SOFIÐ ÚT...
Það er víst hægt að segja það að ég hafi sofið út í dag. Vaknaði ekki fyrr en klukkan eitt! Þvílíkt og annað eins hefur ekki gerst í mjööög langan tíma. Ég þoli það nebblega ekki að sofa fram yfir hádegi því þá verð ég bara úrill allan daginn (er einmitt að vanda mig við það núna að vera EKKI úrill). Í mínum augum er það að sofa út að sofa til svona 10 eða11. Ég fer nefnilega yfirleitt á fætur á bilinu 6:30-9 og það þýðir að ég næ alveg 1-5 klst. aukasvefni með því að sofa til 10 eða 11. Ég fór nú reyndar frekar seint að sofa í gær og þurfti víst á þessum lúr að halda.
Í gær var nefnilega laugardagurinn þar sem allt var að gerast á sama tíma. Ég mætti í vinnu kl. 15:30 og “brúðkaupaðist” þar, þeas. hellti freyðivíni og fleiri guðaveigum í fólk á meðan það fagnaði með brúðhjónunum. Þaðan losnaði ég blessunarlega um tíu-leytið, eiginlega 2 klst. fyrr en ég hafði þorað að vona og þá brenndi ég heim og skipti um föt í snarhasti, setti upp pæjufeisið og brunaði lengst út í rassgat! Afsakið orðbragðið en hún Brynhildur á eldhúsbílnum býr í “The ÚTHVERFI” Reykjavíkur! Næstum því í Mosó!
Alla vega, hjá Brynhildi hitti ég fullt af fólki sem voru nokkuð reglulegir gestir hjá mér í ríkidæmi mínu í sumar, s.s.
Jón Inga sem braust inn til mín (að minni ósk þar sem ég hafði læst sjálfa mig úti);
Viktor sem tók ruslið með sér í stað þess að skilja það eftir fyrir framan dyrnar hjá mér;
Einar sem var næsti nágranni minn í sumar (í Hvanngili) og neitaði að nudda mig af því að ég var samstarfskona;
Kela sem sá dansandi konurnar í hlíðinni norðan við kofann minn;
Ástu sem baðaði sig í vatninu mínu og færði mér bakkelsi úr bænum sem þökk fyrir gistingu í óveðri;
Elsu eldhúspíu sem sefur alltaf í húsi (alls ekki tjaldi!);
Gest sem ég hef ekki séð síðan á afmælinu hans í Hattfelsgili í júlí;
Sari sem býr til listaverk um rigningu og súld úr steypu;
Guðbjörgu sem er eins og lítill búálfur og keyrir stóra bíla og svo auðvitað
Brynhildi sjálfa sem eldaði ósvikna Álftavatnskássu á planinu hjá mér oftar en einu sinni í sumar og fékk að gista á loftinu mínu nokkrum sinnum.
Þetta var alveg dásamlegt! En ég gat því miður ekki stoppað nema stutt því ég var jú á leiðinni í enn annað partí!
Það var innflutningsteiti hjá Brynkunni og þar var líka margt af góðu fólki. Sú sem stal senunni var þó partíljónið Margrét Líf, tæplega 2ja mánaða! Hún hvarf þó á brott skömmu eftir miðnætti og eldri partíljónin héldu stuðinu áfram. Mín var hins vegar þreytt og stútaði ekki nema einum bjór og fór akandi heim. Síðan vissi ég vart af mér fyrr en rúmlega 9 í morgun þegar síminn hringdi.
Það var þá gamla settið að hringja frá Krít, bara til þess að láta vita að þau væru þar í sól og góðu yfirlæti. Alveg hreint frábær tímasetning hjá þeim, rúmlega 9 á sunnudagsmorgni! Ég var líka fljót að skríða uppí aftur og rumskaði ekki fyrr en eitt eins og fram kom að ofan.
Í kvöld á ég svo von á gestum í mat, matseðillinn verður með sama sniði og á fimmtudaginn en félagsskapurinn allt annar...