15. maí 2008

Þetta liggur mér á hjarta


Við vorum viðstödd á opnun á sýningu í Þjóðminjasafninu síðdegis í dag. Sýningin er lokaverkefni nemanda í hagnýtri menningarmiðlun í HÍ og var umfjöllunarefni lífshlaup 6 mismunandi einstaklinga.

Sýningin er forvitnileg og gaman að sjá hvernig samskonar efniviður fær mismunandi framsetningu hjá þeim 6 hópum sem sjá um sýninguna. Undirrituð er svo sem ekki hlutlaus þar sem hún þekkir náið einn einstaklinginn sem er sýndur en fannst að sama skapi gaman að sjá hvernig upplýsingum um hann er komið á framfæri og hvað það er sem hefur fangað athygli framsetjaranna.

Eftir opnunina fórum við á Hereford steikhús. Sem er STEIKhús. Ég hef ekkert uppá steikina að klaga, hún var ljúffeng en bakaða kartaflan mín var rétt svo volg og sesar salatið var búið til úr jöklasalati, ekki „romain“ salati (veit ekki hvað það kallast á íslensku). Og svo var volga súkkulaðikakan köld, eða bara rétt svo við stofuhita þannig að djúsí súkkulaðigúmmelaðið í miðjunni var ekkert gúmmilaði.

Það pirrar mig oft við íslenska veitingastaði að þeir taka vinsæla og sígilda rétti og gera þá að sínum. Nei, þetta var ranglega orðað. Þeir taka heitin á þekktum réttum og skella á matseðilinn sinn og búa svo bara eitthvað til. Besta dæmið um það er „klúbbsamloka“ eða „Club sandwich“ sem ég hef vanist (erlendis) að sé samloka með kalkún/kjúkling og bacon/skinku, með mismunandi útfærslum að sjálfsögðu en í grunninn það sama. Hér á Íslandi fær maður allar útgáfur af þessu og helst skinka, ostur og grænmeti. Tékkið á þessu næst þegar ykkur er boðið upp á klúbbsamloku.

Kvöldið endaði svo á að skoða hlekkinn sem mér var sendur í gær. Ég fékk aulahroll og þetta minnti mig bara á Siggu og Grétar Örvars forðum daga. En það skal fúslega viðurkennast að ég er eflaust einn sísti evróvisíón-aðdáandinn...

29. apr. 2008

dramadama

Nei, ég er ekki dramadrottning og er sjálf ekkert mikið að dramatísera eða tja, kannski bara smá. En það er smá drama í gangi í vinnunni og stöðu minnar vegna fæ ég að vita smá en bara á need-to-know-basis og engin smáatriði. Ég hef engan sem ég get rætt við um þetta og er þar af leiðandi alveg að springa.
Ég vona að þessar gátur veiti mér smá fróun.

En það sem ég er að dramatísera með sjálf er ríkisborgararéttur fyrir eiginmanninn. Það hefur nú komið í ljós að þau 6 ár sem hann var hér á námsmannaleyfi veita honum engin söfnuð réttindi eða fyrirgreiðslu varðandi ríkisborgararéttinn. En á sama tíma og hann hafði í raun bara staðfestingu á löglegri dvöl mest 6 mánuði fram í tímann, þá gat hann steypt sér í stórar fjármálaskuldir 40 ár fram í tímann með kaupum á íbúð! Er þetta ekki brillíant?
Ég er líka alveg að springa yfir þessu.

Á svona stundum er gott að eiga kollega sem er lögfræðingur og það stefnir allt í það að þetta fari sömu leið og umtalaðasta tengdadóttir Íslands síðustu árin fór. Hér er alla vega einstaklingur sem hefur borgað sína íslensku skatta samviskusamlega undanfarin 8 ár og talar góða íslensku.

Annars er það helst að frétta að ég er ekki bara bíllaus og sjónvarpslaus, heldur er ég líka grasekkja því hann er að kenna fyrir norðan núna. Reyndar er allt í lagi að vera bíllaus og án sjónvarps en hitt er verra...

18. feb. 2008

í fríi...

Já, það hefur víst ekki farið framhjá neinum sem villist inn á þessa síðu að ég er bloggfríi og ég hef hugsað mér að vera það eitthvað áfram. A.m.k. á þessum velli en hins vegar detta stundum inn færslur á þessa síðu.

