4. mar. 2007

hmmm...

druslublogger!
býður uppá eitthvað nýtt og fínt "layout" dæmi og ég er búin að sitja hér í rúma klukkustund að leika mér með þetta en svo strokar það bara athugasemdaboxið mitt út.
Mér finnst það fúúúúlt!
Fussumsvei!

druslublogger!!!

3. mar. 2007

kjóll-INN

brúðarkjóllinn var valinn í dag og þetta gekk ótrúlega vel, bara 2 staðir og alls um 10 kjólar mátaðir og einn bar af. Mér til mikillar undrunar fann ég litla prinsessu innra með mér, kjóllinn sem ég valdi er ekki beinlínis prinsessukjóll en ég mátaði einn slíkan og það var ótrúlega gaman en samt engan veginn ég.

Ég náði loksins í prestinn í vikunni eftir margar, margar tilraunir í rúmar 2 vikur. Loksins var hann heima og ekki á tali... Þá er það frágengið en enn er nóg að gera, við eigum eftir að finna hringa, finna lag/lög fyrir athöfnina og dansinn (allar tillögur vel þegnar þar sem við eigum ekkert "okkar" lag), það sem á vantar fyrir minn fatnað, allan Davids fatnað, freyðivín, brúðartertu, skreytingar, bíl, bílstjóra og örugglega fullt af öðrum hlutum sem ég man ekki eftir í augnablikinu (eða veit ekki af). Allt er þetta nú á einhverju vinnslustigi en ófrágengið.

Jæja, nóg af þessu, þetta er ekki og á ekki að vera brúðkaupsblogg.

En ég bíð nú spennt eftir að sjá ástandið á verðandi eiginmanni mínum þegar hann kemur heim í nótt eftir steggjunina... Það verður rólegur dagur á Bárunni á morgun.

Góða nótt.

27. feb. 2007

skessustelpur eða stelpuskessur?

það er ekki oft sem maður byrjar daginn á að opna líkjörsflösku en hvað getur maður annað gert þegar maður á von á stelpuskessum í saumaklúbb í kvöld?

Reyndar eru þær engar skessur þessar elskur og svo var ég nú ekki að staupa mig, heldur að gera skyrtertu fyrir kvöldið.

Ég vona að þær láti allar sjá sig, nema kannski hún Anna Lilja því ég held að það sé löngu kominn tími á að við fáum að sjá litla bumbubúann!

23. feb. 2007

Fögur

það er uppáhaldsorðið mitt í dag. Ég sá það í stjörnuspánni minni í Blaðinu í morgun og sú „spá“ er ein sú besta sem ég hef nokkurn tímann séð:

„Það er ekki bara gott fyrir líkamann að svitna og koma öllum pirringi á brott heldur líka fyrir hjarta og sál. Ekki gleyma að þú ert fögur vél. Dansaðu, hlauptu eða hoppaðu á staðnum.“

Já, ekkert bull um spennandi fréttir úr óvæntri átt eða að einhver nákominn mér sé hrifinn af mér í laumi... Eiginlega ekki heldur spá, bara sannleikskorn.

Hafið það gott í dag!

20. feb. 2007

Ferðsjóðurinn dafnar

Bankinn okkar fer hamförum í fjölmiðlum þessa dagana með auglýsingar sem sýna hvað þeir eru góðir við okkur viðskiptavini og neytendur. Þeir eru nefnilega að endurgreiða viðskiptavinum sínum nokkur prósent af greiddum vöxtum síðasta árs. Heilsíðuauglýsingin í Blaðinu sem æpti á mig í morgun var mynd af ungum pari og fyrirsögnin var eitthvað á þessa leið:

"Okkar endurgreiðsla fer í ferðasjóðinn okkar"

Gott og blessað það en þegar maður fær fínt bréf frá bankanum sem segir manni að endurgreiðslan, sem hefur verið greidd inn á reikninginn, er ekki einu sinni heilar 1.400 krónur þá finnst manni þetta nú frekar mikið prump. Málið er að vextir af verðtryggðum húsnæðislánum og yfirdráttaheimildum eru ekki með í þessu reikningsdæmi. En hvaða skuldir eru það sem eru að sliga landann? húsnæðislánin og yfirdráttaheimildirnar!
Hvað er þá verið að endurgreiða? Jú, óverðtryggð lán. Í áðurnefndri auglýsingu er svo dæmi um að ef maður er með kr. 18.000.000 óverðtryggt lán hjá bankanum þá fær maður eitthvað um kr. 76.000 endurgreiddar.
En hver tekur átján milljón króna óverðtryggt lán? ég bara spyr.

Hugsanlega fer okkar endurgreiðsla líka í ferðsjóðinn okkar en ég á enn eftir að reikna út hvað við þurfum margar svona endurgreiðslur til að eiga fyrir einum flugmiða til Kanada...

