26. feb. 2003

auglýsingar


Ég heyrði útvarpsauglýsingu í gær frá nýja lággjalda flugfélaginu Iceland Express og ég fór að skellihlæja! Alveg frábær auglýsing, amk fyrir svona njóla eins og mig. Það eru nokkrar útgáfur af þessari auglýsingu sem í aðalatriðum snýst um að það er einhver stelpa að æfa sig að segja "Welcome on board this Iceland Express flight..." og í þessari tilteknu auglýsingu er einhver gæi að leiðbeina henni og segir henni að segja þessa setningu með dönskum hreim. Ef það er eitthvað sem mér finnst fyndið, þá er það að heyra ensku talaða með dönskum hreim og áherslum...
Hver man ekki eftir Eddie Skoller og:
"You have been to school today, not?
I thought it enough man!"

Mér finnst þetta fyndið!

Kannski eru þetta einhver laumuáhrif frá tæplega fjögurra ára búsetu í DK....


25. feb. 2003

nammidagar og nammilausir dagar


Ég er algjör lúser!
Ég þykist vera að taka mataræði mitt í gegn og minnka nammiát og svoleiðis þannig að ég er komin með reglu um nammidaga! Mjög sniðugt! Mér finnst helst til strangt að vera bara með 1 nammidag þannig að ég er með 'nammihelgar' þeas ég leyfi sjálfri mér að borða nammi um helgar, bæði lau og sun.
Svona til að byrja með.
Það er amk hugmyndin.
En reyndin er önnur.
Mínar helgar, amk 'nammihelgar' ná nefnilega yfirleitt frá fös-morgni til mán-kvölds eða jafnvel lengur! Eins og t.d. núna þá nær nammihelgin alveg fram á þriðjudag!!!
Eins og ég sagði: Ég er algjör lúser.

Byrja á fullu í ræktinni á morgun...

21. feb. 2003

samskipti


Hér kemur smá saga, ekki skálduð. Eins og flestir sem koma hingað reglulega vita, þá stóð ég í flutningum í janúar og það er svo sem ekki í frásögur færandi nema hvað að ég öðlaðist óvænta lífsreynslu útúr því. Eða réttara sagt, fékk nýja hugmynd um samskipti fólks í dag.
Alla vega, sendibílstjórinn sem hjálpaði mér bauð mér að borga beint inn á reikninginn sinn og gaf mér tilheyrandi upplýsingar og gsm-númerið sitt. Ég hins vegar stóð ekki við að borga á þeim degi sem ég hafði lofað, gerði það degi of seint og var með hálfgerðan móral yfir því og sendi honum SMS-skilaboð um að ég væri búin að borga þegar ég loksins komst í banka til að ganga frá því.
Einfalt og ofureðlilegt.

Hann svaraði mér tilbaka:
Ég hafði nú engar áhyggjur af greiðslunni... má ég spyrja þig einnar spurningar?

Hmm... þetta hljómar nú svolítið skringilega. Hvað vill hann vita? Og ég svara:
Hvað viltu vita?

Svarað um hæl:
Ertu einhleyp? ef þetta er of persónuleg spurning þá þarftu ekki að svara...

Pínlegt! Ég hef engan áhuga en veit ekki alveg hvernig á að gefa það til kynna. Finnst asnalegt að ljúga og segjast vera á föstu eða vera lesbía eða eitthvað þess háttar. Hux, hux, hux! í 2 klst. Og svo, er þetta ekki bara pent og nett 'nei takk':
reyndar er ég einhleyp en er bara ekki að leita mér að neinum...

Persónulega fannst mér þetta mjög einfalt og skiljanlegt og var bara nokkuð ánægð með mig. Og fegin að vera laus við þessa hangandi spurningu en um leið þá kom þetta:
ég var nú ekkert á höttunum eftir slíku - bara að spá í bíó, sund eða kaffihús

Ég svaraði ekki þessum síðustu skilaboðum því mér fannst ég alveg vera búin að segja NEI TAKK.

Þetta vakti mig aðeins til umhugsunar hvað samskipti manna hafa breyst undanfarin ár. Internet og gsm-símar. Samskipti nútímans. Maður er auðvitað nokkuð stikkfrí þegar maður hefur samband á þennan hátt og þarf ekki að horfa framan í manneskjuna sem maður er kannski eitthvað spenntur fyrir, þarf ekki að hafa áhyggjur af því að roðna eða stama eða að segja eitthvað ógáfulegt. Og höfnunin verður kannski ekki eins sterk heldur.
Ég frétti svo af einni skvísu um daginn sem sá flottan gæja í bænum og hafði uppi á netfanginu hans og sendi nokkrar línur. Er þetta málið í dag? Er það svona sem maður nær sér í gæja eða skvísu?


