21. des. 2005

ég var að fatta...

...af hverju ég er svona eftirá með allt jólastússið. Ég er alltaf að bíða eftir að komast í jólafrí, svona alvörufrí einsog eftir jólaprófin í menntó. Ég bara gleymdi að bæta einu inní jöfnuna:
ÉG ER FARIN AÐ VINNA FULLORÐINSVINNU - NÍU TIL FIMM = EKKERT JÓLAFRÍ

Verð að muna eftir þessu á næsta ári.

18. des. 2005

hvað þekkjumst við vel...?

ég var að slúbbertast í vinnunni á fös og sá þennan lista á blogginu hennar Ernu og hreinlega stóðst ekki mátið að sjá hvað hún segði um mig... þannig að núna verð ég að setja þetta upp hjá mér og svo er bara að sjá hverjir eru forvitnir. Þetta virkar semsagt þannig að þú setur nafnið þitt í kommentakerfið og ...

1. Ég segi þér eitthvað handahófskennt um þig
2. Ég segi þér hvaða lag/mynd minnir mig á þig
3. Ég segi þér hvaða bragð minnir mig á þig
4. Ég segi þér eitthvað sem meikar bara sens fyrir mig og þig
5. Ég segi þér fyrstu ljósu minninguna mína af þér
6. Ég segi þér á hvaða dýr þú minnir mig á
7. Ég spyr þig að einhverju sem ég hef velt lengi fyrir mér um þig
8. Ef þú setur nafn þitt inn þá verðuru að setja þetta á bloggið þitt...

Annars er mest lítið að frétta, David er búinn að vera meira og minna lasinn í rúma viku núna og ég er búin að vera með nokkurra daga kvef sem fer svona upp og niður. Ég held að ég sé samt að lagast aftur.

Jólastressið er að rúlla yfir mig hægt og bítandi. Og ég er líka farin að verða meira vör við það hjá öðrum. Við fórum aðeins á rúntinn í gær (voða heppin, með bíl í láni) og ég var alveg agndofa yfir umferðinni alls staðar og skildi eiginlega ekkert hvað var í gangi en svo áttaði ég mig á því: allir úti að kaupa jólagjafir og jólajóla-eitthvað. Ég þarf sjálf að fara að huga að slíkum verkefnum...

Best ég fari að baka.

6. des. 2005

alltaf að læra eitthvað nýtt

Við fengum skyndilega áhyggjur af Rökkvu í gærkvöldi þegar D fann tönn úr henni á rúminu okkar. Við gátum varla beðið eftir því að klukkan yrði 9 í morgun til að geta hringt í dr. Doolittle og spurt hana út í þetta. Samtalið var einhvern veginn svona:

E: "Kisan mín missti tönn í gær."
D: "Hvað er hún gömul?"
E: "Rétt um 6 mánaða."
D: "Var þetta jaxl?"
E: "Já."
D: "Hún er bara að missa síðustu barnatennurnar, þetta er akkúrat aldurinn."

Og ég hugsaði: "HJÚÚÚÚKKETH!!!"

Þetta var eitthvað sem ég vissi ekki, þeas. að kettir (og flest önnur spendýr) missa tennurnar rétt einsog mannskepnan. En þegar maður hugsar um það er það mjög rökrétt því dýrin vaxa og stækka rétt eins og mannfólkið.

30. nóv. 2005

Ein ógissla klár!!!! (...eða þannig sko)

Ég var aðeins að renna yfir bloggið mitt og mundi þá alltíeinu eftir því að ég ætlaði alltaf að setja inn myndir af graskersútskurðinum sem var fyrir mánuði síðan (ein svakalega up to date eða þannig...) Þannig að hér er mín fyrst tilraun til að setja myndir á bloggið mitt - upplausnin í þeim er ekkert sérlega góð enda bara teknar á myndavélina í símanum mínum...


Þetta er mitt grasker (þetta danska...)


Þetta er Davids.


