki! :(

hringleikahús lífsins

Ég áttaði mig á því í gær að það er ekki bara tískan sem fer í hringi heldur lífið líka.

Ég sat í fyrsta tímanum í þýðingafræði í gær og þá áttaði ég mig á því að fyrir X mörgum árum í kóngsins Köbenhavn sat ég einmitt á skólabekk og hugðist leggja stund á 'ervhvervssprog' í Copenhagen Business School með það að markmiði að verða túlkur. En einhvern veginn var ég ekki alveg nógu sátt við skólann; alltíeinu komin inn í bekkjarkerfi eftir 5 ár í áfangakerfi; eða lífið í Köben og var skyndilega komin með heimþrá og dreif mig heim.
Til að læra íslensku í HÍ en það var nákvæmlega það sem ég hafði 'flúið' frá 3 árum áður. Og núna er íslenskunni svona um það bil lokið og ég búin að loka öðrum hring með því að skella mér í þýðingafræði.

Já, lífið getur svo sannarlega verið dálítið írónískt á stundum.

7. sep. 2004

yoga

Eitt það fyrsta sem ég gerði þegar ég kom í bæinn var að skrá mig á yoga-námskeið og fyrsti tíminn var í gær. Þetta leggst voðalega vel í mig og ég hlakka til að halda áfram og ég veit að þetta leggst líka voðavel í D því honum finnst að ég þurfi að læra að slaka aðeins á. Ég hélt reyndar að hann væri einn um þá skoðun en annað kom í ljós áðan.

Ég fór í heimsókn til vinkonu minnar og sagði henni að ég væri byrjuð í yoga og hún svaraði með einu orði en mikilli áherslu: "Gott!"

Ég gat ekki annað en brosað.

5. sep. 2004

helgin

jæja, þessi helgi hefur eiginlega farið fyrir lítið og ég sem ætlaði að vera svo dugleg en planið mitt rústaðist einhvern veginn allt af því að D var veikur í gær og mætti ekki í vinnuna og ég var að mestu leyti bara heima að kúra með honum og svoleiðis. Og svo voru líka smá björgunaraðgerðir í gangi fyrir amrísku stelpuna sem kom með mér í bæinn á þriðjudaginn var. Henni tókst nefnilega að velta bíl sem bróðir hennar (læknir á vellinum) var með í láni og út af því talar mágkona hennar ekki við hana eins og er... án þess að spá í það að hún má vera þakklát fyrir að Suzy greyið hafi ekki slasað sig í veltunni.
Enívei, ég sótti Suzy til KEF í gær og við kíktum aðeins í bæinn, það var voða voða gaman og við komum ekki heim fyrr en um 4 þannig að það var ekki farið á fætur fyrr en um hádegisbil í dag.
Svo þegar ég ætlaði að fara að gera eitthvað af viti í dag eins og að klára að pakka og/eða að vinna í einhverjum atvinnuumsóknum þá hringdi mamma og sagði mér að 9 ára frænka mín hefði viðbeinsbrotnað þannig að auðvitað fór ég í sjúkraheimsókn til hennar og hún var nú barasta vel spræk með höndina í fatla. Snillinn ég fór með litabók og liti til hennar en auðvitað brotnaði viðbeinið hægra megin þannig að hún getur lítið skrifað og litað eins og er en það kemur.

4. sep. 2004

HOBBITAHOLAN ER LAUS!!!

Já, mín er flutt og hobbitaholan er laus til leigu ef einhver hefur áhuga. Krúttleg risíbúð í 105, með baðkari, nýrri þvottavél í kjallara, útsýni yfir Perluna og Hallgrímskirkju.
35þ á mánuði.

Hefur einhver áhuga?

1. sep. 2004

gyðjan mætt í bæinn...

með nett kúltúrsjokk. Hér er alltof mikið af bílum, húsum, trjám, fólki, hávaða og stressi. En ég hlýt að lifa það af.

Sumarið var dásamlegt og maður upplifði ýmislegt, sumt færslufært, annað ekki. Sjáum til hvort ég laumi inn einhverjum góðum sögum seinna meir.

Jæja, best að fara af stað að flytja, skrifa lokaritgerð, finna vinnu, byrja í skólanum og... og... og...

15. jún. 2004

tónleikarnir...

voru barasta alveg ágætir. Ég var búin að sjá það sem mig langaði að sjá fyrir hlé en þá voru bæði RíóTríó og KK búnir að spila. Svo var smá hlé og KK hinn amríski steig á stokk eftir það.

Ríó-arnir voru frábærir en KK var STÓRKOSTLEGUR! Ég hef aldrei séð manninn á sviði áður en núna er ég harðákveðin í því að sjá hann á sviði aftur. Hann er alveg frábær. KK hinn amríski var ekki alveg eins góður, kannski heldur ekki alveg að marka mig þar sem ég get ekki sagt að ég sé stór aðdáandi hans og þekki lítið af lögunum hans. En öll lögin hans hljómuðu nánast eins, bara mismunandi textar og það fyndnasta var að hann kann ekki alveg að enda lögin sín. Hann byrjar á lagi og spilar og syngur og syngur og í lokin slær hann nokkrum sinnum á strengina og þegar hann nennir því ekki lengur þá segir hann "Thank you" og þá veit maður að lagið er búið og allir klappa.

Ég held að ég vilji frekar sjá Krissarann í bíó en á tónleikum. Sem sagt mjög góð kvöldstund!

14. jún. 2004

stefnumót á bakvið Laugardalshöll...

jamm, mamma mín var að hringja og spyrja mig hvort ég gæti átt stefnumót við mann aftan við Laugardalshöllina fyrir hana klukkan 3. Frekar skrítin beiðni en það sem ég fæ úr krafsinu er að kyssa gamlan nágranna á kinnina og 2 miða á tónleikana með Ríó Tríó, KK og KK hinum amríska í kvöld. Kvarta ekki yfir því.

Annars er frekar mikið að gera hjá mér þessa dagana; passa 2 íbúðir og 1 kött, ganga frá eftir LON-ferðina og pakka fyrir sveitasæluna, vera eins dugleg og ég get að skrifa/undirbúa BA-ritgerðina mína, ganga frá bankamálum og slíku fyrir næstu 2 mánuðina og reyna að slaka aðeins á inná milli, bara svona til að ná áttum.

Mestur tíminn fer samt að hugsa um D... ;o)

3. jún. 2004

bloggfall

bara að vara við yfirvofandi bloggfalli... ég fer til LON á lau og á fjöll eftir 2 vikur þannig að yfirvofandi er svakalegt bloggfall og ég lofa engu um nýjar færslur fyrr en í september!

GÓÐA SKEMMTUN Í SUMAR!!! hvarsemþiðeruð

1. jún. 2004

zombie og hárið mitt frá Sýrlandi.

já, maður er búinn að vera eins og hálfgerður zombie um helgina, var nefnilega að vinna næturvaktir og ég sef alltaf illa á daginn. Og vakna frekar súr. Sum sé ekki mikið stuð á mínum bæ þessa helgina... Og auðvitað var mér boðið í heljarinnar ammli á fös, bauðst svört vinna á lau, litla uppáhaldsfrænkan vildi fá frænkukvöld og svo held ég að það hafi líka verið útilega í boði en er ekki viss. En sem sagt, mín bara að vinna kl. 22-10.