19. feb. 2003

lítið að frétta


já, lítið að frétta er bara komin með bullandi kvef og lýsið virkar sko ekki r...gat á það! Nóg um það. En það er bara ekkert annað að frétta, ég sest kannski niður í góðu tómi síðar og skálda einhverja skemmtilega sögu fyrir ykkur, kæru lesendur, svo þið haldið ekki að ég sé að gefa upp öndina...

kíkið svo á nýjasta bloggarann sem ég þekki, hana Brynku

13. feb. 2003

lýsi er allra meina bót


Eftir að hafa verið ógeðslega þreytt á morgnana í nokkrar vikur og alls ekki getað komið mér á fætur til að fara í ræktina og varla til þess að fara í skólann, þá ákvað ég að fara að eta einhver fjörefni. Ég ákvað að fylgja fordæmi bróður míns sem býr í Sverige og lætur senda sér Heilsutvennu reglulega út því sænsk vítamín virka ekki, og hef tekið þetta inn í 10 daga og er bara miklu hressari! Ég er mas búin að fara tvisvar í ræktina fyrir skóla í þessari viku en slíkt hefur ekki gerst síðan fyrir jól! Húrra fyrir lýsi og vítamínum.

Hitt er annað mál að maginn minn er ekki eins hrifinn og ég ropa upp lýsisbragði hálfan daginn...

Mér finnst alveg dásamlegt að búa á Íslandi þar sem öfgarnir geta verið svo miklir! Daginn er virkilega farið að lengja og það er orðið bjart kl. 9 og ekki dimmt fyrr en um kl. 19. Þetta er dásamlegt og mig kitlar og klæjar eftir því að komast aftur í tæri við bjartar sumarnætur!

11. feb. 2003

írónía


BNA-ferðin mín sem var ,,meant to be" er alveg augljóslega ekki ,,meant to be" þar sem að kanadíska flugfélagið HMY hefur ákveðið að fella allar ferðir til Evrópu niður eftir 10. mars.

Mín fyrsta ferð til BNA verður þá væntanlega til NY eins og ég hef áður ráðgert. En það verður samt ekki í nánustu framtíð því engar líkur eru á utanlandsferð hjá mér á þessu ári.

Nema ég vinni í lottó...

10. feb. 2003

helgin...


var bara nokkuð góð. Fór í ræktina á laugardaginn og tók vel á - hef ekki gert það í laaangan tíma þannig að ég er með smá strengi og harðsperrur í dag en mér finnst það ekkert slæmt. Það minnir mig á hvað ég var dugleg á laugardaginn og hvað ég ætla að halda áfram að vera dugleg næstu vikurnar. Það er jú árshátíð framundan í vinnunni og átakið sem er í gangi þessa dagana er 'Í kjólinn fyrir árshátíðina!' eða eitthvað. Reyndar kemst ég alveg í kjólinn en maður hefur samt bara gott af því að hreyfa sig aðeins.

Það var líka pulsupartí á laugardaginn. Langt síðan maður hefur farið í svoleiðis. Allur vinahópurinn og öll börnin, grillaðar pulsur og snjókoma. Ekki slæmur kokteill það. Eitthvað var rætt um '30 ára-ferðalagið' og því komið á framfæri að næstu 18 mánuðina má enginn í hópnum verða barnshafandi! En við eigum von á nýju barni um miðjan júlí.

Talandi um ferðalög. Mér var boðið að koma með til Seattle í maí/júní. Mig alveg dauðlangar, það vantar ekki og myndi hiklaust fara ef ég ætti pening! Það er nefnilega amerísk stelpa að vinna með mér, hún er frá Seattle og var að segja mér að hún og maðurinn hennar væru að spá í að fara í ca 1 mánuð í maí/júní og að ef ég vildi þá ætti ég að koma með. Spennandi, ekki satt?
En það furðulegasta við þetta er að einungis nokkrum dögum áður var spáð fyrir mér að ég væri að fara í ferðalag í maí/júní, með 2-3 öðrum og líklegast væri þetta til USA. Þetta passar alveg nákvæmlega saman!
It's fate.
It's meant to be.
Ég fæ bara bankalán!

