6. maí 2006

nýtt tímabil

Ég get ekki neitað því að það var ákveðinn léttir að vakna í morgun og finna að ég átti allskonar aðrar hugsanir í kollinum en hvernig væri best að skipuleggja vinnudaginn til að fá sem mest útúr honum á báðum stöðum og samt ná heim fyrir kvöldmat. En það fylgir því vissulega ákveðinn söknuður að vera hætt í Hátækni því að ég hef aldrei unnið með jafnmikið af skemmtilegu og léttklikkuðu fólki á einum stað.

Ég var reyndar svo búin á því í gær, sjálfsagt einhvers konar spennufall og uppsöfnuð þreyta, að ég var komin upp í rúm kortér yfir átta og fór því ekki í afmælispartíið í gær.

Nú er ég mætt aftur í vinnuna til að vinna eins og hestur að klára stóra verkefnið sem við eigum að skila á mánudaginn þannig að eðlilegt líf hefst ekki aftur fyrr en á þriðjudag.