Tja, reyndar var tekinn smá rúntur suðrí Reykjanesbæ á sunnudaginn eftir vinnu til að koma Karine og Stefan (CAN) á gistiheimili þar (sem reyndar skyndilega breyttist í **** hótel með Iðnó-glerskálanum...) Þetta sem átti að vera stutt skutl til Keflavíkur breytist í "hvar er hægt að gista?-leik" með tilheyrandi rúnti um flest hverfi Keflavíkur. Það var þ.a.l. þreytt par (D líka að vinna næturvaktir) sem kom heim í hosiló um eittleytið á sunnudaginn og heyrði þá að einhver nágranninn var að æfa sig á klarinett... En sem betur fer er það ómþýtt hljóðfæri og það heyrðist ekki svo mikið á milli þegar maður var kominn inn í hobbitaholuna.

Í gær komst ég svo að því að ég var kominn með nýjan nágranna, hann sem spilar á klarinettið, og hann er frá Sýrlandi og heitir Mæher eða eitthvað svoleiðis. Við áttum stutt samtal á ganginum í gær og hann kynnti sig. Eftir nokkuð spjall sagði hann:
"Did you get my name?"

Ég: "No."

Hann um leið og hann togaði í hárið á sér: "It's like 'my hair' in English."

27. maí 2004

óraunhæft!

jamm, væntingar um einkunn uppá 9,5-10,5 reyndust vera óraunhæfar eins og ég hélt. Ég fékk nákvæmlega það sem ég bjóst við eða 7,0 - maður getur víst lítið kvartað yfir því.

annars var ég að koma úr vinnunni og er bara dauðþreytt! Ætla heim í bað og svo beint uppí rúm, zzz...

Kæri herra Guð, þetta er hún Anna

Ég var að klára að lesa bók sem ég les alltaf reglulega og hef gert það síðan ég las hana fyrst þegar ég var átta eða níu ára. Ég er örugglega búin að lesa hana tíu sinnum! Þetta er bókin Kæri herra Guð, þetta er hún Anna. Bókin verður bara betri við hvern lestur og ég fæ einhvern veginn aldrei nóg af henni. Ég hlæ alltaf á sömu stöðum og græt alltaf á sömu stöðum og mér finnst ég einhvern veginn verða pínulítið betri manneskja eftir að hafa lesið bókina. Ef það væru bara fleiri eins og hún Anna.

Annars hef ég verið að díla aðeins við Útlendingastofnun undanfarið, fyrir hann David og ég er ekki frá því að mér finnst eins og gæði þjónustunnar fari eftir því hvaðan fólk er. Auðvitað á það ekki að vera svoleiðis, þetta á að vera fordómalaus stofnun en ég hef þetta bara svo sterklega á tilfinningunni...

25. maí 2004

einkunnir

Jæja, þá er maður aftur farinn að stunda Hlöðuna en það er hálfskrítið því það er svo fámennt og opnunartíminn svo stuttur. Það er víst að koma sumar. En vegna of mikillar vinnu í vor þá er maður búinn að fresta skilum á lokaritgerðinni til hausts þannig að maður verður víst að vera duglegur þangað til maður fer á fjöll.

Annars er ég búin að fá eina einkunn, úr seinna prófinu sem mér gekk verr í en í fyrra prófinu en einkunnin sem ég fékk var alls ekki slæm: 8,5. Og ég sem var búin að telja sjálfa mig á að skella mér í sumarpróf til að laga einkunnina. Held að það gerist ekki þörf á því úr þessu.

Það er spurning hvort ég geti þá líka bætt 2,5 við einkunnina sem ég ímynda mér að ég fái úr fyrra prófinu mínu. Það myndi þýða 9,5-10,5 en ætli það sé ekki nokkuð óraunhæft. Kemur í ljós.

Best að fara að snúa sér að Ólafi karlinum.

21. maí 2004

loksins, LoKsInS, LOKSINS!

Var tími fyrir mig og David að gera eitthvað saman eina kvöldstund og LOKSINS gátum við fagnað saman próflokum og afmælinu mínu í algjörri afslöppun. Sem við gerðum síðasta miðvikudagskvöld.

Það var hreint út sagt dásamlegt. Ég sótti hann í vinnuna klukkan fimm og þá fórum við heim til hans og slökuðum aðeins á, náðum vinnuþreytunni úr okkur og græjuðum okkur fyrir kvöldið því nú var sko komið að því sem ég hafði ákveðið að gefa sjálfri mér í ammlisgjöf. Að fara út að borða.

Við fórum á Hereford og fengum góðan mat, gott vín og gott whiskey á eftir.

Þetta var svo frábært kvöld að ég svíf ennþá um á rósrauðu skýi...

18. maí 2004

ein soldið eftirá...

Ég er svona soldið eftirá þessa dagana, með bloggið það er að segja. Kannski af því að maður er háður opnunartímum ákveðinna stofnanna... C’est la vie.

Mig langaði aðeins að blogga um lau-kvöldið. Ég ‘slapp’ við öll júrópúró-partý þar sem ég var að þjóna til borðs á kvöldfagnaði kóramóts eldri borgara. Mjög spennandi það. Nema hvað, að þegar vinnunni lauk rétt fyrir tvö þá vorum við þrjár skvísur í stuði, tja eða allavega hálfstuði og ákváðum að hittast heima hjá mér eftir fataskipti og koma okkur í bæinn. Þannig að þegar klukkan var að verða þrjú vorum við loksins tilbúnar og drifum okkur af stað. Ég hef aldrei byrjað að djamma jafnseint og ég vil taka það fram að það var farið að birta aftur þegar við fórum á kreik.

Það var ekki nokkur séns að ná í bíl á þessum tíma þannig að við stukkum bara á næsta bíl sem stöðvaði á rauðu ljósi við Lönguhlíðina og fengum far með elskulegri stúlkukind í bæinn. Takk fyrir það, rauði Yaris.

Þegar við komum hingað biðu stelpur eftir okkur í röðinni með töfra sms-skilaboð sem komu okkur inn á nótæm. Svona virkar þetta víst í dag. Ég er þokkalega glötuð í djamminu og þekki ekkert inn á svona fídusa og því síður rétta fólkið...

Innandyra drukkum við smá bjór, dönsuðum, töluðum við alls konar fólk og svo labbaði ég heim uppúr fimm. Og meira að segja þá var einhver njólinn að reyna að pikka mig upp. “Má ekki bjóða þér inn í kaffi? ...eða rauðvín?” Well, I don’t think so.

Þetta seina djamm mitt var barasta alveg ágætt og gaman að fara út með einhverjum sem maður þekkir ekki vel og sjá nýtt fólk!

16. maí 2004

hver er þessi ELÍSABET BREKKAN eiginlega?

Eins og hverri góðri konu á fertugsaldri sæmir þá horfði ég andaktug á beina útsendingu RÚV frá konunglega brúðkaupinu í Köben á föstudag. Skálaði meira að segja í dönskum bjór og borðaði amrískt 'smörrebröd' með!

Þetta var alveg ægilega hyggeligt hjá mér og ekkert sem sló á gleði mína nema þessi Elísabet Brekkan sem var að lýsa viðburðunum með honum Boga Ágústssyni. Hún vissi ekki neitt í sinn haus og greip endalaust framí fyrir Boga og var alltaf að biðja hann að rétta sér kaffið og kökuna og blablabla. Þetta er ekki einu sinni það versta! Það kannast örugglega allir við það að hafa talað við fólk í síma sem andar beint í tólið þannig að allt samtalið verður litað af svona hálfgerðu "ffffffhhhh"-hljóði. Well, kerlingardruslan gerði það í beinni útsendingu í sjónvarpinu. Mjög sjarmerandi, eða hittó!