18. feb. 2007

Lalala-la-la-lala

í (gær)morgun vaknaði ung og saklaus stúlka sem átti von á vinkonu í mat í hádeginu
vinkonan hringdi rétt fyrir hádegi og var í vandræðum með bílinn sinn
unga stúlkan fór að sækja vinkonuna
vinkonan rændi stúlkunni
.
.
.
í kvöld/nótt fer gæs að sofa
gæs sem er búin að:
láta dekra við sig
drekka
taka myndir
láta taka myndir af sér
hlæja
dansa magadans
fara smá "trip down memory lane"
drekka meira
borða
vera í útvarpinu
fara í bíltúra
dansa
kyssa Eric Hawk

takk fyrir mig!

13. feb. 2007

halló

jæja, loksins gefst tími til að blogga, póstþjónninn í vinnunni liggur nebblega niðri og þar sem starf mitt byggist meira og minna á því að sinna því sem er í pósthólfinu, þá hef ég lítið að gera í augnablikinu...

Ástæðan fyrir bloggleysi undanfarinna vikna eru veikindi sem hafa herjað á B35 undanfarið með tilheyrandi orku- og andleysi. Við hefðum kannski átt að fjárfesta í svona heilsukolvetnismorgunkorni til að bjarga heilsunni?
Við erum bæði orðin hress núna, 7-9-13, en höfum legið í pest til skiptis alveg síðan um áramót en vonum bæði að nú sjái fyrir endann á þessu volæði enda meira en nóg að gera hjá okkur á næstunni. Ekki nema tæpar 7 vikur í stóra daginn og nú þarf allt að gerast!
Já, 31. mars er nú staðfestur!

16. jan. 2007

meira um heilsukolvetni og aðeins um Taj Mahal

Heilsukolvetni eru prebiotic samkvæmt áðurnefndri auglýsingu.
Orðabanki íslenskrar málstöðvar segir mér að það sé „forlífs-“ á íslensku og Wikipedia segir mér eftifarandi:
Prebiotics are a category of functional food, defined as: Non digestible food ingredients, that beneficially affect the host by selectively stimulating the growth and/or activity of one or a limited number of bacteria in the colon, and thus improve host health.
Most potential prebiotics are carbohydrates (such as oligosaccharides), but the definition does not exclude the use of non-carbohydrates as prebiotics.“

Þá vitum við það.

Annars var ég að lesa þýdda skáldsögu um daginn þar sem talað er um Taj Mahal sem „eitt af átta furðuverkum veraldar“.
Furðuverk?!?!?!
hvað varð um „Sjö undur veraldar“?
eða er þetta samskonar „furðuverk“ og Ruth Reginalds „sem að Guð bjó til“? ég bara spyr...

9. jan. 2007

hvað er...

heilsukolvetni?

er einhver sem veit það? Ég er alltaf að sjá þetta og heyra í einhverjum morgunkornsauglýsingum en hef ekki hugmynd um hvað þetta er.
Ætli hreinn sykur sé þá vanheilsukolvetni?

6. jan. 2007

síðbúnar hátíðarkveðjur á þrettándanum...

já, það er víst betra seint en aldrei:
ég vona að þið hafið öll haft það gott um hátíðarnar og að árið 2007 verði ykkur gott!
og þakka fyrir samverustundirnar (og athugasemdirnar) á liðnum árum.

annars er allt gott en mest lítið að frétta, hef verið að vinna á fullu undanfarna daga til að ná niður því sem safnaðist upp á meðan ég var lasin á milli jóla og nýárs en það ætti allt að vera komin í réttar skorður núna.

þessi færsla er aðallega til þess að láta alla vita að ég er enn hérna og blogga af og til - reyndar er eitt af nýárs-skýársheitunum að blogga oftar (eða að sleppa því alveg) ásamt því að:
* stunda heilsusamlegra líferni (matur og hreyfing!)
* rækta fjölskyldu- og vinaböndin betur
* ferðast
* stuðla að alheimsfriði og eignast börn
reyndar skal ekki tekið mark á síðasta atriðinu en mér fannst þessi upptalning mín farin að vera eitthvað klisjukennd og fegurðarsamkeppnileg... (óbój, á ég ekki eftir að fá allt flóðið yfir mig núna?)

Framundan:
Blond Bond í kvöld
Hreindýralundir annað kvöld
Heroes mánudagskvöld (D er að farast úr spenningi!)

8. des. 2006

„Sælla er að þiggja en gefa“

Ég hvet alla til að fylgjast með Jólalagakeppni Rásar 2 sem er í gangi núna. Reyndar er búið að velja lögin 10 en nú er mál að kjósa!

Uppáhaldslagið mitt er Sælla er að þiggja en gefa enda er þar eðalsveitin Dogdaze á ferð og trommuleikari hennar er einn sá myndarlegasti hér á landi en hann er (mjög vel) giftur fjölskyldufaðir þannig að „fingrene væk“ stelpur!

Eru ekki annars allir í blússandi jólaskapi?

