30. okt. 2005

heimsendingarlúxusþjónusta

Jæja, þá erum við byrjuð að hamstra kassa og að pakka. Við fáum lyklana afhenta á morgun og þá byrjar ballið fyrir alvöru. Nú þegar Litli Rauður er seldur og enginn bíll á heimilinu þá hefur kassahamstrið gengið soldið treglega þar sem ég fer ógjarnan í strætó með fangið fullt af tómum kössum. Allavega, við komum við hérna hjá bræðrunum á horninu í gær og báðum þá um að geyma kassa fyrir okkur og auðvitað var það nú minnsta málið og okkur bent á að best væri að koma rétt fyrir lokun á hverjum degi því þá væri búið að tæma alla kassa og svoleiðis en fengum samt nokkra kassa með okkur heim um miðjan dag í gær.

Um 8-leytið í gærkvöldi var dyrabjöllunni svo hringt og við vorum soldið hissa því við áttum ekki von á neinum en þá var þetta annar bróðirinn að koma með kassaveiði dagsins til okkar!!!

LENGI LIFI KAUPMAÐURINN Á HORNINU!

Í kvöld skal svo haldið í graskersútskurð með vinum okkar og kemur þá danska graskerið að góðum notum.