Svo fannst henni prinsinn svo viðkvæmur af því að hann táraðist þegar hann sá prinsessuna sína ganga inn kirkjuna. Já, eða að hann væri með ofnæmi fyrir blómunum á staðnum. Hún var alveg greinilega ekki að sinna sínu hlutverki þarna sem þulur með Boga því hann var að reyna að beina henni inn á réttar brautir þegar hann byrjaði sjálfur að tala um fínu kjólana sem konurnar voru í...

Já og mér finnst hún bara alls ekki eiga það skilið að bera nafnið Elísabet. Og hananú!

14. maí 2004

fjölmiðlafrumvarpið

fyrir þá sem vilja skoða málið nánar er þetta kjörinn vettvangur til þess!

THANK GOD IT'S FRIDAY!

Í dag fer David í síðasta prófið sitt og það væri þá kjörið tækifæri fyrir okkur að fagna því saman í kvöld en ónei. Hann þarf að fara beint heim að sofa til að vera klár fyrir næturvaktina í nótt!

Gamla rútínan er byrjuð aftur, þeas. fríhelgi hjá mér og næturvaktir hjá honum. Næsta helgi er svo fríhelgi hjá honum en vinnuhelgi hjá mér. Það er svo gaman að vera að vinna vaktavinnu og eiga alltaf frí á sitt hvorum tímanum eða þannig! Frekar pirrandi. Ég er búin að lofa sjálfri mér því að þetta verður ekki svona næsta vetur.

Í dag er eiginlega fyrsti frídagurinn minn síðan einhvern tímann fyrir langalöngu. Ég tel ‘sumarfríið’ mitt í byrjun maí ekki með því það var tekið til próflesturs. Mig langar að gera eitthvað skemmtilegt í dag og í kvöld but I don’t have any ideas... En allir aðrir eru innstilltir á það að gera eitthvað skemmtilegt á morgun (Júróvisíón-fyllerí með Jónsa) en þá er mín að vinna. Story of my life.

Jæja, ég er farin til að njóta dagsins. Góða helgi!

13. maí 2004

læknadóp

Þar sem ég hef verið undarlega meðvituð um vinstra hné mitt undanfarnar vikur/mánuði þá ákvað ég að drífa mig til læknis, bara til þess að fá það staðfest að ég væri ekki búin að eyðileggja neitt. Verð nebblega alltaf soldið paranojd ef ég finn að líkami minn fúnkerar eitthvað öðruvísi en vanalega því ég er ekki með nein ofnæmi, óþol, ónýta liði, gömul beinbrot eða þess háttar sem getur angrað mig.

Ég verð eiginlega að byrja alveg á byrjuninni sem var þegar ég hringdi og pantaði tíma á heilsugæslunni, á mánudagsmorguninn ca kl. 9.

É: Góðan dag, mig vantar tíma hjá heimilislækni.

H: Hver er læknirinn þinn?

É: Ég er nýflutt í hverfið þannig að ég er ekki á skrá hjá neinum.

H: Jájá, það er laust hjá Á. Viltu koma kl. 10:40?

É: (frekar hissa á 'snöggheitunum') Öhh, ég kemst ekki í dag. Væri möguleiki að koma á morgun, fyrir hádegi?

H: Já, það er laust frá 8:40 til 11:20, allir tímar.

Ég hef aldrei fengið tíma hjá heilsugæslulækni með jafnskömmum fyrirvara! Ég hugsaði með mér að læknirinn hlyti að vera nýbyrjaður en María vinkona mín sagði að hann gæti líka verið algjör trunta þannig að enginn vildi vera hjá honum. Ég mætti allavega spennt á heilsugæsluna daginn eftir og fékk þá að vita það að læknirinn væri veikur en mér var troðið inn á annan lækni strax.

Ég talaði við hann og sagði honum að ég væri ekki með neina verki nema ég væri í beinu átaki á hnéð, þ.e.a.s. þegar ég væri að lyfta, en annars væri ég alltaf meðvituð um hnéð. Vissi einhvern veginn alltaf af því en það háði mér samt sem áður á engan hátt. Sem sagt ENGIR VERKIR.

Eftir að hafa togað mig og teygt þá sagði hann mér að sleppa fótaæfingunum um tíma, hjóla frekar en að hlaupa, kaupa mér hitahlíf á hnéð og almennt bara að fara varlega. Já, og hann mælti með sundi.
Og svo í lokin eftir ENGIR VERKIR-útlistingu mína þá sagði hann mér að taka bólgueyðandi ef þetta angraði mig eitthvað og skrifaði svo uppá lyfseðil fyrir mig fyrir einhver súperdúper bólgueyðandi lyf! Hann hálfpartinn þröngvaði þessu uppá mig og sagði mér svo að ég réði hvort ég leysti þetta út eða ekki.

Ég var bara svo hissa. Engir verkir en samt lyfseðill uppá bólgueyðandi og verkjastillandi.

Svona fær maður læknadóp.

12. maí 2004

uppfærsla

jæja, ég var aðeins að fikta í listunum mínum hér til hægri. Bæta inn nýrri bók og á eftir að bæta annarri við. Ég fór á Borgarbóksafnið um daginn til að fá mér einhverja afþreyingu að lesa til að losa hausinn augnablik frá lærdómnum fyrir svefninn í próflestrinum og ég valdi þessa bók. Hálfírónískt val þar sem ég ætlaði að leiða hugann frá íslenskupælingum með þessum lestri... Bókin er góð og ég gat kúplað mig útúr pælingum um íslenskt mál að fornu.

Reyndar var hugmyndin að blogga aðeins um afmælisdaginn minn en ég hef ekki tíma - á að vera mætt í vinnu eftir 15 mín. FARIN!

8. maí 2004

BÚ- HÚ- HÚÚÚÚIN!!!!!!!!!!

í prófunum!!! jibbíjeij, jibbíjibbíjibbíjeij!!!!!

vildi bara deila þessu með ykkur.


Ennfremur er það óumflýjanleg staðreynd að á morgun verð ég ekki lengur tuttuguogeitthvað heldur eitthvað allt annað og ég er svo sniðug að í staðinn fyrir að bjóða sjálf í partí og læti þá hef ég látið bjóða mér í partí og læti, dinner und alles!!!

En fyrir þá sem verða á ferðinni á morgun, þá verða kaffi og HEIMABAKAÐAR kökur og gos heima hjá mér. Verið velkomin!!!

En núna ætla ég að fara heim að hvíla mig áður en ég fer að bjúttífúlla mig fyrir kvöldið! Ciao.

6. maí 2004

FYRSTA PRÓFIÐ

er búið.

Það var allt í lagi en kennaranum tókst samt að lauma inn spurningu sem maður átti ekki von á útfrá námsefninu en spurningin var samt ekkert útúr kú eða þannig en samt. Bullaði eitthvað.

Nú bíð ég bara eftir einkunninni sem verður vonandi nær 9.0 en 7.0. Það kemur í ljós.

Núna ætla ég að fara að hlusta á Dido.

4. maí 2004

og svo þetta:

ÉG ER AÐ FARA TIL LONDON!!! LIGGALIGGALÁI!!!

Til hamingju með afmælið, Sigurborg!

já, hún er nú orðin þrjátíu ára og ég verð það bráðum líka. Nema ég verði bara twentynine forever... ;o)

jæja, farin heim að læra og hætt að leika mér á netinu. Bleh!

helgin...

var góð. Ég tók því mjög rólega um helgina enda ekki vanþörf á eftir maraþon-vinnu og einangrun undanfarinna daga.

