samskipti
Hér kemur smá saga, ekki skálduð. Eins og flestir sem koma hingað reglulega vita, þá stóð ég í flutningum í janúar og það er svo sem ekki í frásögur færandi nema hvað að ég öðlaðist óvænta lífsreynslu útúr því. Eða réttara sagt, fékk nýja hugmynd um samskipti fólks í dag.
Alla vega, sendibílstjórinn sem hjálpaði mér bauð mér að borga beint inn á reikninginn sinn og gaf mér tilheyrandi upplýsingar og gsm-númerið sitt. Ég hins vegar stóð ekki við að borga á þeim degi sem ég hafði lofað, gerði það degi of seint og var með hálfgerðan móral yfir því og sendi honum SMS-skilaboð um að ég væri búin að borga þegar ég loksins komst í banka til að ganga frá því.
Einfalt og ofureðlilegt.
Hann svaraði mér tilbaka:
Ég hafði nú engar áhyggjur af greiðslunni... má ég spyrja þig einnar spurningar?
Hmm... þetta hljómar nú svolítið skringilega. Hvað vill hann vita? Og ég svara:
Hvað viltu vita?
Svarað um hæl:
Ertu einhleyp? ef þetta er of persónuleg spurning þá þarftu ekki að svara...
Pínlegt! Ég hef engan áhuga en veit ekki alveg hvernig á að gefa það til kynna. Finnst asnalegt að ljúga og segjast vera á föstu eða vera lesbía eða eitthvað þess háttar. Hux, hux, hux! í 2 klst. Og svo, er þetta ekki bara pent og nett 'nei takk':
reyndar er ég einhleyp en er bara ekki að leita mér að neinum...
Persónulega fannst mér þetta mjög einfalt og skiljanlegt og var bara nokkuð ánægð með mig. Og fegin að vera laus við þessa hangandi spurningu en um leið þá kom þetta:
ég var nú ekkert á höttunum eftir slíku - bara að spá í bíó, sund eða kaffihús
Ég svaraði ekki þessum síðustu skilaboðum því mér fannst ég alveg vera búin að segja NEI TAKK.
Þetta vakti mig aðeins til umhugsunar hvað samskipti manna hafa breyst undanfarin ár. Internet og gsm-símar. Samskipti nútímans. Maður er auðvitað nokkuð stikkfrí þegar maður hefur samband á þennan hátt og þarf ekki að horfa framan í manneskjuna sem maður er kannski eitthvað spenntur fyrir, þarf ekki að hafa áhyggjur af því að roðna eða stama eða að segja eitthvað ógáfulegt. Og höfnunin verður kannski ekki eins sterk heldur.
Ég frétti svo af einni skvísu um daginn sem sá flottan gæja í bænum og hafði uppi á netfanginu hans og sendi nokkrar línur. Er þetta málið í dag? Er það svona sem maður nær sér í gæja eða skvísu?