3. nóv. 2007

snörl, snörl

Það snörlar í mér í dag en ekki eins mikið og í gær og enn minna en í fyrradag. Ég er alveg að verða búin með að vera veik. Enda nóg komið, búin að liggja fyrir síðan á þriðjudagskvöld. Þannig að fínu graskerin okkar eru enn óútskorin en ég held, svei mér þá, að ég hafi séð glotti bregða fyrir á þeim þrátt fyrir það.
Sjáum til hvort við náum útskurði á morgun, þ.e.a.s. ef eiginmaðurinn verður ekki of þunnur. Hann er nefnilega á árshátíð með vinnunni í kvöld en ég sit heima með auman háls, hor í nös og hellu fyrir eyrunum.
En það er allt í lagi, ég ætla að njóta þess líka. Alltaf gott að vera einn heima af og til.

29. okt. 2007

Æðislegt veður í dag!

og alveg jafnæðislega súrt að þurfa að sitja innilokuð á loftlausri skrifstofunni í allan dag...

Ég hlakka til að vera búin í vinnunni í dag og fara heim og útbúa kvöldmatinn úr afgöngunum af lærinu sem við elduðum í gær, namminamm!
Ég hlakka líka til að fara að skera út grasker í tilefni af Halloween sem nálgast einsog óð fluga, spurningin er hvort ég spreyti mig á kettinum aftur eða prófa nýtt mótíf...

Síðar:
Meiri snjó
Meiri snjó
Meiri snjó

25. okt. 2007

Metrosexual = Natural selection

David sá ljósið í gær varðandi skilgreininguna „metrosexual“.

Eins og þið vitið sem hafið hitt David, þá er hann allt annað en metro og þið sem þekkið hann vitið að hann hefur ákveðnar skoðanir, nokkuð gamaldags, á hlutverkum karla og kvenna, þó án allrar karlrembu. En hann hefur velt þessu fyrir sér, hvernig er metrómaðurinn? og spurt mig nokkuð reglulega.

Ég hef gert mitt besta til að útskýra þetta fyrir honum en með takmörkuðum árangri. Það skal tekið fram að ég er enginn sérfræðingur um þessa skilgreiningu en þykist skilja hana en þó greinilega ekki nógu vel til að ég geti útskýrt þetta fyrir öðrum. Og hann hefur skilið mig á þann veg að metrómaður sé maður sem vill vera eins hommalegur og hann getur án þess að vera hommi, sem er ekki alls kostar rétt og ég hef bent honum á „über“-metrómanninn David Beckham, en það virkar ekki heldur.

En svo kom hann heim úr vinnunni í gær og sagði: „Hallur útskýrði metrómanninn fyrir mér!“ alveg hæstánægður að hafa loksins skilið þetta. Ég varð náttúrulega forvitin og vildi heyra skilgreininguna og hún er einhvern veginn svona (í stikkorðum):

„Þetta snýst um „Natural selection“, eins og í dýraríkinu - það eru konurnar sem velja sér karlana og þeir þurfa að skera sig úr hópnum til að ná athyglinni - í stórborginni er það erfitt - karlarnir þurfa að hafa sig alla við til að skera sig úr hópnum - valmöguleikar kvenna - það sem er tilbúið er betra en það sem þarf að breyta - fljótlegt og einfalt.“

Minn skilningur eftir þetta er sá að þetta er eins og að fara út í búð að kaupa í matinn, ef þú velur þér tilbúna rétti sem er nóg að skella í örbylgjuna, þá fellurðu fyrir metrómanninum (hann er tilbúinn og þú þarft ekki að kenna honum að klæða sig, snyrta sig eða að loka klósettinu eftir notkun) en ef þú velur þér þér kjötbita og meðlæti og eyðir svo tíma í að undirbúa og elda matinn, þá fellurðu fyrir hellisbúanum og mótar hann að vild. Eða strögglar við það.

20. okt. 2007

„Ég er lukkunar pamfíll, svei mér þá“

hvað er það sem gerir það að verkum að ég vakna klukkan 5 að morgni með þessa laglínu í hausnum? Mér finnst þetta ekki skemmtilegt lag og ef út í það er farið, þá er ég svo sem ekki hrifin af Ðe lónlí blú bojs.
Já, margt er skrítið í ký... ellumajuhausnum.