Á föstudaginn buðum við David Karine í mat, til að stytta henni stundir þar til kærastinn hennar kæmi (á lau morgun). Ég eldaði karríkássu - hvað getur maður eldað annað þegar maður hefur bara 2 hellur og engan ofn? Karrí klikkar aldrei og kássan var góð. Ég er líka svoddan kássukelling. Það verður eiginlega nonstop-kássa hjá mér í 10 vikur í sumar. Nema þá daga sem ég fæ kjötsúpu hjá hópunum.

Alla vega, á laugardaginn var frænkudagur. Það er eitthvað sem ég geri alls ekki nógu oft en ég býð stundum frænku minni (9 ára) að gista hjá mér og þá borðum við pizzu og nammi, förum stundum í bíó og ALLTAF í hárgreiðsluleik. Enda fór ég að sofa með 6 fléttur í hárinu... Svaka stuð!
Sunnudeginum eyddum við svo í Kringluráp og um kvöldið fór ég í bíó með David. Sá Kill Bill Vol. 2 og ég verð að segja það að mér finnst Quentin Tarantino góður!

Það var soldið fyndið um helgina að ég hitti Berglindi vinkonu þrisvar. Alveg óvart. Fyrst þegar ég var að bíða eftir pizzunni, svo í Kringlunni og loks í bíó. Annað hvort algjör tilviljun eða þá að hún er farin að sitja um mig...

Best að fara að læra, próf á fim! Wish me luck!

29. apr. 2004

bleh bleh bleh

vaknaði í morgun og fattaði það að ég beilaði á saumólaumó í gær. Sorry girls!

Ég var bara svo ótrúlega útkeyrð í gær - m.a.s. áður en ég fór í vinnuna! - og ég var með geðveikan hausverk allan daginn þannig að ég fór beint heim eftir vinnu og lét renna í bað. Svo lá ég í freyðibaði í 1,5 klst., við kertaljós með góða bók og tónlist. Ótrúlega ljúft og ég þurfti hreinlega á smá "me-time" að halda.

Núna eru batteríin endurhlaðin og síðasti vinnudagurinn í bili. Á morgun er ég komin í langþráð frí eftir 10 daga vinnutörn en þá er David að byrja á næturvaktasyrpu. Alltaf gaman að vinna vaktavinnu og geta varla hitt kærastann nema rétt yfir blánóttina. Ef það er svo gott.

Jæja, ég er farin í vinnuna og svo hefst próflesturinn af fullum krafti á laugardag!

28. apr. 2004

frídagurinn minn...

fór fyrir lítið. Var kölluð á aukavakt og gat ekki neitað. Reyndar var þetta bara stubbur, frá 13-16:30 en samt. Ég varð ótrúlega þreytt eftir þessa stuttu vakt og nennti engu í gærkvöldi. Núna bíð ég bara með óþreyju eftir frídeginum mínum á föstudag...

Annars hitti ég Önnu vinkonu mína frá Bolungarvík á mánudaginn. Ég hef ekki séð hana síðan hún kom með fjölskylduna sína í heimsókn til mín síðasta sumar. Við kíktum á kaffihús og í Kringluna. Það er langt síðan ég hef gert eitthvað svona, verið að slæpast í bænum með vinkonu. Þetta var mjög endurnærandi. Ætti að gera eitthvað svona oftar!

Ég er eitthvað svo andlaus núna að ég ætla ekki að hafa pistilinn lengri í dag - er bara að telja niður dagana þangað til ég fæ smá frí.
Frí frá vinnu til að hefja próflestur.

26. apr. 2004

úff!

Í dag er sjöundi dagurinn í röð sem ég er að vinna. Bara átta tímar í dag en hafa verið allt að 16 tímar á dag undanfarna daga þannig að ég er pínuþreytt.
Og á morgun er frí.
Og á morgun verður líka dekur/afslöppunardagur með mínum útvalda.
Enginn lærdómur, ekkert leiðinlegt.
Bara afslöppun og rólegheit og allt rennandi gott og skemmtilegt!

Svo byrjar upplestrarfríið mitt á fimmtudaginn þannig að maður verður byrjaður að læra á þriðjudaginn í næstu viku, eða eitthvað svoleiðis...

21. apr. 2004

enn um blóð...

já, ég ákvað að setja blóðbankann inn sem fastan hlekk á síðuna mína, bara svona til að hvetja þá sem aldrei hafa hugsað um að gefa blóð til að gera það og líka til að hvetja hina af stað sem eru búnir að vera á leiðinni égveitekkihvaðlengi...

Drífið ykkur nú af stað!

19. apr. 2004

Ég gef blóð - en þú?

Dagurinn í dag hefur verið góður. Var byrjuð að læra snemma og var bara nokkuð dugleg. Fór svo og talaði við leiðbeinandann minn um lokaritgerðina mína og fékk fleiri punkta til að hugsa um. Þegar ég kíkti svo á póstinn minn seinni partinn, þá var komin staðfesting frá Flugleiðum um að flugið fyrir David, sem ég hélt að ég hefði verið að klúðra á laugardaginn, væri í góðu lagi! :o)

Skrapp svo í blóðbankann áðan og lét dæla úr mér. Á eftir sötraði ég kaffi og borðaði brauð á fínu kaffistofunni þeirra. Er nú mætt aftur uppí Hlöðu, endurnærð, til að halda áfram að læra. Eftir 2-3 klst hérna er planið að fara heim og horfa aðeins á video og fara svo að sofa.

Það er langt síðan ég hef átt svona pródúktívan dag og um leið frekar afslappandi.

meira um skemmtilega texta

ég kíkti aðeins hingað inn eftir ábendingu úr athugasemdunum mínum og þetta er ansi skondin síða. Ég er viss um að húsmóðirin í Vesturbænum hefur gaman af þessu... og örugglega fleiri.

annars sit ég í Hlöðunni og þykist vera að læra :o) Langar einhvern í kaffi?

17. apr. 2004

ég barasta varð...

að skella þessum hlekk inn, fyrir mig og Ernu.
Og alla hina sem eru líka að reyna að rifja textann upp...

OG ALLIR AÐ SYNGJA MEÐ NÚNA!

algjörlega gagnslaus dagur!

Ég er nú búin að sitja síðan klukkan hálfellefu í morgun fyrir framan tölvu að leita að hagstæðu fargjaldi (peningalega séð og tímalega séð) fyrir minn útvalda til Frankfurt í júní. Hann er nefnilega á leiðinni heim í smá frí og fær gefinn miðann frá Frankfurt til Kanada. Maður skyldi nú halda að þetta væri ekki mikið mál, sér í lagi þar sem undirrituð hefur starfað í tæp 3 ár á ferðaskrifstofum við að gera nákvæmlega það sem ég var að gera í dag.

EN þetta tók allan þennan tíma og er eiginlega ekki afgreitt ennþá! Málið er það að eftir ýmsar skoðanir hjá ýmsum flugfélögum þá virtust þessir -JÁ, ÓTRÚLEGT EN SATT- hafa uppá besta dílinn að bjóða, með smá krókaleiðum þó. En þegar til kastanna kom, að negla niður flug og annað þá breyttust hlutirnir aðeins og það kostaði eitt símtal til að laga það en svo fór ég til að klára málið á netinu og þá var aftur lofað öllu fögru en þori samt ekki alveg að trúa því. Núna bíð ég eftir endanlegri staðfestingu á email um að hlutirnir séu í lagi.

GUÐI SÉ LOF AÐ ÉG ER EKKI AÐ VINNA Á FERÐASKRIFSTOFU LENGUR!
eitt það leiðinlegasta sem ég hef gert og í framtíðinni mun ég frekar skúra en að vinna í söludeild á ferðaskrifstofu!
OG HANANÚ!!!

