16. maí 2004

hver er þessi ELÍSABET BREKKAN eiginlega?

Eins og hverri góðri konu á fertugsaldri sæmir þá horfði ég andaktug á beina útsendingu RÚV frá konunglega brúðkaupinu í Köben á föstudag. Skálaði meira að segja í dönskum bjór og borðaði amrískt 'smörrebröd' með!

Þetta var alveg ægilega hyggeligt hjá mér og ekkert sem sló á gleði mína nema þessi Elísabet Brekkan sem var að lýsa viðburðunum með honum Boga Ágústssyni. Hún vissi ekki neitt í sinn haus og greip endalaust framí fyrir Boga og var alltaf að biðja hann að rétta sér kaffið og kökuna og blablabla. Þetta er ekki einu sinni það versta! Það kannast örugglega allir við það að hafa talað við fólk í síma sem andar beint í tólið þannig að allt samtalið verður litað af svona hálfgerðu "ffffffhhhh"-hljóði. Well, kerlingardruslan gerði það í beinni útsendingu í sjónvarpinu. Mjög sjarmerandi, eða hittó!

Svo fannst henni prinsinn svo viðkvæmur af því að hann táraðist þegar hann sá prinsessuna sína ganga inn kirkjuna. Já, eða að hann væri með ofnæmi fyrir blómunum á staðnum. Hún var alveg greinilega ekki að sinna sínu hlutverki þarna sem þulur með Boga því hann var að reyna að beina henni inn á réttar brautir þegar hann byrjaði sjálfur að tala um fínu kjólana sem konurnar voru í...

Já og mér finnst hún bara alls ekki eiga það skilið að bera nafnið Elísabet. Og hananú!