22. jan. 2003

bíóæði


Það var heimildamynd um bíóæði (e. cinemania) á RÚV í gærkvöldi, ég horfði á brot af þessum þætti. Þetta fjallaði um fólk í New York sem að gerir ekkert annað en að fara í bíó. Er á atvinnuleysisbótum, örorkubótum eða lifir á einhverjum arfi og er svo bara í bíó alla daga! Og það er ekki verið að tala um eina bíómynd, ónei, heldur bíó allan daginn, margar myndir. Þeirra stærsta vandamál er hvort þeim tekst að púsla saman dagskrá fyrir daginn þannig að þau geti séð allar myndirnar sem það langar til að sjá. Einn tekur alltaf með sér nesti og föt til skiptanna ef honum skyldi verða kalt. Og starfsfólkið í kvikmyndahúsunum þekkir þetta lið því það er alltaf í bíó - einn sýningarstjórinn sagðist mas vera stoltur af því að fá þetta fólk á sýningu til sín því það væri merki um það að önnur kvikmyndahús hefðu þá ekki betri dagskrá upp á að bjóða þann daginn. Það er hægt að gera þetta í New York sem er mekka kvikmyndaaðdáenda, eins og einn bíóæðingurinn sagði, en þetta gengi ekki upp í Reykjavík þar sem bíóum fer stöðugt fækkandi og sömu myndirnar í gangi í þeim öllum!