Þessi flugmiðaeltingarleikur á netinu þýðir það að ég hef ekki komið neinu í verk hvað lærdóm varðar og núna er ég eiginlega bara búin á því og hef enga orku í það lengur. Sér í lagi þar sem stofnunin sem ég þyrfti að heimsækja lokar eftir rúmar 50 mínútur... Alltaf sama góða þjónustan á þessu blessaða landi :(

ooog... MIG LANGAR Í FARTÖLVU!

14. apr. 2004

syngið með!

Ég kom sjálfri mér svolítið á óvart um daginn. Eiginlega svo mikið að ég varð sjálf orðlaus. Þannig var að ég var að keyra í bílnum mínum og var að hlusta á útvarpið, svona rétt eins og ég geri á hverjum degi. Svo kom lag (Holding back the years m. Simply Red) sem var uppáhaldslagið mitt þegar ég var 10 eða 11 ára og ég hef ekki heyrt það í skrilljón ár þannig að ég hækkaði í botn og byrjaði að syngja með. Svaka stuð.
Alveg þangað til að ég fattaði að ég skildi ekki orð af því sem ég var að syngja.
Ég hef greinilega 'lært' þennan texta áður en ég var farin að tala ensku af nokkru viti þannig að textinn sem kom uppúr mér var algjört bull!

Fyrst varð ég orðlaus en svo gat ég ekki annað en hlegið! Og núna dauðlangar mig að heyra lagið aftur og HLUSTA á textann.

Annars var ég að koma af fundi hjá þeim og komst ma. að því að sumarið mitt byrjar í kringum 20. júní þegar ég kemst á fjöll aftur. Ég hlakka svo til!!!

12. apr. 2004

eitt enn:

stutt blogg!

jamm, bara til að láta vita að ég er á lífi... hef ekki komist í tæri við tölvu í tæpa viku núna. Hef svo sem ekkert að segja en rakst inná þessa síðu þökk sé hinum drekanum. Þarf að skoða þetta nánar, ég setti líka hlekkinn undir SKOÐIÐ ÞETTA!.

heyrumst síðar!

5. apr. 2004

Stína í öskutunnunni...

...er ennþá til, mér til mikillar armæðu. Hún var mitt alterego á mínum fyrstu árum og ég hélt ekkert mjög mikið uppá hana. Hún kom nefnilega fram þegar ég var eitthvað ósátt og/eða að frekjast við foreldra mína og bræður og fékk ekki mínu framgengt. Sem sagt, þegar ég var lítil og í fýlu. Þá upphófst samtal sem var einhvern veginn svona:

Mamma: “Jæja, Stína, ert þú komin aftur. Hvar er hún dóttir mín?”
Ég: “Ég heiti ekki Stína. Mamma, ég er Ella Maja.”
Mamma: “Nei, hún Ella Maja mín, lætur ekki svona. Þú ert Stína í öskutunnunni!”
Ég: “Nei, mamma, ég ER Ella Maja!”
Mamma: “Stína mín, viltu ekki bara fara í öskutunnuna og senda hana Ellu Maju mína til mín aftur?”
Ég: “En mamma, ÉG ER ELLA MAJA!”

Þannig að til að sannfæra móður mína (föður/bróður) um að ég væri ég en ekki einhver ljót stelpa sem bjó í öskutunnunni þá þurfti ég að haga mér vel og það virkaði yfirleitt. Verst fannst mér samt að þessi Stína flutti með okkur úr Þorlákshöfn í Garðabæinn þegar ég var þriggja ára.

Og nú hef ég sem sagt komist að því að hún er ennþá til. Hún kom nefnilega fram á yfirborðið í lasleika mínum síðustu daga. Ég var með smá hita, ótrúlega slöpp, þreytt og stressuð. Ég gat nefnilega ekki leyft mér að sofa bara og slappa af til að ná þessu úr mér og auðvitað bitnaði þetta allt á mínum útvalda. Og þá fékk ég að heyra þetta:

“Þú ert enn jafn falleg og jafngóð en þú ert ekkert skemmtileg núna. Þú ert ekki sú Elísabet sem ég þekki. Ég vil fá mína Elísabetu aftur.”

Þannig að ég held að Stína í öskutunnunni hafi tekið völdin af mér í örfáa daga en nú er hún farin. Sem betur fer. Ef eitthvað er, þá finnst mér hún enn leiðinlegri núna en fyrir tæplega 30 árum síðan...

3. apr. 2004

vonlaus!

jamm, ég er vonlaus! algjörlega hópless keis! ég þóttist vera hætt þessum netprófum en svo tek stóran og góðan bloggrúnt og finn þá ýmislegt og til dæmis núna, þá varð ég barasta að komast að því hvaða "Mythical Beast" ég er eftir að ég gleymdi mér augnablik hérna.

Með öðrum orðum, ég nenni ekki að læra. Það er erfitt að halda einbeitingu þegar maður er hálflasinn með einhverja hitavellu.

En hér er ég:
Dragon Banner
You're a dragon.
You're smart and cunning,
and enjoy taking risks.
Your need for independence is an advantage,
but sometimes it alienates you from others.
As far as *good* and *evil*,
you're pretty neutral--but you may have
something of a wicked streak.

hvaða mythical beast ert þú? frá Quizilla

æ, mig auma!

ég er lasin og búin að vera það síðastliðna 2 daga en hef engan tíma til þess að taka því rólega og láta mér batna, heldur er ég á haus í alls kyns verkefnum og sit núna í bókhlöðunni og vinn að fyrirlestri sem ég á að flytja á þriðjudaginn.

öllum er velkomið að koma og trufla mig og þið munuð finna mig á 3. hæð í hlöðunni...

31. mar. 2004

kaffi og smáspjall

mig langar í kaffi og smáspjall núna, er einhver sem á leið í National Book Barn NÚNA sem langar í kaffisopa með mér?!?!?!

mér leiðist og mér er kalt!

Þökk sé...

Gonzo
fyrir að senda mér rétta hlekkinn að prúðuleikaramyndinni minni. Er ég ekki fín sem sænski kokkurinn?

Á meðan ég man, þá getið þið lesið meira um stolna hjólið hans Davíðs hjá honum sjálfum...

30. mar. 2004

verðugur kandídat fyrir Darwin Awards

Ég er enn að hlæja að þessari frásögn sem ég las í gær hjá bókasafnsfræðingi Heljar. Tékkið endilega á frásögninni þar sem hefst á þessum orðum: David's bike was stolen yesterday.

Ef þessi gaur heldur áfram á sömu braut, þá á hann eflaust eftir að vera nefndur til Darwin Awards í framtíðinni. Verðugt takmark í sjálfu sér.

ÉG VEIT... ÉG VEIT...

ég þóttist vera hætt að þessu en ég hreinlega barasta varð!!!! Allt henni að kenna, hún er með þetta á síðunni sinni... Ég meina, hver vill ekki vita hvaða prúðuleikari hann er!?!?!?!

chef jpeg
You are the the Swedish Chef.
You are a talented individual, nobody understands you.
Perhaps it's because you talk funny.

FAVORITE EXPRESSION:
"Brk! Brk! Brk!"
HOBBIES:
Kokin' der yummee-yummers
FAVORITE MOVIE:
"Wild Strawberries...and Creme"
LAST BOOK READ:
"Der Swedish Chef Kokin' Bokin'"
QUOTE:
"Vergoofin der flicke stoobin mit der brk-brk yubetcha!"
hvaða Prúðuleikari ert þú? komið frá Quizilla

þetta er líka á síðunni hennar:


hver ert þú í skóginum hans Bangsímon?


soldið skemmtilegt próf, amk fyrir barnafólkið, n'est-ce pas?

