9. maí 2006

Í dag...

fellur lífið í eðlilegar skorður aftur og ég er orðin árinu eldri. Dojojongs!

6. maí 2006

nýtt tímabil

Ég get ekki neitað því að það var ákveðinn léttir að vakna í morgun og finna að ég átti allskonar aðrar hugsanir í kollinum en hvernig væri best að skipuleggja vinnudaginn til að fá sem mest útúr honum á báðum stöðum og samt ná heim fyrir kvöldmat. En það fylgir því vissulega ákveðinn söknuður að vera hætt í Hátækni því að ég hef aldrei unnið með jafnmikið af skemmtilegu og léttklikkuðu fólki á einum stað.

Ég var reyndar svo búin á því í gær, sjálfsagt einhvers konar spennufall og uppsöfnuð þreyta, að ég var komin upp í rúm kortér yfir átta og fór því ekki í afmælispartíið í gær.

Nú er ég mætt aftur í vinnuna til að vinna eins og hestur að klára stóra verkefnið sem við eigum að skila á mánudaginn þannig að eðlilegt líf hefst ekki aftur fyrr en á þriðjudag.

5. maí 2006

síðasti dagurinn!!!

jessörííí! í dag er síðasti tvöfaldi vinnudagurinn minn og er það vel.

... það gengur ágætlega á Everest en áfall að vakna og frétta það að fullt af fólki hafi ekki skilað sér og að einhverjir hafa dáið. Ég veit ekki af hverju ég upplifi þessa bók svona sterkt.

... ég er að hugsa um að taka hana Garún vinkonu mér til fyrirmyndar og svara öllum kommentum sem ég fæ á síðuna mína. Hef bara gert það eftir hentugleika hingað til.

... í kvöld er svo fyrsta afmælisveislan af nokkrum sem eru framundan á næstu dögum.

... og þessu gleymdi ég alveg í gær (skammskamm Elísabet!):
Til hamingju með afmælið Sigurborg og Dögg

4. maí 2006

gat skeð!

bróðir minn elskulegur lánaði okkur skötuhjúum bílinn sinn til afnota um óákveðinn tíma þar sem hann er kominn með nýja vinnu og fékk þar bíl til sinna afnota. Einn maður hefur ekkert við tvo bíla að gera þannig hann semsagt lánaði okkur sinn eigin bíl.
Sem er stór, amrískur bensíngleypir þannig að maður er ekkert mikið að rúnta á honum af gamni sínu, enda á ég þetta líka forláta strætókort sem rennur ekki út fyrr en á laugardag (dugar akkúrat til að klára gömlu vinnuna).
Eníveis, við þurftum að skreppa alla leið út á Keflavik International Airport í morgun til að sækja vinkonu okkar sem var að koma frá BNA og til þess að vera viss um að komast báðar leiðir klakklaust, þá keyptum við bensín í morgun. Fyrir kr. 127 og einhverja aura lítrann!!!

Svo þegar ég fletti núna uppá mbl þá er barasta búið að lækka bensínverð allsstaðar. Já, fussumsvei segi ég bara!!!

arrógant...

er bara að velta fyrir mér, getur ropi verið hrokafullur?
það er gaur að vinna með mér og svona almennt séð er hann yfir aðra hafin (að eigin mati) og ég sver það, ég heyri það þegar hann ropar. Sem hann gerir hátt og snjallt á hverjum degi. Og ég fæ svona vibbahroll í hvert sinn.

ef þið hafið horft á sænsku fangelsisþættina í vetur, Häktet, þá var þar gaur sem var síétandi og ég get ekki að því gert að þessi samstarfsmaður minn minnir mig á þennan sænska. Ekki alveg jafnógeðslegur en eiginlega alveg jafnóaðlaðandi.

just wondering...

tveir...

dagar enn.
Ég vildi bara að þetta væri búið, því þá gæti ég eytt minni tíma í nýju vinnunni (sem bráðum verður VinnaN) og meiri tíma heima að lesa. Ég er nefnilega að lesa svo spennandi bók og í gær, áður en ég fór að sofa, var ég búin að ná toppinum á Everest og aftur komin niður í fjórðu búðir, hálf rugluð af þreytu og súrefnisskorti og algjörlega ómeðvituð um að 19 manns væru föst í hlíðum tindsins útaf óveðrinu.
Jamm, ég er að lesa Á fjalli lífs og dauða (Into Thin Air) eftir Jon Krakauer. Fékk hana lánaða hjá frænku minni sem lánaði mér líka þessa. Þeim ber nefnilega ekki saman um atburði og annað, segir hún og það er gaman að sjá mismunandi skoðanir og upplifun manna.

