26. feb. 2003

auglýsingar


Ég heyrði útvarpsauglýsingu í gær frá nýja lággjalda flugfélaginu Iceland Express og ég fór að skellihlæja! Alveg frábær auglýsing, amk fyrir svona njóla eins og mig. Það eru nokkrar útgáfur af þessari auglýsingu sem í aðalatriðum snýst um að það er einhver stelpa að æfa sig að segja "Welcome on board this Iceland Express flight..." og í þessari tilteknu auglýsingu er einhver gæi að leiðbeina henni og segir henni að segja þessa setningu með dönskum hreim. Ef það er eitthvað sem mér finnst fyndið, þá er það að heyra ensku talaða með dönskum hreim og áherslum...
Hver man ekki eftir Eddie Skoller og:
"You have been to school today, not?
I thought it enough man!"

Mér finnst þetta fyndið!

Kannski eru þetta einhver laumuáhrif frá tæplega fjögurra ára búsetu í DK....