USSS!!! ekki trufla mig!

ég er nefnilega í bókhlöðunni að læra. Um Snorra goða, að reyna að finna 'almæltu' söguna hans útúr öllum þeim Íslendingasögum, Biskupasögum og öðrum sögum sem á hann er minnst í...

Dagurinn í gær var góður. Mjög góður. Fór að lyfta, kíkti svo aðeins á gamla settið og mætti í skólann. Eftir tíma ætlaði ég að vera svakalega dugleg að læra en Kanadamaðurinn hringdi í mig og honum leiddist þannig að ég fór til hans og við gerðum nákvæmlega ekki neitt annað en að vera 'silly and giggling'. Það var mjög endurnærandi.
Síðan kíktu Thom (USA) og Karine (CAN) aðeins í heimsókn um kvöldið og ég fræddist aðeins meira um muninn á Kanada og Bandaríkjunum... sígilt umræðuefni í nærveru Kanadabúa og Bandaríkjamanna.
Svo heim að sofa.

En í dag verður ekkert 'silly, giggling þema' - bara hard core lærdómur!

25. mar. 2004

"Hann Grettir er mér svo hugleikinn"

Já, ég blaðaði meðal annars aðeins í Grettis sögu í afslöppuninni um síðustu helgi og ég held að ég skilji hana Kristbjörgu ofurleiðsögumann nokkuð vel en hún á einmitt titilinn að færslunni í dag. Af því að ég skemmti mér svo rosalega vel yfir gluggeríinu í sögu Grettis Ásmundarsonar þá langar mig að deila nokkrum vel völdum köflum með ykkur...

…en Grettir leiddi uxann, ok var hann mjök stirðr í böndunum, en allfeitr; varð honum mjök mætt. En þá er hann kom neðan hjá Tittlingsstöðum, þraut uxann gönguna. [...] sá þeir hvar maðr fór í móti þeim ok hafði naut á baki, ok var þar kominn Grettir ok bar þá uxann; undruðusk þá allir, hversu mikit hann gat orkat.

Honum gerði hermt um sauðina, ok þreif tvá ok kastaði forbrekkis, svá at þeir lágu í óviti. Ok er hinir sá þat, gengu þeir at ódjarfliga. Grettir tók sauðina ok krækði saman á hornunum ok kastaði um sína öxl hvárum tveim; gekk síðan upp í bæli sitt.

Hann sá, at þrír menn riðu sunnan yfir Hítará, ok skein á skrúðklæðin og smelta skjölduna. Gretti kom nú í hug, hverir vera mundu, ok þykkisk munu þurfa at fá sér eitthvert plagg af þessum.
þessir menn voru einmitt að leita að honum, sauðaþjófnum og útlaganum og fór Grettir á móti þeim og:
Gretti leiddisk nú þófit,ok sveipaði til saxinu ok hjó annan fylgdarmann Gísla banahögg.

Já, svona karlmenn eru víst vandfundnir í dag.

Annars var ég að klára þessa bók eftir þennan kanadíska rithöfund og er búin að bæta henni á listann hér til hægri. Bókin kom út 1969 og það sést á henni varðandi ýmis viðhorf sem koma fram, t.d. varðandi reykingar og drykkju áfengra drykkja á meðgöngu, viðhorf sem hafa breyst í dag. Bókin er góð og skondin á köflum. Er þegar byrjuð á annarri bók eftir hana, Cat's Eye, skelli henni á listann við tækifæri.

Jamm, mín á fullu við að öðlast innsýn inní kanadíska menningu.

22. mar. 2004

helgin var...

ALLTOF STUTT!
Bara fimmtudagur fram á mánudag... Það var rosalega gaman og mikið étið, drukkið, sulllað í pottinum, hlegið, talað og bara almennt séð skemmt sér! og við erum nú vel maríneruð af hvítlauk og chili.

Þetta er í fyrsta sinn sem ég fer í sumarbústað og fer ekki út fyrir veröndina allan tímann. Ótrúlega góð afslöppun, mæli með þessu. Og ótrúlega leiðinlegt að koma aftur til byggða en maður verður víst...

16. mar. 2004

barnshafandi?

Það er alveg ótrúlegt en þegar maður er kominn í fast samband, þá má maður ekki minnast á það að manni sé bumbult, ómögulegur í maganum, með mikla matarlyst eða að maður þurfi að fara oft á toi-ið því þá fær maður nánast alltaf þessi viðbrögð:

“núúú, ertu kannski barnshafandi?”

og grandskoðandi augnaráð í kjölfarið til þess að það fari nú örugglega ekki framhjá viðkomandi ef maður skyldi fara undan flæmingi. Stundum verður maður svo meðvitaður um þessa spurningu að það er örugglega alveg eins og maður sé að ljúga þegar maður kemur með sitt mest sannfærandi NEI.

Og til að hafa það alveg á hreinu, þá er ég EKKI barnshafandi. Hins vegar frétti ég af einni óléttu í gær og veit um eitt barn sem kom í heiminn í dag – eða er á leiðinni í þessum skrifuðum orðum!

skemmtilegar myndir!

ég var að skoða síðuna sem heitir börn og fullorðnir í bolungarvík hér til hægri og það er komið inn fullt af myndum í viðbót. Þar af eru nokkrar myndir úr ríkidæmi mínu til fjalla ;o) og ég fæ alveg svakalegt kitl í magann og fiðring í hjartað þegar ég skoða þær myndir! t.d. þessa!

Ég hlakka svo til sumarsins!!! Hverjir ætla að koma í heimsókn?

"Vergjarnar og veðurbitnar valkyrjur"

veit einhver hvaðan ég greip þennan titil?

ég er Severus Snape!

er það ekki bara nokkuð kúl?

Pirate Monkey's Harry Potter Personality Quiz
Hver ert þú í Harry Potter?
frá SjóræningjaÖpum ehf.

annars er ég komin með nett ógeð á þessum innihaldslausu netprófum, drepur alltof mikið af heilasellum. En svona er það þegar maður er hlandlaus eins og ég hef verið undanfarna daga (vikur?). Ég hef bara hreinlega ekkert að segja eins og er.

Það sem er á döfinni hjá mér núna er að í dag ætla ég að púsla saman IKEA-rúminu mínu og á morgun fæ ég dýnurnar og get þá farið að sofa í rúmi. Og hætt að sofa á dýnu á gólfinu.
Ég hlakka svo til!!!
Svo á fimmtudaginn ætla ég að stinga af úr borginni og eyða helginni í sumarbústað í Húsafelli!
Ég hlakka svo til!!!

ný vinkona!

tja, kannski ekki svo ný, en nýbyrjuð að blogga aftur og ég er búin að hlekkja hana við mig! Allir að fara að skoða hvað Jamie hefur að segja, um Ísland og lífið.

12. mar. 2004

nafnabreytingar...

já, þar sem að mér er nýorðið ljóst að ég er ekki drottning heldur gyðja þá hef ég breytt titlinum á blogginu mínu á viðeigandi hátt... og þar sem ég fékk líka orð í eyra í gærkvöldi fyrir að mismuna fólki, þá þekki ég víst enga kennslukonu lengur heldur bara dulúðuga konu.
Nice to meet you, mystery woman.

"Life is like a box of chocolates..."