16. okt. 2007

Ég er grasekkja

í fyrsta sinn síðan við byrjuðum að búa saman. Það er skrítið. En hann kemur aftur heim á föstudag þannig að þetta verður fljótt að líða og ég hef kisurnar til að halda mér félagsskap.

11. okt. 2007

hann á afmæli í dag, hann á afmæli hann...

David, hann á afmæli í dag.
Og eins og lög gera ráð fyrir þá hefur eiginkonan, ég, dekrað við hann í dag. Erum á leiðinni á Austur-Indíafjélagið á eftir, again. Afmælisbarnið er þegar búið að ákveða hvað verður á disknum hans í kvöld. Mmm...

Annars hef ég verið í því að slaka á og finna sjálfa mig aftur undanfarna daga. And it feels good. Það er líka ljúft að vita að ég fer ekki í vinnuna fyrr en á mánudag... Fór í vax, litun og plokkun í morgun og er að sjálfsögðu allt önnur manneskja ;o)

Já, og til hamingju með daginn líka Elvar!

9. okt. 2007

send heim

jamm, ég var send heim úr vinnunni í dag og fyrirskipað að hvíla mig og láta ekki sjá mig aftur fyrr en í næstu viku.
Ástæðan: of mikil vinna og of mikið álag á mér undanfarna 8 mánuði. (Nú er komið að öðrum, hehehe)

Ég þakkaði pent fyrir og fór heim. Núna er ég búin að kúra undir teppi í stofunni, lesa, setja í eina þvottavél, liggja í baði í klukkutíma og er nokkuð ferskari.

Ætla að vaska upp og fara svo í bíltúr á ofurkagganum hans bróður míns. Gott að eiga góða að.

Kannski það verði til heimilislíf, fjölskyldulíf og félagslíf í framhaldinu, hver veit?

28. sep. 2007

Bréf frá Ameríku!

mér barst handskrifað bréf alla leið frá Ameríku í gær og það er nú sjaldan að svoleiðis fjársjóðir berist manni á þessum tæknivæddu tímum. Það er langt síðan að ég hef upplifað þessa spennu og gleði sem fylgir því að fá óvænt handskrifað bréf. Það hefur reyndar ekki gerst síðan ég var skiptinemi í Taílandi 1992-1993 því þá var enginn tölvupóstur og internet (a.m.k. ekki í almennri notkun).
Maður á að gefa sér tíma til að skrifa handskrifuð bréf af og til því þau eru svo miklu skemmtilegri en tölvupósturinn.

Já, best ég geri það, skrifi eitt handskrifað bréf á mánuði.

Takk fyrir bréfið dr. Erna!

14. sep. 2007

frúin...

var hæstánægð með matinn í gær og það var húsbóndinn líka og hlökkum við nú mikið til að fara á Austur Indíafjelagið aftur. Staðurinn er í miklu uppáhaldi hjá okkur.

Í kvöld verður lífinu tekið með ró en á morgun er komið að því að „hyrnda“ þríeykið leiði saman hesta sína á ný eftir alltof langan tíma. Og í fyrsta sinn sem við hittumst allar með maka, spennandi!

13. sep. 2007

frúnni...

er boðið út að borða í kvöld. Fjósakonan fær þá frí en hún hefur alltof lengi haft völdin enda nóg að gera í fjósinu.

Það er Eiginmaðurinn sem er svo elskulegur og við ætlum hingað.
Namminamm!

31. ágú. 2007

VÁ!

Við hjónin fórum á tónleika með Eivöru Pálsdóttur og Stórsveit Reykjavíkur í Austurbæ í gær og og þeir voru frábærir. Ég get ekki sagt neitt annað en „Vá!“

VÁ!

27. ágú. 2007

mánudagur

Hvernig er hægt að vera svona latur eins og ég er í dag? Er það kannski bara af því að það er mánudagur?
Ég hef MIKLU meira en nóg að gera í vinnunni en kem mér bara ekki að verki. Kannski af því að þetta eru allt verkefni í leiðinlegri kantinum, eilífar reddingar á síðustu stundu og svoleiðis...

bleeeeeehhhhhhh!!!!!!!