Ég man eftir þessum leiðangrum, fyrir akkúrat 10 árum, í apríl/maí 1996. Ég man eftir þessu af því að í einum þeirra var dönsk kona sem var fyrst danskra kvenna til að ná toppnum á Everest og þarafleiðandi mikil umfjöllun um þetta í fjölmiðlum í DK. Hún skrifaði einmitt bók um þessa lífsreynslu og ef ég verð ekki komin með nóg eftir að hafa lesið bæði Krakauer og Boukreev, þá verð ég mér kannski úti um bókina hennar Lenu líka.

Eníveis, vinnan kallar.

3. maí 2006

þrír...

dagar eftir í tvöfaldri vinnu... þetta er allt að koma.

Mér bauðst að fá boðsmiða á (forsýningu?) á MI:III annað kvöld en ég afþakkaði. Ég veit ekki hvað það er en ég er hreinlega komin með óbeit á Tom Cruise. Ég hef svo sem alveg upplifað það áður að missa áhugann á einhverjum leikara þannig að maður hættir að eltast við myndir með viðkomandi en heldur samt áfram að horfa á gömlu myndirnar. En svoleiðis er það ekki með TC - ég hreinlega get ekki hugsað mér að horfa á neitt með honum, hvorki nýtt né gamalt. En það er alltílagi, ég sakna hans ekkert.

2. maí 2006

Fjórir...

dagar eftir í Hátækni. Sem er eiginlega alveg 4 dögum og mikið fyrir mig núna, er nefnilega alveg búin að fá nóg af ofurvinnu í bili.

Já, niðurtalningin er hafin!

1. maí 2006

1. maí

æ, hvað mig langar mikið að vera allt annarsstaðar en í vinnunni í dag. Mig langar að fá mér ís, fara í gönguferð í Esjunni eða Heiðmörk, hitta skemmtilegta fólk eða bara vera úti og njóta maísólarinnar! En í dag á ég ekkert val, verð að vinna.

Það eru bara 4 tvöfaldir vinnudagar eftir!!! Síðasta vinnudagurinn í Hátækni er á föstudaginn og það er svooo ljúft!

Annars eru bara ammli og meiri ammli framundan, 6 manneskjur sem ég þekki vel eiga afmæli á næstu 10 dögum...
Til hamingju með það afmælisbörn!

Síðar:

Ég heyri í lúðrablæstri 1. maí göngunnar inn um gluggann minn. Mig langar ennþá út.

Enn síðar:

Ég ætla út núna.
Út í maírigninguna,
sólin gafst uppá að bíða eftir mér.

28. apr. 2006

Spenningurinn í algleymingi

Við skötuhjúin á Bárunni höfum beðið spennt eftir að “vinsælasti sjónvarpsþáttur í heimi”* hæfi aftur göngu sína á Skjá einum eftir að nýja sjónvarpið okkar opnaði hann fyrir okkur aftur. Í gær hófst svo gleðin og við sáum vin okkar Horatio Caine loksins aftur og þvílík gleði! Hann hefur ekkert breyst og er alveg einsog þegar við sáum hann síðast.
Nú megið þið ekki misskilja mig, galdurinn er að horfa á þennan þátt sem grínþátt. Fyrsta atriðið er alltaf best, þið vitið áður en að kynningin á þættinum kemur. Þá er hann alltaf á vettvanginum þar sem glæpurinn átti sér stað og hann á alltaf síðustu setninguna. Hádramatískur einsog honum einum er lagið. Það er líka alveg merkilegt hvað hann snýr oft baki í fólk sem hann talar við eða horfir bara alls ekki á það.
Ég veit ekki með ykkur en okkur finnst hann alveg drepfyndinn og frábært að herma eftir honum. Þegar við erum í stuði þá endurtökum við allar línurnar hans og hlæjum svo einsog bavíanar.
Ég mæli með því að prófa það.

*mig langar rosalega að vita hvert úrtakið var til að fá þessa niðurstöðu, trúi því engan veginn að þetta standist.

24. apr. 2006

Brúðkaup, þynnka og vinna

Brúðkaupið á laugardaginn var alveg stórskemmtilegt og gaman að sjá nánast alla móðurfjölskylduna saman komna á einum stað. Ég er nefnilega ekki eins frændrækin einsog ég vildi vera. Það stendur allt til bóta og batnandi manni er best að lifa.
Í gær fór lítið fyrir vinnu einsog áformað hafði verið en hinsvegar fór meira fyrir þynnku og afslöppun. Já, ég var ekki mjög hress þegar ég vaknaði í gær en það lagaðist þegar leið á daginn en ég ákvað samt að njóta þess að gera mest lítið og dagurinn fór að mestu í sjónvarpsgláp og kattaklapp. Enda vaknaði ég fersk í morgun, tilbúin að takast á við næstsíðustu löngu vinnuvikuna mína. Núna get ég farið að telja niður!