Og þetta er hópmynd með afrakstur kvöldsins.



öhömm... þegar ég fór í prívjúið þá kom þetta allt kolruglað fram miðað við hvernig þetta lítur út hér í kompósinu en ég treysti því að þið áttið ykkur á því hvernig þetta hangir saman ef þetta pöbblisjast svona. Ég nenni nebblega ekki að reyna að átta mig á vandanum núna...

kisufréttir

já, við erum flutt eins og ekki hefur farið framhjá neinum sem les þetta sjaldanuppfærðablogg og okkur líður betur á Bárunni með hverjum deginum og alltaf að koma okkur aðeins betur fyrir en enn eru heilmargir kassar sem á eftir að gramsa í ...

Allavega, við heilsuðum uppá nágrannana á efri hæðinni um daginn, bara svona til að kynna okkur og sýna andlitin. Þetta er alveg yndislegt eldra fólk. Ég hafði smá áhyggjur af því að þau yrðu ekki glöð að vita af tveimur kisum í húsinu en svo var nú aldeilis ekki. Kötturinn þeirra, sem varð 18 ára, er grafinn í garðinum og þeim leist bara vel á að vera komin með 2 ketti í húsið.

Þau (þeas. kisurnar ekki nágrannarnir) fóru til dýralæknis í fyrsta skipti í gær, ýmislegt sem þurfti að græja þar... Þau eru greinilega komin á unglingsaldurinn og fullt af hormónum í gangi en Ljómi hafði nú voðalega lítið vit á því sem hann var að reyna að gera við systur sína (sem betur fer!) og hún ekkert alltof ánægð með tilburðina. Nú er búið að kippa því í liðinn og þau orðin öllu rólegri. Þau eru orðin eins og litlu börnin manns og það var voða vont að horfa á þau í gær eftir að við sóttum þau, gangandi um eins og þau væru með kúkinn í buxunum og missandi jafnvægið ef þau horfðu ekki beint fram. Sem betur fer virðast þau vera búin að jafna sig núna.

Ég varð einsog voða stolt mamma þegar dýralæknirinn sagði:

"Hann er voðalega fallegur."

um leið og hún tók Ljóma úr kassanum.

Ég elska kisurnar okkar!

15. nóv. 2005

flu-hu-hu-hutt!!!

jamm, við erum flutt og búin að skila gömlu íbúðinni af okkur þannig að núna getur maður farið að hugsa um fleiri hluti en bara að fá kassa, pakka ofaní kassa, flytja kassa, taka uppúr kössum... Tja, reyndar erum við enn að taka uppúr kössum en það er komin heildarmynd á íbúðina OKKAR!

ég lofa að næsta færsla mun fjalla um eitthvað annað en flutninga...

7. nóv. 2005

Fertugsafmæli, flutningar og f... f... f...

Ég var í fertugsafmæli á laugardaginn og var það með betri afmælum sem ég hef farið í. Fullt af skemmtilegu fólki og þar af leiðandi fullt af skemmtilegum sögum og mikið hlegið. Ég segi bara aftur: Til hamingju með afmælið, Berglist!

Flutningarnir ganga. Það er allavega farið að vera jafnmikið bergmál á báðum stöðum og foreldrar mínir hafa lagt blessun sína yfir slotið. Ég hlakka bara svo til þegar við verðum endanlega búin að losa okkur af Ásvöllunum...

F... f... f... var bara til að láta fyrirsögnina stuðla þrefalt en það er bara ekkert meira F í gangi hjá mér núna þannig að f... f... f...

30. okt. 2005

heimsendingarlúxusþjónusta

Jæja, þá erum við byrjuð að hamstra kassa og að pakka. Við fáum lyklana afhenta á morgun og þá byrjar ballið fyrir alvöru. Nú þegar Litli Rauður er seldur og enginn bíll á heimilinu þá hefur kassahamstrið gengið soldið treglega þar sem ég fer ógjarnan í strætó með fangið fullt af tómum kössum. Allavega, við komum við hérna hjá bræðrunum á horninu í gær og báðum þá um að geyma kassa fyrir okkur og auðvitað var það nú minnsta málið og okkur bent á að best væri að koma rétt fyrir lokun á hverjum degi því þá væri búið að tæma alla kassa og svoleiðis en fengum samt nokkra kassa með okkur heim um miðjan dag í gær.

