25. feb. 2003

nammidagar og nammilausir dagar


Ég er algjör lúser!
Ég þykist vera að taka mataræði mitt í gegn og minnka nammiát og svoleiðis þannig að ég er komin með reglu um nammidaga! Mjög sniðugt! Mér finnst helst til strangt að vera bara með 1 nammidag þannig að ég er með 'nammihelgar' þeas ég leyfi sjálfri mér að borða nammi um helgar, bæði lau og sun.
Svona til að byrja með.
Það er amk hugmyndin.
En reyndin er önnur.
Mínar helgar, amk 'nammihelgar' ná nefnilega yfirleitt frá fös-morgni til mán-kvölds eða jafnvel lengur! Eins og t.d. núna þá nær nammihelgin alveg fram á þriðjudag!!!
Eins og ég sagði: Ég er algjör lúser.

Byrja á fullu í ræktinni á morgun...