22. apr. 2006

í gær, í dag, á morgun

í gær var keiluferð með vinnunni (gömlu), í dag er brúðkaup frænku minnar, á morgun er afslöppun og smá vinna.

akkúrat núna: að lesa yfir ritgerð fyrir D

20. apr. 2006

Gleðilegt sumar!

samkvæmt mbl.is fraus vetur og sumar saman þannig að það ætti að vera von á góðu sumri. Það er allavega bjart og fallegt í dag.
Takk fyrir veturinn!

17. apr. 2006

annar í páskum

mætt í vinnuna aftur eftir þriggja daga frí sem var alveg svakalega endurnærandi og dagurinn í dag verður bara stuttur, 9-16, en svo á að halda áfram að njóta lífsins með mínum heittelskaða.

14. apr. 2006

mýs í Vesturbænum

já, það er ekki frá því að við höfum orðið vör við músagang undanfarið og eigum reyndar ekkert von á að það lagist. Músagangur er kannski ekki alveg rétta orðið því þær ganga nú ekki mikið þessar títlur eftir að hafa verið veiddar og bornar inn í hús til okkar af ofurveiðikisunni okkar, henni Rökkvu.
Þeim sem til okkar þekkja, eru varla hissa á því að David er að springa úr stolti yfir veiðikunnáttu kattarins.

Fernt af öllu...

ég ætlaði víst að vera búin að þessu um síðustu helgi en betra er seint en aldrei...

4 störf sem ég hef unnið um ævina:
Uppvaskari (fyrsta starfið)
Au pair (í útlöndum)
Skálavörður á hálendinu (draumastarf)
þýðandi (nýjast)

4 bíómyndir sem ég gæti horft á aftur og aftur:
Secondhand Lions
Amélie
The Princess Bride
Saving Grace

4 staðir sem ég hef búið á:
Mogadishu, Sómalíu
Mukalla, Yemen
Pattani, Thailandi
Kaupmannahöfn, Danmörku

4 sjónvarpsþættir sem mér líkar:
Aðþrengdar eiginkonur
Spooks
Aukaleikarar
Jörðin

4 síður sem ég skoða daglega fyrir utan bloggið:
mbl.is
... er rosalega léleg að vafra um netið

4 matarkyns sem ég held upp á:
íslenskt lambakjöt
íslenskur fiskur
mexikóskur matur
asískur (indverskur/thailenskur/kínverskur...) matur

4 staðir sem ég vildi heldur vera á núna:
Álftavatni að Fjallabaki
Snæfellsnesi
víðsvegar í Kanada
Skagafirði

4 staðir sem ég hef heimsótt í fríum:
Noregur/Svíþjóð (æfingabúðir í Karate + heimsókn til ættingja)
Kanada (skoða uppruna D)
Barcelona (U2 tónleikar!!!)
Færeyjar (með gömlu Norrænu)

4 bloggarar sem þurfa að gera þetta líka:
þeir sem ekki hafa gert þetta áður...

2. apr. 2006

fyrsti apríll

Dagurinn í gær var fínn, ég vaknaði eldsnemma, alveg eldhress eftir að hafa skriðið uppí rúm kl. 19:30 kvöldið áður, alveg að drepast úr mígreni. Gaf mér góðan tíma með kaffibollann og blöðin í rúminu á meðan ég leyfði David að vakna í rólegheitunum.

Það fyrsta virkilega spennandi sem ég las í blöðunum í gær var að Apple-búðin var að bjóða Ipod á hálfvirði útaf einhverjum breytingum á tollaflokkum. Ég velti því fyrir mér hvort við skötuhjúin ættum ekki að skella okkur þangað og ná okkur í einn svona ipod á hálfvirði á meðan ég hélt áfram að lesa blaðið. Nokkrum opnum síðar var svo
umfjöllun um 1. apríl gabb fjölmiðla í gegnum árin og þá fattaði ég djókið. Þannig að ég hafði allan varann á mér þegar lestur/fletting næsta blaðs hófst. Og viti menn, fljótt kom ég auga á frétt um að Den Danske Bank og SPRON ætluðu að bjóða íbúðalán með 3% vöxtum og ég lét nú ekki gabbast af því. Enda svosem ekkert í neinum húsnæðishugleiðingum nema hvernig við getum betrumbætt Báruna okkar. Eníveis, flettingin hélt áfram og þá kom hið allraskemmtilegasta í blöðunum þann daginn:
Bílaleigubíll á 35 kr. hjá Hertz.
Ég þorði nú ekki alveg að trúa þessu þannig að ég hringdi til þeirra og jú, mikið rétt, þeir voru að fagna 35 ára afmæli sínu á Íslandi og buðu alla sína bíla á 35 kr. yfir daginn. Ég var ekki lengi að koma mér í föt og af stað til að næla mér í einn slíkan!
Þannig að í gær rúntuðum við David um á Toyota Avensis Station og keyptum fullt af dóti. Fullorðinsdóti.