CWINDOWSDesktopGump.JPG
Forrest Gump!


hver er kvikmyndin þín
brought to you by Quizilla

svona er ég nú andlaus-hlandlaus í dag, get ekki einu sinni lært heldur væflast um á veraldarvefnum og eltist við ónytsamleg próf. Þetta var nú soldið skemmtilegt því Forrest Gump er ein af þeim myndum sem ég get horft á aftur og aftur og aftur... Hún skilur eftir svona góða tilfinningu í manni.

GÓÐA HELGI!

föstudagur, again!

ég ligg undir ámæli fyrir bloggleti en ég er bara hálfandlaus-hlandlaus þessa dagana en hey, það er allt í lagi! því ég er...

Goddess

...GYÐJA!

hver ert þú? brought to you by Quizilla


so don't mess with me!

5. mar. 2004

jæja, þá er komin föstudagur.

Og ég gleymdi að athuga hvort þriðjudagar væru góðir dagar af því að þá er svo stutt í helgina eins og vinkona hennar lýsti yfir um daginn. Ég man það kannski í næstu viku.

Ég er búin að sofa of lengi í dag og taka því rólega heima hjá mér með kaffibolla og lesa þessa teiknimyndasögu (Davíð er að reyna að koma mér á bragðið).
Ég er búin að vaska upp og taka aðeins til.
Ég er búin að versla og eyða smá pening í Kringlunni, meðal annars í þessari búð og þessari líka (það eru 'danskir dagar' þar núna og dönsk tónlist ómar um búðina).
Ég er líka búin að vera í Bókhlöðunni í 2 klst. að læra. Og slæpast. En samt aðallega að læra.

Núna ætla ég að athuga hvort gæinn minn sé nokkuð farinn að sofa, hann er nefnilega að fara á næturvakt í nótt einsog alltaf þegar ég á fríhelgi! Svo ætla ég að bruna í föðurhúsin og gæða mér á silungi að hætti mömmsunnar minnar!

GÓÐA HELGI!

4. mar. 2004

viðbót

var að bæta einum hlekk við í BÖRNIN en það eru ekki bara börn í nýja hlekknum heldur líka fullorðnir, semsagt heil fjölskylda!

blogga meira seinna, er hálfandlaus þar sem allur andi minn fór í fyrirlesturinn sem ég var að flytja áðan...

2. mar. 2004

sko, hvað sagði ég?

Það er rok í Reykjavík og örugglega rokk líka en hins vegar var ég bara næstum því fokin þegar ég var að hlaupa á milli húsa áðan en ekki rokkuð...

Rok í Reykjavík

Það er rok í Reykjavík í dag. Langaði bara að deila því með ykkur.

not so much FYLLIBYTTA after all...

eða ég held ekki.

Fullið kom ekki á fimmtudaginn en þó rann rauðvínið ljúflega niður með karrípottréttinum mínum og það var mikið og lengi spjallað um allt milli himins og jarðar og það á tveimur tungum. Ég er svo multicultural... ;o)

Fullið kom heldur ekki á föstudaginn og ég beilaði mas. bæði á vísindaferðinni og á Eivöru. Shame on me! En í staðinn átti ég "quality time" með mágkonu minni og yngstu frænku. Hún er nýorðin tveggja ára og hún eyddi allri heimsókninni minni í því að segja mér að fara (afþvíað ég var eitthvað að segja henni að fara ekki svona illa með köttinn) en svo þegar ég 'loksins' fór, þá sagði hún:
"Am'la, ekki fara. EKKI fara."

Ég átti svo "more quality time" um kvöldið en þá með mjög góðri vinkonu og við spjölluðum um 'alt muligt' og sötruðum smá bjór og hvítvín með. Og spiluðum fullt af minningalögum. Det var dejligt!

Fullið kom hins vegar aðeins á laugardaginn. Og þá var sko gaman!!! Hjartadrottningin á svo skemmtilega fjölskyldu og þekkir svo frábært fólk. Núna bíð ég spennt eftir brúðkaupsveislunni hennar og BS-veislunni. Whatever comes first!

ps. am'la er hvernig tveggja ára barn segir ellamaja - þetta er ekki í fyrsta sinn á ævinni sem ég er kölluð þessu nafni - svo þróast það síðar meir útí ammalæja

26. feb. 2004

fullin sem eru framundan...

í kvöld er ég með gesti í mat og það þýðir rauðvín með matnum og svo kaffi og koníak á eftir. Aldrei að vita hvernig það endar.

á morgun er fyrirhuguð vísindaferð með þeim og svo tónleikar með Eivöru Pálsdóttur á Stúdentakjallaranum á eftir. Vísindaferð þýðir bara eitt: OFURÖLVUN fyrir kl. 20

á laugardag er útskriftarveislan hennar! Það þýðir stuð og meira stuð og meira áfengi.

ég er fyllibytta.

21. feb. 2004

ein bók í viðbót...

já, ég var að bæta bók inn á listann minn til hægri, Napóleónsskjölin eftir Arnald. Ég var nú ekki alveg að kaupa plottið, ammrískir sérsveitarhermenn skjótandi á eftir fólki í miðbænum... En alltílagi afþreying samt.

Og ég lærði það að hundurinn hans Hitlers hét Blondie.

föstudagskvöldið...

var alveg ágætt.

Ég var að vinna aðeins í aukavinnunni minni í gær og þar var 16 ára stelpa í uppvaskinu sem ég spjallaði aðeins við á meðan við borðuðum. Samtalið var eitthvað á þessa leið:

ég:
"Úff, ég nenni eiginlega ekki út í kvöld!"

hún:
"Ertu að fara eitthvað?

ég:
"Já, vinkona mín var að kaupa sér íbúð og var að bjóða í smá teiti."

hún, í hneykslunartón:
"Og ætlarðu ekki að fara!?"

ég:
"Jú, auðvitað fer ég en eins og er langar mig mest heim að lesa eða eitthvað."

hún, í enn meiri hneykslunartón:
"Ég myndi sko aldrei nenna því."

Mér fannst þetta bara svo skondið! Ég fór svo til vinkonu minnar og þar voru svo fleiri vinkonur hennar sem voru alveg æstar í að komast í bæinn, á tjúttið. Og mér til mikillar gleði, var vinkona mín alveg jafnþreytt og óupplögð og ég! Þannig að eftir að skvísurnar röltu af stað í bæinn þá dró hún fram myndaalbúm sem við skoðuðum og svo keyrði ég heim.
Sem sagt, rólegt og gott kvöld fyrir mig.

20. feb. 2004

aumingjablogg!

jamm, það er bloggið mitt þessa dagana, hef verið að vinna nánast daglega síðan síðast og þá virðist ég glata tengslum við umheimin...

Annars er það að frétta að síðan síðast er ég byrjuð að gera magaæfingar og búin að læra að hekla! Þetta eru kannski ekki merkileg afrek en eins og er þá bústar þetta aðeins egóið mitt.

Ég er nefnilega stundum svoddan bjáni. T.d. þegar ég tók þá meðvituðu ákvörðun um að gera aldrei magaæfingar þegar ég fer að æfa. Jebb, ég tók þá ákvörðun einhvern tímann í fyrra. Eða árið þar áður. Það var amk á þessari öld. Málið er bara það að magaæfingar eru leiðinlegustu æfingar sem ég geri nema ef ég kem þeim uppí rútínu og hætti að taka eftir því að ég sé að gera magaæfingar. En eftir að ég skipti um líkamsræktarstöð fyrir nokkrum árum þar sem aðstaðan er öðruvísi, en síst verri, en á gamla staðnum þá hef ég einhvern veginn ekki getað komið magaæfingunum í fasta rútínu og annað hvort pínt sjálfa mig til að gera æfingarnar eða hreinlega sleppt þeim. Svo einn daginn var ég orðin þreytt á þessum skrípaleik og ákvað að hætta bara að gera magaæfingar þar til að mig langaði að gera þær aftur. Það leið heilt ár (eða meira) þar til ég ákvað að láta til skarar skríða á ný, sem var í síðustu viku.