Um 8-leytið í gærkvöldi var dyrabjöllunni svo hringt og við vorum soldið hissa því við áttum ekki von á neinum en þá var þetta annar bróðirinn að koma með kassaveiði dagsins til okkar!!!

LENGI LIFI KAUPMAÐURINN Á HORNINU!

Í kvöld skal svo haldið í graskersútskurð með vinum okkar og kemur þá danska graskerið að góðum notum.

26. okt. 2005

Flutningarnir...

eru ekki byrjaðir. Við barasta komum okkur ekki að verki þrátt fyrir að gæfan virðist vaka yfir okkur þessar vikurnar. Leigusalinn hringdi nefnilega í gær og tjáði okkur breytingu á þeirra högum, þeas. hætt við sölu á íbúðinni í bili en þess í stað ákveðið að leigja hana út. Sem þýðir að öllum líkindum að hún verði leigð frá og með 15/11 og við þurfum þá ekki að borga leigu næstu 3 mánuði eins og var útlit fyrir á tímabili.
Húrra fyrir því!

Búin að vera í Köben. Ég hef aldrei áður farið í svona ferð með svona stórum hópi af Íslendingum. Á tímabili var mér hálfillt inní sjálfri mér fyrir að vera með þessum hópi en svo mundi ég það að drukknum Íslendingum í útlöndum er ekki viðbjargandi... Þið megið nú samt ekki misskilja mig, ferðin var mjög góð og skemmtileg.
Nostalgían alveg í fyrirrúmi og rosalega skrítið að koma til Köben í fyrsta skipti sem pjúra blæðinga-gæðingur*. En rosalega gaman. Ótrúlega falleg borg, finnst mér og ég sá það eiginlega bara í fyrsta skipti þessa helgi.

Og ég dröslaði 2ja kílóa graskeri með mér í handfarangri til landsins, allt til að gleðja unnustann en svo komst ég að því að þau fást svona stór í Hagkaupum! Í fyrra þegar ég fór á stúfana voru bara svona lítil pínu-grasker til...

*ferðamaður/túristi/túrhestur...
(svona orð lærir maður á fjöllum)

16. okt. 2005

sunnudagsmorgunn í eldhúsinu

akkúrat núna sit ég við tölvuna, búin að vera lesa blogg og skoða myndir en elskan mín stendur við eldavélina og mallar heitan brönsj fyrir okkur. Framundan smá tiltekt, göngutúr og týpísk sunnudagsafslöppun.

Við erum enn ekkert farin að pakka. Ekki einusinni farin að safna kössum!
En hlökkum alveg svakalega til að vera flutt, ég hefði aldrei trúað því að tilhugsunin um EIGIN húsnæði gæti verið svona spennandi og um leið svo afslappandi!

13. okt. 2005

Skírnarveisla, Kaupmannahöfn og flutningar

hér hefur ekkert verið bloggað í langan tíma þrátt fyrir að ýmislegt hafi verið á seyði í litla kollinum mínum. Allavega, íbúðakaupin eru svo gott sem frágengin, vorum að skrifa undir kaupsamninginn í gær en samt trúi ég þessu varla enn... og sést það berlega á því að við erum ekkert farin að pakka en samt eru bara um 2 vikur þar til við fáum afhent!
Ég hreinlega bara nenni ekki að fara að flytja! Er einhver sem vill taka það að sér fyrir mig? Anyone? Bueller? Bueller?

Svo átti elsku David minn afmæli í fyrradag og við héldum bara uppá það heima í rólegheitum; góður matur, rauðvín (1 flaska af þessum 10 sem ég vann um daginn) og afslappelsi.

