Ég er skrítin!
Jamm, ég fékk að heyra það í gær. Og ég bý ekki í venjulegu húsi. Þar hef ég það. Alltaf gott að hitta fólk sem hefur skoðanir á hlutunum og er ekki feimið við að segja manni þær. Einsog í gær, hún horfði beint í augun á mér og sagði:
"Þú ert skrítin. David er líka skrítinn. Þú býrð ekki í venjulegu húsi en ég bý í venjulegu húsi."
Þegar ég reyndi að fiska eftir því af hverju ég væri skrítin og húsið mitt væri ekki venjulegt var fátt um svör.
Ég held að það sé ekki margt sem jafnast á við að umgangast smáfólkið því það hefur venjulega sterkar skoðanir þótt þær séu ekki endilega vel rökstuddar en lætur þær samt í ljós. Hressandi.
Já, ég er að passa þriggja ára bróðurdóttur mína um helgina.
|