Neineinei, ekki svona dónalegu dóti, heldur nýtt sjónvarp, dvd-spilara og magnara (en engan ipod). Hátalararnir koma svo í vikunni. Það var nú alveg löngu kominn tími á að fá nýtt sjónvarp, þótt 30 ára Hitatchi tækið okkar hafi nú alveg staðið fyrir sínu hingað til en því miður ekki hægt að tengja dvd-spilara við það. Það kom líka í ljós við sjónvarpsskiptin að við erum alltíeinu komin með aðgang að Skjá einum, Sirkus og Omega en fundum bara RÚV á gamla tækinu. Það var reyndar alveg nóg að hafa bara eina sjónvarpsstöð.

Við fórum svo og skiluðum bílnum í morgun og á leiðinni heim komum við við hjá Jamie og skoðuðum nýju kettlingana hennar. Þeir eru svo sætir!

Á morgun byrjar svo ballið, þar sem ég verð í 150% vinnu. :o)

29. mar. 2006

Draumfarir, NYC og Morgunblaðið

Mig hefur dreymt svo mikið undanfarið. Í fyrrinótt dreymdi mig t.d. að vinkona mín (32) og strákur sem er að vinna með mér (23) væru eitthvað að skjóta sig hvort í öðru en ég sé það ekki gerast í alvörunni. Hann tekur í vörina.
Í nótt dreymdi mig svo að ég væri í New York og væri heima hjá Ernu vinkonu að bíða eftir að hún kæmi heim úr vinnunni. Mér leiddist eitthvað að bíða þannig að ég fór eitthvað út og sá þá Baltasar Kormák leikstjóra og byrjaði eitthvað að tala við hann. Ég þurfti nefnilega að segja honum eitthvað en ég man ekkert hvað það var. Það endaði með því að ég labbaði með honum heim til hans þar sem var fullt af fólki og ég lenti þar í hrókasamræðum um plötur Halla og Ladda...
Ég skil ekkert hvaðan þetta kemur allt.

Í morgun vaknaði ég svo við það að David rétti mér Moggann sem hafði komið til okkar óvænt. Ég hélt að við værum þvílíkt að græða á því að nýr blaðberi væri byrjaður en svo kom í ljós að Icelandair hafði keypt allar auglýsingarnar í blaðinu í dag og því dreift í stærra upplagi.

24. mar. 2006

Andleg líðan, brúðkaup+orðapressa og helgin

Ég hef verið hálf domm undanfarna daga, eftir að ég skilaði síðasta þýðingaverkefninu mínu og eftir að það komst á hreint að ég væri að fara að skipta um vinnu. Held að þetta sé bara uppsöfnuð þreyta og í gær langaði mig hreinlega ekki að tala við fólk. Var í engu skapi fyrir félagsskap en ég er öll að koma til.

Við erum búin að búa til blogg fyrir brúðkaupið okkar, sem er eiginlega meira ætlað sem upplýsingaveita til vina og ættingja í Kanada og annars staðar sem ekki þekkja til á Íslandi. En að sjálfsögðu er öllum velkomið að líta við þar, sú síða er hýst af Wordpress og ég er jafnvel að spá í að færa þessa síðu þangað, sjáum til. Þessi síða þarfnast alla vega upplyftingar.

Helgin framundan er róleg, ekkert planað annað en tiltekt og heimilisleg verkefni. En ég ætla að njóta þess á meðan ég er bara í einu starfi.

Á mánudagskvöldið er svo þetta á dagskránni.

13. mar. 2006

BraBra

ég fékk að heyra það í morgun að ég væri ósanngjörn og frek (það síðara reyndar ekki sagt beint við mig) en ég fékk mínu framgengt þannig að frá og með 1. apríl verð ég í 150% vinnu um óákveðin tíma. Þó aldrei lengur en til 31. maí.

"Brabra" segir þýðÖndin