NOT!!!

Ég ætla bara að vera dugleg að vinna í sumar og græða pening, ekki eyða honum!

7. feb. 2003

framundan...


... er fríhelgi! sú fyrsta í heilan mánuð og ég ætla sko að njóta hennar. Reyndar þarf ég að læra og það mikið en það verður frábært að þurfa ekki að fara í vinnuna. Á morgun er mér svo boðið í pulsupartý þar sem allir vinirnir ætla að mæta og börnin þeirra líka. Það verður gaman. Maður sér þessi litlu kríli ekki oft þegar maður á ekki barn sjálfur og er ekki inní svona barnapælingum.

Það var ,,sauma"klúbbur í vikunni og þetta var sko alvöru KONUklúbbur þar sem m.a. var rætt um barneignir, fæðingar (saltvatnssprautur og þess háttar), túrverki, blæðingar og Jack Ass. Og ég komst að því að ég þekki virkilega fólk sem finnst Jack Ass þættirnir fyndnir! Gott að það eru ekki allir eins. Ótrúlegt en satt, þá fór jafnmikill ef ekki meiri tími í að ræða JA en öll hin konumálin.
Reyndar var líka annað sem var rætt af ákafa og það var fyrirhugað þrítugsafmælisferðalag á næsta ári. Við erum nefnilega 12 sem náum þessum aldri á 10 mánuðum og það er víst ódýrara að fara saman til útlanda heldur en að kaupa 12 afmælisgjafir. Ég sé ekki alveg hvernig það reikningsdæmi snýr en mér er alveg sama, ég er alveg til í að fara til útlanda! Alltaf til í að fara til útlanda. Þannig að nú er kominn tími á að fara yfir hugmyndir og byrja að skipuleggja ferðalagið - amk komast að niðurstöðu um áfangastaðinn, já og tíma sem hentar öllum. Þetta verður eins og að leita að nál í heystakk!!! ;o)
I will keep you posted on our travel plans...

Ég dró Berglindi LúnuLöpp í bíó í gær. Við sáum Fridu. Ég kom mér ekki í bíó um síðustu helgi eins og ég ætlaði mér en er nú loksins búin að sjá Fridu. Mér fannst hún góð og bæði Salma Hayek og Alfred Molina stóðu sig með prýði. Mæli með myndinni. Bókinni reyndar líka.

30. jan. 2003

vinna


Í dag er 25. dagurinn í röð sem ég er að vinna og á morgun er frídagur hjá mér. Hélt ég. Ég var mas búin að ákveða að leyfa sjálfri mér að skrópa í skólanum og sofa út bara að því að ég er ekki að fara að vinna á morgun EN nú er búið að kalla til fundar á sambýlinu sem ég er að vinna á þannig að ég þarf að ruslast á fætur uppúr 8 til að geta mætt á fundinn... Og ég sem var farin að hlakka svo til að eiga 1 heilan frídag! Ég hef svo sem ekki við neinn að sakast því ég kallaði þessa vinnu yfir mig sjálf en í næstu viku verður þetta komið á eðlilegt ról með virkum frídegi í hverri viku og frí aðra hvora helgi. Ekki veitir af svo maður geti farið að sinna heimalærdómnum af einhverju viti.
Þegar fólk spyr mig hvað ég sé að gera þá svara ég:
,,Ég er í Háskólanum, að læra íslensku."
Því það er það sem máli skiptir hjá mér og það er þar sem metnaður minn liggur en miðað við hvað ég hef unnið mikið uppá síðkastið mætti halda að rétt svar væri:
,,Ég er að í 2 vinnum; barnafataverslun og á sambýli en svo er ég í nokkrum fögum í Háskólanum til þess að hafa eitthvað að gera á kvöldin"
eða eitthvað í þá áttina.

En þetta stendur allt til bóta eins og svo margt annað hjá mér. Janúar hefur verið frekar erfiður og langur mánuður hjá mér en nú fer að komast meira jafnvægi á líf mitt. VEEIII!!!

Og ég er að spá í að skella mér í bíó um helgina, að sjá Fridu. Fékk nefnilega bókina um hana í jólagjöf og er að sjálfsögðu löngu búin að lesa hana og nú langar mig að sjá myndina.

Góða helgi!