4. ágú. 2007

"Það er verslunarmannahelgi og maður rolast einn í bænum"

Reyndar er ég ekki ein en það eru engin stórferðalög áætluð um þessa helgi. David þarf að læra því sumarönninni er að ljúka og svo eru próf framundan hjá honum. Ég stefni að því að vera dugleg á einhverjum sviðum, t.d. taka til og þrífa heima, í garðinum, heimsækja vini og ættingja og að slaka á.
Ég vona að allir gangi hægt um gleðinnar dyr um helgina!

2. ágú. 2007

útborgunardagur

Við fengum útborgað í gær eins og öllu vinnandi fólki sæmir og svo sem ekki frásagnarvert nema hvað að David fékk einungis rúmlega 8.000 krónur útborgaðar. Ástæðan er einhver villa í launakerfinu hjá ÍTR/Reykjavíkurborg og hann var ekki sá eini sem varð fyrir röngum launaútreikningum en það á að leiðrétta þetta í næstu viku. Ennþá finnst mér þetta svo sem ekki frásagnarvert og lítið sem hér kemur á óvart. Það koma alltaf upp einhverjar villur í svona tölvukerfum af og til og það tekur jú allt sinn tíma þegar maður er í vinnu hjá ríkis- eða sveitarfélagabáknum.

En mér finnst ástæða til að dvelja við þetta og blogga um þetta því að þessi villa er víst búin að vera í kerfinu SÍÐAN Í MAÍ!!! Hvað er í gangi?!?!? Um síðustu mánaðamót fékk ein 18 ára stelpa sem er að vinna með David t.a.m. 300.000 krónur útborgaðar en sagði víst engum frá því. Það er greinilega hægt að þéna feitt hjá ÍTR.

Launaseðillinn hans var svo stórskemmtileg lesning því samkvæmt honum var David í launalausu leyfi í 1,14 mánuð í júlí en samt fékk hann þó eitthvað útborgað. Geri aðrir betur!

30. júl. 2007

égþoliekkiDV!!!

Allir sem fylgdust eitthvað með fréttum í gær vita af hræðilegum harmleik sem átti sér stað í Reykjavík og á Þingvöllum. Ég er mjög slegin yfir þessum fréttum eins og flestir Íslendingar, geri ég ráð fyrir.
Og kannski pínulítið forvitin, þjóðin er jú lítil, skyldi maður þekkja/kannast við þetta fólk? En tíminn mun leiða það í ljós og fjölmiðlar eiga eftir að fjalla um málið og einhverjir, því miður, að velta sér uppúr því. Ef vera skyldi að maður þekki til fólksins þá á maður eftir að frétta það eftir réttum leiðum, vona ég.
Eða réttara sagt, vonaði ég.

Í morgun, um kl. 8:30 fór ég inn í 10-11 til að kaupa mér nesti fyrir vinnuna og þar er búið að stilla DV upp í öllu sínu veldi og á forsíðunni stendur:
"X myrti Y og skaut svo sjálfan sig" eða eitthvað álíka grafískt.
Báðir mennirnir nafngreindir og ekki sólarhringur liðinn frá atburðunum.

Mér finnst þetta gróft og algjört virðingarleysi gagnvart aðstandendum og fórnarlömbunum. Hverju er Jón Jónsson útí bæ eða ég bættari við að vita nöfnin?
Engu en aðstandendur fá ekki að jafna sig í friði eða jafnvel að láta alla sína vita.

Aðstandendur og vinir beggja mannanna eiga samúð mína alla.

SVEI YKKUR HJÁ DV!!!

29. júl. 2007

Grænland

Ferðin til Grænlands var alveg frábær og við erum strax farin að tala um hvað við ætlum að gera þegar við flyt... uss, ég meina í næstu ferð þangað!
Í þessari ferð flugum við í flugvél og þyrlu; sigldum í alls kyns bátum; sáum ísjaka af öllum stærðum og gerðum, sáum fullt af hröfnum, moskítóflugum og rollum en bara einn örn; borðuðum sauðnaut, hreindýr, hval og dásamlegustu fiskisúpu í heimi (engar ýkjur); drukkum grænlenskan bjór í lítratali, skáluðum í Dry Martini með ísmolum úr 2000 ára gömlum ís sem brakaði í og smökkuðum grænlenskt kaffi; gengum út um allt, slökuðum á, nutum veðurblíðunnar og lífsins almennt, svo fátt eitt sé nefnt.