helgin...
var bara nokkuð góð. Fór í ræktina á laugardaginn og tók vel á - hef ekki gert það í laaangan tíma þannig að ég er með smá strengi og harðsperrur í dag en mér finnst það ekkert slæmt. Það minnir mig á hvað ég var dugleg á laugardaginn og hvað ég ætla að halda áfram að vera dugleg næstu vikurnar. Það er jú árshátíð framundan í vinnunni og átakið sem er í gangi þessa dagana er 'Í kjólinn fyrir árshátíðina!' eða eitthvað. Reyndar kemst ég alveg í kjólinn en maður hefur samt bara gott af því að hreyfa sig aðeins.
Það var líka pulsupartí á laugardaginn. Langt síðan maður hefur farið í svoleiðis. Allur vinahópurinn og öll börnin, grillaðar pulsur og snjókoma. Ekki slæmur kokteill það. Eitthvað var rætt um '30 ára-ferðalagið' og því komið á framfæri að næstu 18 mánuðina má enginn í hópnum verða barnshafandi! En við eigum von á nýju barni um miðjan júlí.
Talandi um ferðalög. Mér var boðið að koma með til Seattle í maí/júní. Mig alveg dauðlangar, það vantar ekki og myndi hiklaust fara ef ég ætti pening! Það er nefnilega amerísk stelpa að vinna með mér, hún er frá Seattle og var að segja mér að hún og maðurinn hennar væru að spá í að fara í ca 1 mánuð í maí/júní og að ef ég vildi þá ætti ég að koma með. Spennandi, ekki satt?
En það furðulegasta við þetta er að einungis nokkrum dögum áður var spáð fyrir mér að ég væri að fara í ferðalag í maí/júní, með 2-3 öðrum og líklegast væri þetta til USA. Þetta passar alveg nákvæmlega saman!
It's fate.
It's meant to be.
Ég fæ bara bankalán!
NOT!!!
Ég ætla bara að vera dugleg að vinna í sumar og græða pening, ekki eyða honum!
|