24. nóv. 2006

Ullarsokkablæti

Ég svaf ekkert alltof vel síðastliðna nótt og í eitt skiptið þegar ég rumskaði heyrðist mér ég heyra urr þannig að ég lagði aðeins við hlustir.
Jú, þetta var urr svo ég settist upp til að átta mig á því hvaðan það kæmi. Ég sá Rökkvu og Myrkva, tvær af kisunum okkar, inni hjá okkur en þau voru alveg róleg og ekki að urra.
Ég fór á fætur og leit inn í litla herbergið inn af svefnherberginu okkar, þar var enginn. Ég hlustaði betur og heyrði enn urrað. Fór fram og greip með mér úðabrúsann, nauðsynlegt uppeldistæki fyrir kattareigandann, og leit inn í stofu. Sá ekkert þannig að ég kveikti ljósið.
Ofbirta.
Áfram urrað en engin læti.
Þegar ég vandist ljósinu sá ég hvar Ljómi sat í húsbóndahorninu í stofunni með angóruullarsokkinn minn í munninum og urraði. Það átti sko enginn að fá að nálgast hann eða sokkinn!

Ég held að hann sé með ullarsokkablæti. Hann lætur allar aðra sokka (og flíkur) í friði en ef hann finnur ullarsokka á liggjandi á glámbekk þá slær hann eign sinni á þá. Sérstaklega ef það eru angórusokkar. Hann reyndi m.a.s. að ná einum slíkum af fætinum á mér um daginn.

20. nóv. 2006

Lýst er eftir:

Sykurmoladisknum mínum Life's too good. Hefur einhver fengið hann lánaðan? Ég finn hann ekki heima. Lásinn er inn-út-inn-inn-út.

Eða nei, það var hjólið.

18. nóv. 2006

Sykurmolarnir

eða Sugarmoles eins og Einar Örn kallaði þau í gær, voru sætir.

Tónleikarnir voru frábærir, spilagleðin í fyrirrúmi, kemistríið á milli Bjarkar og Einars Arnar frábært og meiriháttar að fá Johnny Triumph á svið í lokin með sitt frábæra lag Luftgítar.

"I really don't like lobster!"

16. nóv. 2006

Bleh búið!

já og það er kominn fimmtudagur hjá mér.

Fékk alveg nóg af sleninu í gær og sagði því stríð á hendur og henti því út með rykinu, því þegar ég kom heim í gær þá ryksugaði ég, skúraði, skipti á rúminu og ég veit ekki hvað og hvað. Enda líður mér miklu betur - komin á eðlilegt ról aftur.

og á morgun...

þá er ég að fara á tónleika með Sykurmolunum!!!
sem minnir mig á að ég þarf að fara að sækja miðana...

15. nóv. 2006

13. nóv. 2006

mánudagur

mér líður eins og ég sé enn hálfsofandi en samt er klukkan orðin rúmlega níu og ég er komin í vinnuna og farin að sinna skyldum mínum hér.

ætla að fá mér kaffibolla...

bleh

8. nóv. 2006

Nú er úti veður...

(veit ekki hvort það er vott, vont eða eitthvað annað, heyri bara í því)

og mig langar að vera heima og kúra hjá manninum mínum sem er lasinn...

7. nóv. 2006

It’s alive!

Já ég er á lífi og þykist ætla að fara að lifa blogglífi líka, gangi mér vel!

Þótt ég viti að þetta er ekki beinlínis dagbók þar sem ég þarf að tiltaka allt sem á daga mína drífur þá ætla ég samt að bjóða upp á smá yfirlit yfir undanfarnar vikur/mánuði...

Bara svona af því að ég veit ekki alveg hvernig ég á að byrja hér aftur en mig langar að komast í gang.

Síðan síðast (eða þarsíðast eða bara einhvern tímann) er ég búin að:

- fara í tvær sumarbústaðarferðir; sú fyrri til að skoða stjörnurnar en stjörnukíkirinn varð eftir í bænum þannig að í staðinn spiluðum við Catan og brutum sófa, sú seinni til að tjútta og tralla með vinahópnum og óboj hvað það er langt síðan ég hef farið í bústað með þessu liði og óboj hvað það var gaman!
- læra að spila Catan og það er rosalega skemmtilegt spil!
- fara á stelpudjamm með frábærum konum sem m.a. leiddi okkur inn á Café Paris, Óðal, Café Kozy. Say no more. Og uppskeran daginn eftir var af verri endanum: þynnka dauðans!
- detta í húsakaupapælingar en þið vitið nú allt um það...
- vera löt að æfa mig – fussumsvei!
- vera haldin ákvarðanafælni varðandi allt sem við kemur brúðkaupinu....
- skrópa í vikulegri göngu með vinkonunum - ja, sveiskítalykt!

Og síðast en ekki síst, fagna brautskráningu míns heittelskaða frá HÍ.

1. okt. 2006

undan feldi, eða ekki

jamm, við erum skriðin undan feldi og höfum tekið ákvörðun:

áfram í Vesturbænum
hér er gott að vera
ótímabært að fara

en þetta var mjög hressandi hugsanaferli sem vakti okkur til umhugsunar um íbúðina okkar, sem btw hefur hækkað um 36% í verði á þessu eina ári!
spark í rassa okkar til að fara gera það sem við höfum bara talað um hingað til!

skriðin undir feld aftur til að losna við kvefið.

Aaaatjú!