Ég virkilega finn það að ég er með alveg geðveikt flott 'sixpack' en oh my god, það líður sko á löngu þar til að það kemur í ljós...

og svo lærði ég að hekla í gær.

12. feb. 2004

var að bæta við...

lista yfir það sem ég hef lesið á árinu, þeas sem afþreyingu. Ég hef hugsað mér að bæta inn hlekkjum jafnóðum og ég klára fleiri bækur og vona að einhverjir hafi gaman af... Helsta áhyggjuefni mitt varðandi þennan lista er að hann gæti orðið soldið langur en það kemur bara í ljós.

Við þetta vil ég bæta að þessar 4 bækur sem eru komnar er allar mjög góðar. Ég var að klára Reisubókina í gær og sat sem töfruð yfir henni. Hið sama má segja um Da Vinci lykilinn sem ég kláraði á einni helgi. Um Hobbitann og Tolkien er óþarft að segja nokkuð. Alveg frábær!

Ef þið hafið ekki lesið þessar bækur, þá endilega drífið í því og gaman væri að heyra hvað ykkur finnst um þær og jafnvel uppástungur um hvað ég ætti að lesa næst...

9. feb. 2004

hvers á maður að gjalda?

...fyrir að vilja vera sprækur og hress á sunnudegi og vilja taka daginn snemma. Ég bara spyr.

Ég fékk nefnilega þessa snilldarhugmynd á laugardaginn að taka daginn í gær með trompi og vera ofuraktív; vakna snemma, drífa mig í ræktina, svo heim að læra til að vera búin að afkasta miklu fyrir kvöldið til að geta mætt með hreint hjarta og bros á vör í saumaklúbbinn. EN...

Fyrsta skrefið til að ná tilsettum markmiðum gærdagsins var að sofa heima hjá Davíð, hann var nefnilega á næturvöktum um helgina þannig að það var tilvalið að láta hann vekja mig með kaffibolla og kossi þegar hann kæmi þreyttur heim til að fara að sofa kl. 8. Mín snjöll eða hvað? Þetta virkaði mjög vel og ég líka í þessum súpergír þegar klukkan var rúmlega 9 og ég komin fyrir utan Hreyfingu en þar var engin hreyfing.

Það opnar nefnilega ekki fyrr en kl. 10 á sunnudögum.

frábært. NOT!

Huxihux! Ný hugmynd! Ég dreif mig uppí skóla til að netast aðeins og prenta út glósur og svo ætlaði ég sko að halda fyrra plani og drífa mig í ræktina kl. 10. Ég kom uppí skóla og þar var heldur engin hreyfing. Og ekkert ljós heldur. Afhverju?

Jú, vegna þess að húsnæði Háskólans opnar í fyrsta lagi kl. 10 á sunnudögum. Ef það opnar yfir höfuð!

ARGogGARG! ARGogGARG!

Þetta fór alveg með mína vandlega undirbúnu löngun til dugnaðar þann daginn. Ég fór heim og lagðist uppí sófa með Fréttablaðið. Nennti ekki einusinni að byrja að læra fyrr en seint og síðar meir.

7. feb. 2004

WANTED! WANTED! WANTED!

Já, mig vantar smá hjálp. Mig vantar góða uppskrift/leiðbeiningar um það hvernig er best að elda hvalkjöt. Ég er búin að leita á netinu og finn ekkert. Eða jú, ég finn eitthvað en ekki það sem ég er að leita að. Niðurstöðurnar af þessari síðu skiluðu meðal annars þessu og þessu. Hjálpar mér ekki mikið. Annars gæti nú verið spennandi að sjá hvort manni tækist að búa til hval úr einu blaði...

Mér finnst að einhver hvalkjötssnillingurinn ætti að taka sig til og búa til svona hvalkjöt.is-síðu, bara svona til þess að mismuna ekki kjöttegundum. Það er jú til nautakjötssíða, svínakjötssíða og lambakjötssíða!
Í fljótu bragði virðist mér líka vanta kjúllasíðu.

Látið mig endilega vita ef þið hafið einhverjar ábendingar, ég ætla að fara að drífa mig í þessa búð og sjá hvort ég fái ekki hvalkjöt þar...

ps. eftir allar þessar vangaveltur og kjötumræðu þá hef ég komist að því að mér finnst orðið kjöt ljótt orð. Sérstaklega í eignarfalli: kjöts. Þetta var víst tótallí bísæd ðe pojnt.

6. feb. 2004

að eiga ekki tölvu er...

FÚÚÚÚLT!

ég sit núna í Odda og ætlaði að blogga um eitthvað skemmtilegt en rétt í þessu birtist stór og ófrýnilegur maður og sagðist ætla að fara að loka þannig að... ekkert blogg í dag.

GÓÐA HELGI!

5. feb. 2004

sólheimar eða sólheimur?

Ég fór og hitti yfirmann minn í gær, vegna sumarfrísskipulagningar og fleira... Þegar hún sá mig sagði hún:

"Þú ert alltaf svo hress og kát!"

Ég vissi ekki alveg hvað ég átti að segja svo ég brosti bara. Sólheimabrosinu mínu sem hefur ekki farið af mér síðastliðna 5 mánuði. Svona er nú gaman að vera ástfanginn!

Þetta var væm vikunnar.

4. feb. 2004

sjóræningjar!

Ég er bara nýlega búin að sjá myndina Pirates of the Caribbean því ég var á fjöllum þegar hún var í bíó. Ég verð nú bara að segja það að þessi mynd kom mér á óvart, því hún var þrælskemmtileg og góð. Betri en ég bjóst við. Ekki spillti það fyrir að elsku kallinn, hann Johnny Depp, var aðalstjarnan. Ég veit ekki af hverju en ég stenst þennan mann ekki. Hann hefur einhver töfrandi áhrif á mig og ég sem hrífst nú yfirleitt ekki af svona fíngerðum, snoppufríðum mönnum eins og þessum til dæmis. Ég vil hafa þá meira svona 'ruggedly handsome'. Eins og LadyMary...

Og nú bíð ég spennt eftir framhaldinu af ævintýrum Captain Jack Sparrow og félaga...


...og er þetta þá ekki viðeigandi í lokin?



HVAÐA SJÓRÆNINGI ERT ÞÚ?!?

29. jan. 2004

HEIMURINN MINN!

Svona lítur heimskortið mitt út þegar ég er búin að merkja inn þau 17 lönd sem ég hef heimsótt í heiminum hingað til... Það gera heil 7% af heiminum. Ég hef tekið góðan rúnt í Evrópu og skoppað aðeins í Afríku og Asíu en ég á báðar Ameríkurnar alveg eftir. Það stendur allt til bóta...



Hérna getið þið hin búið til ykkar eigið heimskort. Góða skemmtun!

svei mér þá!

þetta virkar barasta strax! Flott hjá þér, ellamaja! já, stundum verður maður að hrósa sér sjálfur...

Ég vil líka vekja athygli á nýjasta hlekknum mínum, hérna neðst til hægri. Þar getur maður skoðað merkingu nafnsins síns og séð hversu margir bera nafnið og ýmislegt fleira...