Já, og ég er að fara til Köben með vinnunni um aðra helgi, á árshátíð og ég hlakka mikið til. Hef ekki komið til "min Köbenhavn" síðan 2001 þannig að þetta verður sjálfsagt smá nostalgía þótt ég verði kannski ekki með rétta fólkinu til að deila henni með mér.

Á morgun skal brunað útúr bænum (veit ekki alveg hvernig, þar sem Litli Rauður seldist í gær) í sumarbústað á Flúðum, á þriðjudaginn er skírnarveisla þar sem David tekur 'formlega' við hlutverki sínu sem guðfaðir hennar Freyju Sólar. Svo Köben og eftir það flutningar...

Alltaf nóg að gera á þessum bæ!

29. sep. 2005

óbój!

Það er stórhættulegt að vinna svona 'stuttan' vinnutíma eins og ég geri núna aðra hvora viku. Maður hefur alltof mikinn tíma til að hugsa og gera allskonar hluti einsog að láta sig dreyma um íbúðakaup, skoða íbúðir, gera tilboð og samþykkja gagntilboð...

ÚPS!

Já, það er einmitt það sem er að gerast hjá mér þessa dagana. Reyndar er greiðslumat og svoleiðis pakki eftir en, óbój hvað ég er búin að vera með hjartað (og öll innyflin) í buxunum undanfarna 2 sólarhringa yfir þessu.

öööhhh, er einhver þarna úti sem getur reddað mér aukavinnu? ...helst svartri...

22. sep. 2005

Fimmtudagsmorgunn

Sit í eldhúsinu og sötra kaffi kryddað með kanil og vakna í rólegheitum. Ljómi og Rökkva slást frammi eins og hundur og köttur (haha) en bráðum fellur allt í ljúfa löð og þau fara að kúra saman á sófanum.

Núna ætla ég að standa upp, dansa aðeins við Feel Good Inc. með Gorillaz, klæða mig og koma mér í vinnuna.

Have a nice day.

12. sep. 2005

klukki-klukk

Ég var klukkuð í gær og í framhaldinu klukkaði ég fimm í viðbót og núna bíð ég spennt eftir að fólk bregðist við klukkinu en ekkert gerist. Kannski er ég bara óþolinmóð!

Helgin var annars róleg og góð. Ég hef verið í smá rómantískum hugleiðingum um helgina, verið að velta kirkjum, kjólum og hringjum fyrir mér og þetta er allt voða spennandi á meðan þetta er enn svona hálffjarlægt en ég finn að það stressar mig samt pínu að fara taka einhverjar endanlegar ákvarðanir, þá verður þetta meira raunverulegt.
Það er ágætt að hafa þetta svona fjarskaspennandi í bili.

Farið nú að klukka!

11. sep. 2005

ég var klukkuð...

af henni Ernu og núna þarf ég að deila fimm handahófskenndum staðreyndum um sjálfa mig, óboj.

1. Ég hef alls átt 6 gæludýr; köttinn Gulla, skjaldbökuna Din-din, apann Lady Jane, köttinn Táslu og núna á ég kettlingana Ljóma og Rökkvu.

2. Mér finnst oft afslappandi að vaska upp og strauja. Ég komst uppá lagið með að slappa af við strauningu þegar ég var au pair í Köben hér í den. Þá straujaði ég alltaf á fimmtudögum og það var vikuskammtur af skyrtum fyrir húsbóndann og svo slatti í viðbót af frúnni og börnunum.

3. Ég fer frekar í kalda sturtu en mjög heita.

4. Ég var búin að búa í löndum eins og Danmörku, Yemen, Sómalíu og Thailandi áður en ég gerðist svo fræg að fara hringinn á Íslandi...