28. jan. 2003

vetur


já, það er vetur...
Fyndið því í gær þegar ég labbaði yfir Ingólfstorgið í blíðunni sem var þá, hugsaði ég með mér að það væri eiginlega vor í lofti og maður nyti þess ekki sem skyldi því það væri alltof snemmt þar sem við höfum ekki fengið neinn almennilegan vetur hér í höfuðborginni... Í morgun er ég enn í mínum vorhugleiðingum og fer frekar léttklædd (miðað við janúar á Fróni) í skólann en nú sit ég hér í tölvuverinu í Árnagarði og horfi á jólasnjóinn falla fyrir utan og kvíði því að fara út í gallajakkanum mínum...

25. jan. 2003

gleymdi þessu:


hún á afmæli í dag
hún á afmæli í dag
hún á afmæli, hún Marý
hún á afmæli í dag!

Til hamingju með afmælið í útlöndum, LadyMary...

vikan...


Þetta hefur nú vægast sagt verið skrautleg vika hjá mér; kláraði að flytja, fékk tilboð um deit (sem ég hafnaði), fékk að sjá sjálfa mig með augum annarra - nokkuð athyglisverð upplifun - tók þátt í ljósmyndamaraþoni (engin verðlaun) og vann eins og brjálæðingur en það er nú svosem ekkert nýtt. Svo kíkti ég aðeins á djammið í gær með Berglindi Bestaskinni og hún var algjör bjargvættur og bestaskinn í gær, elskan sú.

Við tókum því nú bara rólega, byrjuðum á Stúdentakjallaranum þar sem ég beið eftir að frami minn sem ljósmyndari tækist á loft með aðalverðlaununum fyrir ljósmyndamaraþonið en viti menn, það var einhver strákur sem vann og ég fékk ekki neitt! En bjórinn var góður. Svo kíktum við í bæinn og hittum alls konar fólk; fyrrverandi nörda, lögfræðinema, verðandi klámmyndastjörnur, myndatökukonu (sem ætlar að taka upp kvikmyndina sem BBestaskinn ætlar að gera í framtíðinni, ég fæ að skrifa handritið!), barþjóna öfugu megin við borðið... Þetta var mjög gaman og létti skap mitt mikið sem hefur ekki alveg verið upp á sitt besta undanfarið en það stendur allt til bóta!

Skál fyrir góðum vinum!

22. jan. 2003

bíóæði


Það var heimildamynd um bíóæði (e. cinemania) á RÚV í gærkvöldi, ég horfði á brot af þessum þætti. Þetta fjallaði um fólk í New York sem að gerir ekkert annað en að fara í bíó. Er á atvinnuleysisbótum, örorkubótum eða lifir á einhverjum arfi og er svo bara í bíó alla daga! Og það er ekki verið að tala um eina bíómynd, ónei, heldur bíó allan daginn, margar myndir. Þeirra stærsta vandamál er hvort þeim tekst að púsla saman dagskrá fyrir daginn þannig að þau geti séð allar myndirnar sem það langar til að sjá. Einn tekur alltaf með sér nesti og föt til skiptanna ef honum skyldi verða kalt. Og starfsfólkið í kvikmyndahúsunum þekkir þetta lið því það er alltaf í bíó - einn sýningarstjórinn sagðist mas vera stoltur af því að fá þetta fólk á sýningu til sín því það væri merki um það að önnur kvikmyndahús hefðu þá ekki betri dagskrá upp á að bjóða þann daginn. Það er hægt að gera þetta í New York sem er mekka kvikmyndaaðdáenda, eins og einn bíóæðingurinn sagði, en þetta gengi ekki upp í Reykjavík þar sem bíóum fer stöðugt fækkandi og sömu myndirnar í gangi í þeim öllum!

21. jan. 2003

flutningar


Já, þá er ég flutt. Komin heim til mömmu og pabba. Þetta gerðist aðeins hraðar en ég hafði reiknað með og er nú að drukkna í kössum og á alveg eftir að koma mér fyrir... Þetta er nú ekki alveg það gáfulegasta sem ég hef gert, þeas að flytja þegar skólinn er að byrja enda veit ég varla hvað snýr upp og hvað snýr niður þessa dagana. Var að fatta það rétt í þessu að ég er líklegast of sein að skrá mig í eitt námskeið sem ég ætlaði að taka núna þannig að ég verð mætt í nemendaskrá strax kl. 10 í fyrramálið til að sjá hvort ég sleppi fyrir horn.

