13. feb. 2007

halló

jæja, loksins gefst tími til að blogga, póstþjónninn í vinnunni liggur nebblega niðri og þar sem starf mitt byggist meira og minna á því að sinna því sem er í pósthólfinu, þá hef ég lítið að gera í augnablikinu...

Ástæðan fyrir bloggleysi undanfarinna vikna eru veikindi sem hafa herjað á B35 undanfarið með tilheyrandi orku- og andleysi. Við hefðum kannski átt að fjárfesta í svona heilsukolvetnismorgunkorni til að bjarga heilsunni?
Við erum bæði orðin hress núna, 7-9-13, en höfum legið í pest til skiptis alveg síðan um áramót en vonum bæði að nú sjái fyrir endann á þessu volæði enda meira en nóg að gera hjá okkur á næstunni. Ekki nema tæpar 7 vikur í stóra daginn og nú þarf allt að gerast!
Já, 31. mars er nú staðfestur!