5. Fyrsta stóra ákvörðunin í lífi mínu var þegar ég var látin ákveða sjálf að hætta með snuð þegar ég var þriggja ára. Ég man eftir þessu enn í dag, við mamma vorum í apótekinu á Sauðárkróki og ég þurfti að velja milli þess að kaupa nýjan tannbursta eða nýtt snuð því ekki var hægt að kaupa hvort tveggja.

Jæja, þetta tókst. Núna ætla ég að klukka Berglindi, Ásu Láru, Láru, Synetu og Marý.

3. sep. 2005

hæ!

akkúrat núna er ég bara að blogga til að blogga, bara svona til að halda lesendunum við efnið. Annars get ég sagt það að ég er með auma og bólgna stórutá en ég veit ekki af hverju. Það er svona það sem er nýjasta nýtt hjá mér þessa dagana, svaka spennó eða hittó.
Jú, svo fóru litlu kisulórurnar mínar út áðan, í fyrsta skipti. Og þær létu einsog ég veit ekki hvað þegar þær komu inn aftur.

Bæ!

28. ágú. 2005

bloggedíblogg!

ég er komin aftur! Ekki það að ég hafi farið langt en ég er allavega kominn í gírinn til að blogga aftur. Líka komin með nettengingu heima. LOKSINS! En það var nú bara sjálfri mér að kenna hvað það tók langan tíma.

Eníveis, síðan síðast hefur heilmargt gerst. Búin að fara í þó nokkur atvinnuviðtöl og mér bauðst annað starf en niðurstaðan úr þeim var eiginlega að ég verð áfram á núverandi vinnustað en hafði samt 20% launahækkkun + breytingar á vinnutíma & verkefnum uppúr krafsinu! Sko mig!
Ég er líka búin að fara til Kanada og er orðin nokkuð sannfærð um að það sé fyrirheitna landið og þar fór D á skeljarnar í rómantísku tungsljósi og gaf mér demantshring. Þannig að núna er ég hamingjusamlega trúlofuð. Sko David!
Svo erum við orðnir hamingjusamir kettlingaforeldrar, læðan er grá og heitir Rökkva og högninn er ljósgulur (eiginlega meira drapplitaður) og heitir Ljómi. Hann hefur nú reyndar hlotið viðurnefni (einsog sönnum víkingi sæmir) og er nú oftast nefndur Ljómi Skítnefur. Nebbinn á honum er nebblega svo oft skítugur...

Jæja, læt þetta duga í bili enda eru þetta líka helstu fréttirnar af mér þessa stundina.

Jú og eitt enn: Til hamingju með afmælið í dag, Lilja Guðrún.

15. jún. 2005

bleh!

ég er í mjög óbloggvænni vinnu (nebblega ekkert net heima) og núna er ég búin að vera að reyna að blogga um helgina mína í nokkra daga en ekkert gengur og ég á einhvern hálfkláraðan pistil um síðustu helgi en núna nenni ég ekki að klára hann og skella honum á netið því mér finnst það eiginlega of seint núna. En helgin var góð.

Aðalhasarinn núna er þessi 19 ára í vinnunni sem er í stríði við mig...

8. jún. 2005

skömm í hattinn!

jamm, ég fékk skömm í hattinn í gær fyrir að blogga ekki nógu oft þannig að ég ákvað að skrifa nokkrar línur í dag.

Fór á Iron Maiden tónleikana í gær og skemmti mér alveg rosalega vel þótt ég þekki ekki mjög vel til þeirra en hins vegar skemmti David sér konunglega x7 (ef það er hægt) og söng með hverju einasta lagi og hreinlega sveif í gleðivímu heim. Ég hitti allskonar fólk sem ég hef ekki séð lengi einsog t.d. fyrrverandi yfirmann minn frá Terra nova!

Vinnan hefur verið frekar leiðinleg undanfarið vegna veikinda og mikils álag en það lagast vonandi.

jæja, svona er það þegar maður bloggar í andleysi, ekkert skemmtilegt að segja og engar krassandi sögur... Vonandi verður það betra næst.