!RULLUF
Mér var boðið í mat á laugardagskvöldið sem var í sjálfu sér mjög sakleysislegt og gott. Byrjaði mjög vel og maturinn var mjög góður. Kjúklingur í appelsínugúmmelaði, namminamm! SKÁL FYRIR
KOKKINUM!
Kvöldið endaði líka mjög vel. Morguninn eftir. Þrátt fyrir að hafa uppgötvað það einhvern tímann um fjögurleytið í miðju Austurstrætinu, þegar ég ætlaði að fara að finna mér leigara heim, að ég var algjörlega auralaus! Ekki með krónu á mér og ekki heldur eitt einasta plastkort!!! Nú máttu góðu ráðin alls ekki vera of dýr...
Mín fyrsta hugmynd var að labba til Monopolizten og fá að sofa á sófanum hjá honum en það kallaði á þessi viðbrögð hjá
Bestaskinninu:
"NEI! Þú gerir það sko alls ekki!!!" (með 'ég ræð!'-augnaráðinu...)
"Ha? Akkuru ekki?" (mín þreytt, vildi bara fara að sooofa...)
"Hvað heldurðu að David segi?!?!!? Ég borga bara leigubíl fyrir þig heim!"
Og þannig varð það. Reyndar gaf hún mér fyrst að borða; djúsí, grísí Hlöllabát og kók. Takk fyrir matinn!
Kvöldið/nóttin var sem sagt mjög gott þrátt fyrir að hafa misst sjónar af Brynkunni í myrkviðum miðbæjarins og að hafa ekki fundið hana aftur. Fram að því vorum við samt búnar að drekka rauðvín í lítratali, bjútífúlla okkur fyrir framan stóra spegilinn á baðinu hennar Brynku, borða góðan mat, skrifa bréf til
LadyMary í UK og nú er það á mína ábyrgð að koma því í póst... Já, og svo sendi ég örugglega skrilljón SMS og spjallaði á netinu við einn af Einar-unum sem ég kynntist í sumar (þeir voru nákvæmlega 3!). Netspjallið var nú ekki af því að stelpurnar væru ekki nógu skemmtilegar fyrir mig, heldur voru þær bara í einhverri öfga bjútífúlliseríngu sem ég nennti ekki að taka þátt í... Enda voru þær miklu fallegri en ég!
Niðurstaðan: 1,33 rauðvínsflaska á mann er fullmikið af því góða! ...en samt ekki alveg nóg til að drekkja (ó)blessuðum kvefbakteríunum sem hafa tekið sér bólfestu í mér...