er ég heimsk eða hrokafull eða... eða hvað?
ég get stundum orðið svo pirruð á því hvað markaðsstjórar og annað 'marketing' pakk heldur að hinn almenni neitandi er vitlaus og æstur í slúður og drama og eina leiðin til að selja eitthvað sé einmitt með því að auglýsa viðtöl einsog:
SELMA: dýrlegir menn og drama lífsins
svona fyrirsagnir virka ekki hvetjandi á mig til að kaupa eða lesa viðkomandi blöð en hins vegar sat ég á kaffihúsi í gær og las ofangreint viðtal, kannski meira af því að ég var í bekk með Selmu meira og minna allan grunnskólann og þykist þekkja hana aðeins þótt við séum ekki í neinu sambandi í dag. Ég er ánægð fyrir hennar hönd með Júróvisjón og er fullviss um að hún komi til með að standa sig vel í Kænugarði.
Allavega, þetta var útúrsnúningur. Það er viðtalið sjálft eða öllu heldur fyrirsögn viðtalsins sem er að angra mig. Eins og áður sagði las ég viðtalið sem var tekið í tilefni af þátttöku hennar í Júróvisjón í ár og fór spjallið vítt og breitt. Hins vegar veit ég ekki alveg hverjir þessir dýrlegu menn eru sem fyrirsögnin vísar í, eini maðurinn sem hún talar um er maðurinn hennar og svo minnist hún aðeins á föður sinn. Varðandi dramað þá geri ég ráð fyrir að það hafi verið fæðing sonar þeirra því hún var Selmu erfið eins og hún talar aðeins um í viðtalinu en þó án allrar dramatíseringar. Miðað við efni viðtalsins væri fyrirsögn í ætt við:
Selma um lífið og tilveruna
Ekki mjög frumlegt og alls ekki nógu spennandi eða krassandi. En þetta er mín skoðun.
Kannski er ég hrokafull af því að þessar fyrirsagnir og svona dramtísk annarra-manna-mál höfða ekki til mín og mér finnst pínulítið fyrir neðan mína virðingu að eltast við svona fyrirsagnir...
Kannski er ég heimsk af því að mér finnst ég vera of klár fyrir svona hluti...
Kannski er ég bara algjörlega ódramatísk, já, eða jafnvel skrítin eins og einhver spekingur sagði mér ekki fyrir svo löngu...
I don't know.
|