Ég var að telja hvað ég hef flutt oft á síðastliðnum 3 árum og komst að því að skiptin eru 9! Geri aðrir betur! Ég stefni svo á að flytja aftur á næstu mánuðum en það skal þá vera fyrir húsnæði sem ég hef í amk 2 ár. Ég er orðin svooo þreytt á þessu!

17. jan. 2003

málsagan


Einkunnin fyrir ritgerðina er komin, fékk 7,5. Er bara sátt við það. Þannig að nú getur maður farið að einbeita sér að þessu misseri af fullum krafti og koma sér í gírinn!!!

16. jan. 2003

stjörnuspá - eða stjörnuhrap?


Ég var að lesa Röskvufréttir og rakst á stjörnuspá ársins 2003 og fyrir nautið hljómar hún svona:

,,Þú hefur ekkert til brunns að bera, ert byrði á fjölskyldunni. Það rætist þó úr árinu, þú eignast ósýnilegan vin sem þú getur alltaf talað við. Lucky you."

Þetta hljómar nokkuð rétt því ég er að fara að flytja heim til mömmu og pabba, again, og reyna að koma dótinu mínu fyrir útum allan bæ! Ekki nóg með það, heldur var ég að skoða bloggið hennar Ernu áðan og þar, aldrei þessu vant, var svona netpróf sem ég hreinlega varð að prófa. Þetta gekk sem sagt út á það að þekkja sjaldgæf orð í íslensku og merkingu þeirra. Ég gat 5 af 20 og fékk þessi ummæli:

,,Do you speak icelandic? Þetta gekk kannski ekki alveg nógu vel en æðrastu ekki, íslenskan er svo ótrúlega orðrík að lengi væri hægt að tala með orðum sem enginn venjulegur Íslendingur hefði heyrt"

Kannski nýi vinur minn sé blogger.com?

Ég hef hins vegar ákveðið að láta þetta ekki á mig fá og halda bara áfram að vera ég. Það er mjög skemmtilegt misseri framundan hjá mér í skólanum, verð í 3 kúrsum; Miðaldabókmenntum, Íslendingasögum og Norrænni trú. Þetta er það sem heillar mig mest við íslenskuna, amk þessa dagana.
Já og svo er ég búin að fá eina einkunn! Fyrir fyrri hluta miðaldabókmenntanna og hún var 8. Nú bíð ég bara spennt eftir að fá einkunnina fyrir ritgerðina en það verður einhver bið á henni.

Ég held að þetta ár verði gott fyrir mig því ég sá stjörnuhrap á nýársnótt og það hlýtur að vera gæfumerki!


13. jan. 2003

skólinn...


já, nú er skólinn byrjaður aftur, mér til mikillar ánægju. Mér finnst nefnilega svo gaman í skólanum. Ef ég hefði tíma og getu þá væri ég með 22,5 einingar þetta misseri en það væri víst fullmikið af því góða þar sem maður er að vinna eins og brjálæðingur. Þannig að ég þarf að velja og hafna. Annað hvort Málnotkun eða Íslendingasögurnar. Hvort tveggja mjög spennandi kúrsar. Það besta við þá er að þeir eru kenndir árlega þannig að ég tek annan núna og hinn að ári.

Annars er það helsta að ég er að leita mér að húsnæði, þannig að þið sem lesið bloggið mitt og vitið af einhverri stórkostlegri íbúð á ennþá stórkostlegra verði, þá látið þið mig vita ;o) Takk fyrir það!

Ég er að fara í námskeiðið Norræn trú á eftir, hjá hinum frábæra kennara Terry Gunnell og það besta er að Berglind, vinkona mín úr gaggó er með mér í þessum kúrs. Hún er að læra þjóðfræði og ferðamálafræði. Ég hef ekki setið í tíma með gaggó-vinkonum síðan í menntó því við fórum allar í sitthvora áttina og í skóla á sín hvorum tíma og núna er ég með einhverja nostalgíu inni í mér af því að ég er að fara í tíma með Berglindi!!!
ÉG HLAKKA SVO TIL!!!

