fyrsti apríll
Dagurinn í gær var fínn, ég vaknaði eldsnemma, alveg eldhress eftir að hafa skriðið uppí rúm kl. 19:30 kvöldið áður, alveg að drepast úr mígreni. Gaf mér góðan tíma með kaffibollann og blöðin í rúminu á meðan ég leyfði David að vakna í rólegheitunum.
Það fyrsta virkilega spennandi sem ég las í blöðunum í gær var að Apple-búðin var að bjóða Ipod á hálfvirði útaf einhverjum breytingum á tollaflokkum. Ég velti því fyrir mér hvort við skötuhjúin ættum ekki að skella okkur þangað og ná okkur í einn svona ipod á hálfvirði á meðan ég hélt áfram að lesa blaðið. Nokkrum opnum síðar var svo
umfjöllun um 1. apríl gabb fjölmiðla í gegnum árin og þá fattaði ég djókið. Þannig að ég hafði allan varann á mér þegar lestur/fletting næsta blaðs hófst. Og viti menn, fljótt kom ég auga á frétt um að Den Danske Bank og SPRON ætluðu að bjóða íbúðalán með 3% vöxtum og ég lét nú ekki gabbast af því. Enda svosem ekkert í neinum húsnæðishugleiðingum nema hvernig við getum betrumbætt Báruna okkar. Eníveis, flettingin hélt áfram og þá kom hið allraskemmtilegasta í blöðunum þann daginn:
Bílaleigubíll á 35 kr. hjá Hertz.
Ég þorði nú ekki alveg að trúa þessu þannig að ég hringdi til þeirra og jú, mikið rétt, þeir voru að fagna 35 ára afmæli sínu á Íslandi og buðu alla sína bíla á 35 kr. yfir daginn. Ég var ekki lengi að koma mér í föt og af stað til að næla mér í einn slíkan!
Þannig að í gær rúntuðum við David um á Toyota Avensis Station og keyptum fullt af dóti. Fullorðinsdóti.
Neineinei, ekki svona dónalegu dóti, heldur nýtt sjónvarp, dvd-spilara og magnara (en engan ipod). Hátalararnir koma svo í vikunni. Það var nú alveg löngu kominn tími á að fá nýtt sjónvarp, þótt 30 ára Hitatchi tækið okkar hafi nú alveg staðið fyrir sínu hingað til en því miður ekki hægt að tengja dvd-spilara við það. Það kom líka í ljós við sjónvarpsskiptin að við erum alltíeinu komin með aðgang að Skjá einum, Sirkus og Omega en fundum bara RÚV á gamla tækinu. Það var reyndar alveg nóg að hafa bara eina sjónvarpsstöð.
Við fórum svo og skiluðum bílnum í morgun og á leiðinni heim komum við við hjá Jamie og skoðuðum nýju kettlingana hennar. Þeir eru svo sætir!
Á morgun byrjar svo ballið, þar sem ég verð í 150% vinnu. :o)
|