alltaf að læra eitthvað nýtt
Við fengum skyndilega áhyggjur af Rökkvu í gærkvöldi þegar D fann tönn úr henni á rúminu okkar. Við gátum varla beðið eftir því að klukkan yrði 9 í morgun til að geta hringt í dr. Doolittle og spurt hana út í þetta. Samtalið var einhvern veginn svona:
E: "Kisan mín missti tönn í gær."
D: "Hvað er hún gömul?"
E: "Rétt um 6 mánaða."
D: "Var þetta jaxl?"
E: "Já."
D: "Hún er bara að missa síðustu barnatennurnar, þetta er akkúrat aldurinn."
Og ég hugsaði: "HJÚÚÚÚKKETH!!!"
Þetta var eitthvað sem ég vissi ekki, þeas. að kettir (og flest önnur spendýr) missa tennurnar rétt einsog mannskepnan. En þegar maður hugsar um það er það mjög rökrétt því dýrin vaxa og stækka rétt eins og mannfólkið.
|