4. maí 2006

arrógant...

er bara að velta fyrir mér, getur ropi verið hrokafullur?
það er gaur að vinna með mér og svona almennt séð er hann yfir aðra hafin (að eigin mati) og ég sver það, ég heyri það þegar hann ropar. Sem hann gerir hátt og snjallt á hverjum degi. Og ég fæ svona vibbahroll í hvert sinn.

ef þið hafið horft á sænsku fangelsisþættina í vetur, Häktet, þá var þar gaur sem var síétandi og ég get ekki að því gert að þessi samstarfsmaður minn minnir mig á þennan sænska. Ekki alveg jafnógeðslegur en eiginlega alveg jafnóaðlaðandi.

just wondering...