Það er nú frekar asnalegt að vera byrjaður í skólanum aftur eftir jólafrí en að vera ekki kominn með neinar einkunnir... maður bíður bara og vonar. Ég veit reyndar að ég féll í einu prófi en það var líka viljandi. En það er spurning hvað kom útúr hinu prófinu - og ritgerðinni. Ég er óöruggust varðandi ritgerðareinkunnina og veit ekki hvort það er gott mál eða vont. Ég hef einu sinni áður skilað inn ritgerð sem ég vissi hreinlega ekki hvort væri góð eða ekki og hafði enga tilfinningu fyrir því og vonaði að ég fengi nú amk 7. Ég fékk 10. Það var líka í menntó þannig að það gerist alveg örugglega ekki núna.
Ég vona að ég fái amk 8.

4. jan. 2003

BLOGGER SUCKS


fyrsta færslan mín í margar, margar vikur hvarf þegar ég ætlaði að ,,publisha" hana! grrrrrr...
og nú hef ég ekki meiri tíma til að skrifa hana aftur!!! grrrr...
BLOGGER SUCKS!

21. nóv. 2002

JÆJA!


Viti menn, í morgun þá var bara einfaldur tími í Miðaldabókmenntum en ekki tvöfaldur eins og vanalega þannig að ég græddi heilan klukkutíma í að lufsast á netinu og skrifa nokkrar línur hér.

Þetta er í annað sinn á 2 vikum sem ég hef tíma til að kíkja aðeins í tölvurnar, hitt skiptið var núna á þriðjudaginn og þá fékk ég nett sjokk þegar ég opnaði pósthólfið mitt á háskólanetinu.
211 ólesin skilaboð!
Ég hugsaði bara: ,,ó mæ god" og skildi ekki alveg hvernig gat staðið á þessu þar til ég fór að skoða þetta nánar. Um 180 skilaboð í kringum einhvern vírus sem ég hef greinilega fengið og svo nokkrir brandarar og skilaboð frá vinum og vandamönnum.

Annars er nú ekkert sérlega markvert að frétta af mér. Hef gert lítið annað en að vinna og vera í skólanum undanfarnar vikur. Ég ákvað nefnilega að bæta við mig vinnu og er nú farin að vinna á sambýli fyrir fatlaða í Garðabæ og finnst það eiginlega bara ferlega gaman. Og það er ekki bara nýjabrumið sem gerir það. Ég varð eiginlega frekar hissa þegar ég uppgötvaði að mér finnst þetta gaman því ég lofaði sjálfri mér því að vinna aldrei svona vinnu aftur þegar ég hætti á Kópavogshæli. Sem starfsmaður, ekki heimilismaður. Þá var ég nefnilega komin með nett ógeð á svona vinnu en svo komst ég bara að því að þetta er ferlega gaman þegar maður hefur góðan yfirmann og það er líka allt annað andrúmsloft inni á sambýli heldur en heilli deild.
En þetta þýðir að það hefur verið mjög mikil vinna hjá mér undanfarið og verður það eitthvað áfram. Eiginlega alveg fram að próflestri.

Jú, eitt sem mér sjálfri finnst svolítið merkilegt og það er það að ég er farin að prjóna á fullu! Þarna sjáið þið hvað líf mitt er æsispennandi þessa dagana. Ef það er ekki vinnan eða skólinn, þá eru það prjónarnir eða nornabókin eftir Anne Rice sem ég er að lesa núna. (er með hana í góðfúslegu láni frá sambýlingi mínum sem ég hitti varla þessa dagana sökum anna. Hæ Guðrún!) Sko, sagan á bakvið prjónana er sú að ég fór í heimsókn til Maríu vinkonu um daginn og var eitthvað að dást að því hvað hún væri dugleg að prjóna og að ég gæti þetta sko ekki og þar fram eftir götunum. Alla vega, hún nennti ekki að hlusta á þetta raus í mér og lét mig fá prjóna og garn og lét mig prjóna. Og ég komst að því að ég get þetta sko alveg og er nú mas búin að kaupa garn og fá prjóna lánaða og er að prjóna trefil handa sjálfri mér. Mér finnst ég vera alveg svakalega dugleg!

Jæja, prófessor Helgi kallar - þarf að hlaupa í tíma...

7. nóv. 2002

er enn á lífi...


já, vildi bara láta vita að ég er enn á lífi en hef bara verið frekar tímabundin undanfarið. Er nefnilega komin í meiri vinnu og hef þar af leiðandi takmarkaðan tíma til að hanga yfir tölvunum uppí skóla... en það stendur til bóta því ég mun á næstunni fá tölvu heim til mín og þá get ég sko farið að blogga í tíma og ótíma og farið að læra meira á þetta blessað HTML.
skjáumst síðar!