3. maí 2006

þrír...

dagar eftir í tvöfaldri vinnu... þetta er allt að koma.

Mér bauðst að fá boðsmiða á (forsýningu?) á MI:III annað kvöld en ég afþakkaði. Ég veit ekki hvað það er en ég er hreinlega komin með óbeit á Tom Cruise. Ég hef svo sem alveg upplifað það áður að missa áhugann á einhverjum leikara þannig að maður hættir að eltast við myndir með viðkomandi en heldur samt áfram að horfa á gömlu myndirnar. En svoleiðis er það ekki með TC - ég hreinlega get ekki hugsað mér að horfa á neitt með honum, hvorki nýtt né gamalt. En það er alltílagi, ég sakna hans ekkert.