óboðinn næturgestur
Við vorum með óboðinn en velkominn næturgest í síðustu viku. Þannig var að þegar við komum heim eftir bíóferð eitt kvöldið, var kettlingur að leika sér í garðinum hjá okkur og við lékum okkur aðeins við hann og klöppuðum áður en við fórum inn. Við vorum líka aðeins að fylgjast með viðbrögðunum hjá Busa en hann er svarti labradorhundurinn á efri hæðinni. Alveg yndislegur hundur, 8 ára en alveg jafn forvitinn, glaður og ákafur og hvolpur. Alla vega, við fórum svo inn og settumst fyrir framan sjónvarpið og stuttu seinna var kettlingurinn, Sólon, kominn inn til okkar og farinn að hvíla sig á sófanum, rétt eins og hann væri bara kominn heim til sín. Við höfðum bara gaman af því og leyfðum honum að sofa þar á meðan við horfðum á imbann en fórum með hann yfir í næstu götu þar sem hann á heima áður en við fórum að sofa.
En svo þegar við vöknuðum morguninn eftir þá kúrði hann alsæll á sófanum okkar í stofunni, við létum hann vera þangað til við fórum út og lokuðum þá gluggum og settum hann út fyrir og við höfum ekki séð hann síðan.
En við stóðum okkur að því þegar við vorum í labbitúr um helgina að svipast um eftir honum þegar við gengum eftir Sólvallagötunni...
|